Réttur


Réttur - 01.01.1963, Blaðsíða 47

Réttur - 01.01.1963, Blaðsíða 47
RÉTTUR 47 Athafnir og bláþrykk eru traustari heimildir en klingjandi ræðu- höld. Það er augljósara en orðum taki að ógerlegt er að jafna höfða- tölutekjur sósíalísku landanna — einkum þegar höfðatala lágtekju- landanna er langtum hærri en hinna sem eru hlutfallslega vel á veg komin. Það er auðvelt að skilja, að sú stórfenglega áætlun urn þjóð- félagsallsnægtir sem gerð var á 22. flokksþinginu, hefur vakið margs konar viðbrögð hjá Kínverjum og nokkrum kommúnistaflokkum sem berjast upp á líf og dauða til þess að yfirvinna hyldýpi fátæktar í löndum sínum. Þeim kann að vaxa ásmegin og styrkur við hina stórkostlegu árangra Sovétríkjanna, má vera þeir séu stoltir af þeim glæsilegu viðhorfum sem hin nýja stefnuskrá boðar, en ekki verður komizt hjá að skynja kuldann sem stafar frá þeim er „ekkert hafa“ til hinna er „hafa“. Stefnuskráin gerir ráð fyrir að þjóðarfram- leiðslan vaxi um 500% á 20 árum, að höfðatölutekjur aukist um 350% á sama tíma, við lok tímabilsins njóti Sovétþjóðirnar hœstu lífskjara í heiminum, stytztrar vinnuviku, hinna fullkomnustu al- mannatrygginga. Með þetta í huga vaknar sú spurning, hvort slílc aukning neyzlu og gæða sé að öllu leyti samrýmanleg sósíalskri samúð og bróðurlegri gagnkvæmri aðstoð. Meðan bilið milli íram- leiðslu Sovétríkjanna og annarra sósíalískra ríkja er jafn mikið og nú, hefðu þá ekki Sovétríkin átt að reyna að „ná og fara fram úr“ Bandaríkjum Ameríku í höfðatölutekjum t. d. á 30 árum í stað 20, eins og ráðgert er í stefnuskránni, til þess að geta látið öðrum ríkj- um sósíalismans ríflegri stuðning í té? Og ennfremur, myndi ekki töluverð aðstoð frá Sovétríkjunum til vanþróuðu sósíalísku land- anna í Asíu flýta tiltakanlega eða auðvelda uppbyggingu sósialism- ans þar, auka álitið á sósíalismanum í öðrum vanþróuðum hlutum heims, jafnvel frekar en glitrandi auðlegð í Sovétríkjunum sjálfum? Þetta eru geysilega örðugar spurningar. Til Jress að svara þeim eru nauðsynlegar niðurstöður sem aðeins er hægt að fá réttar með Jrví að taka með í reikninginn þær sérstöku aðstæður sem eru í hverju landi sem og starfshætti sósíalískrar heimshreyfingar. Og alltaf verður nægjanlegt rúm fyrir mismunandi skoðanir og hat- ramar deilur. Málið er auk þess flóknara fyrir Jrað, að sovézkir for- ustumenn hafa nú miklu minna olnbogarými en stjórn Stalíns á sínum tíma. Eftir því sem frjálsræði og lýðræði hefur aukizt í þjóð- lífinu verður æ erfiðara fyrir Jrá sem stjórna ríkinu og flokknum að taka ákvarðanir sem eru líklegar til að verða illa Jrokkaðar, eða gera j-áðstafanir á verðmætum — hversu góður sem tilgangurinn er —
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.