Réttur - 01.01.1963, Page 40
JOSE PEREZ:
Nýtt nafn á langan lista
(Frá Spáni)
Enn heíur bætzt nýtt naín á listann yfir fórnarlömb Franco-
stjórnarinnar. Hinn 7. nóv. s.l. var hinn gamli verklýðsbaráttumaður
og miðstjórnarmaður spánska kommúnistaflokksins, Julian Garcia
Grimau, handtekinn í Madrid af hinni svokölluðu „sósíal-pólitísku
lögreglu“ Francos. Grimau þoldi síðan hrottalegustu pyndingar.
Til að dylja þann glæp, hrundu böðlar hans honum fram af svölum
lögreglustöðvarinnar, og skyldi það heita svo, að hann hefði framið
sj álfsmorð.
Fallið entist þó Grimau ekki til bana, og var hann fluttur í sjúkra-
hús Carabanchel-fangelsisins, að vísu nær dauða en lífi.
Þessi glæpur vakti þunga öldu mótmæla, bæði á Spáni og í öðr-
um löndum. Framkvæmdanefnd kommúnistaflokksins hét á aljiýðu
Spánar og almannaálit í heiminum, að rísa gegn grimmdarverkum
Franco-stjórnarinnar, sem lætur leynilögreglu sína að jafnaði pynda
pólitíska fanga.
Mótmælaaldan fór um gervallt landið.
Kommúnistaflokkur Spánar og Sameinaði sósíalistaflokkurinn í
Catalóníu sendu út ávarp lil allra Spánverja og skoruðu á Jrá að
safna undirskriftum undir þá kröfu, að Grimau yrði látinn laus, og
láta ekki traðka á rétti verkalýðsins né Jijóðarinnar.
í Lundúnum og París hópaðist fólk saman utan við spönsku
sendiráðshúsin og lét hug sinn í Ijós. Kröfuspjöldin sögðu: „Látið
Julian Grimau lausan!“ Hættið pólitískum hermdarverkum!“
„Sakaruppgjöf!“ „Frelsi!“ „Niður með slátrarann Franco!“ •—
Mótmælafundurinn við sendiráðið í Lundúnum stóð alla nóttina.
Mótmælahreyfingin fer vaxandi. 1 Brellandi hvatli framkvæmda-