Réttur - 01.01.1963, Blaðsíða 19
R E T T U R
19
innar 1942 aS Sósíalistaflokkurinn vann þá miklu kosningasigra,
snm hækkuðu þingmannatölu hans úr þremur upp í 10, og tryggðu
honum fylgi fimmta hluta þjóðarinnar.
Þessari kauphækkun og raunverulegri styttingu vinnutímans
mætti koma á í tveimur áföngum á 2—3 árum. Samtímis þyrfti svo
að hefjast handa um eftirfarandi stórfeldar og samræmdar aðgerðir
í þjóðfélaginu, til þess að tryggja varanleika þessara endurbóta:
1. Það þarf að framkvæma iðnbyltingu í matvœlaframleiðslu vor
1 slenclinga. Nú er alltof mikið af framleiðslu vorri aðeins hráefni
eða hálfunnið, eins og síldarframleiðslan bezt sýnir. Með því að
koma á fullkomnum niðurlagningar- og niðursuðu-iðnaði, má gera
vinnuaflið miklu dýrmætara en ella og stórauka útflutningsverðið,
eins og áður hefur verið sýnt fram á hér í Rétti. Og þessi iðnbylt-
ing í matvælaiðnaðinum kostar tiltölulega lítið fjármagn. En hún
krefst skipulagðrar utanríkisverzlunar, til þess að hagnýta sósíalist-
ifcku markaðina.
2. Það þarf að lækka stórum vexti bankanna, draga yfirleitt úr
þeini hluta þjóðararðsins, sem fer sem gróði í einni eða annarri
mynd til auðmannastéttarinnar og ríkisbákns þess, er hún hagnýtir
nú í sína þágu sem ætti hún það.
3. Það þarf að lækka útflutningsgjöld eða afnema með öllu á
íslenzkum afurðum, lækka aðrar álögur á útflutning, minnka kostn-
að við ríkisbáknið, spara verulega menn og fé i skriffinnskukerfi
hins opinbera.
4. Það þarf að minnka sjálfan gróða auðmannastéttarinnar,
einkum verzlunarauðvaldsins, og knýja auðmannastéttina til miklu
skynsamlegri vinnubragða í atvinnurekstri sínum, sparnaðar í
einkarekstrinum, hvers konar hagræðingar vinnu, sem um leið
ínyndi útheimta stærri og stöðugri rekstur en nú er, meiri hagnýt-
ingu véla og húsakosts með vaktavinnu o. s. frv.
5. Raunveruleg stytting vinnudagsins í 8 stundir kallar víða á
vaktavinnu og þar með miklu fleira fólk í sjálfa framleiðsluna. Til
þess að útvega það fólk, þarf beinlínis að, spara fólk í verzlun og
skrifstofum og víðar með umskipulagningu á vinnu þar. Slíkl mun
oft jafngilda stækkun eða sameiningu fyrirtækja svo hægt sé að
reka þau haganlegar. — Slík þróun er lögmál i auðvaldsskipulagi,
en verðbólgan hefur raunverulega dregið úr því að það lögmál réði
i viðskiptalífinu. En þessi þróun þarf að fara fram og mun gera það
ef verðbólga er endanlega stöðvuð, en ekki haldið áftam með hana