Réttur - 01.03.1938, Page 1
REITUR
XXIII. ÁRG. MARZ 1938. 1. HEFTI
Á auövaSdinu að takast að
fá lýðræðið til að fremfa
sfálfsmorð ?
Eitt af því, sem eðlilega vekur öllum vinum lýð-
ræðis og frelsis vaxandi áhyggjur um framtíðina, ,er
stefna sú, sem tvær helztu stjórnir borgaralegu lýð-
ræðislandanna, enska og franska stjórnin, fylgja
gagnvart yfirgangi fasismans.
Hverjum manni — einnig þótt hann tilheyri smárri
þjóð í afskekktu landi, eins og við fslendingar — verð-
ur að vera það ljóst, að í því mikla tafli, sem teflt er
í utanríkispólitík vorra daga, er teflt um sjálfstæði
hverrar einustu þjóðar, um lýðræði hvers lands, um
persónulegt frelsi hvers einstaklings. Sá hildarleikur,
sem háður er milli fasisma og lýðræðis um heim allan,
snertir því hvern einasta einstakling.
Frelsisræningjar og friðarspillar heimsins — fas-
istaríkin Þýzkaland, Ítalía og Japan, — hafa gert
bandalag sín á milli, bandalag, sem miðar að því, að
gera aðrar þjóðir þessum ríkjum undirgefnar, skipta
sér af þeirra innri málum og beinlínis leggja lönd
þeirra undir sig. Af þessu bandalagi stafar því öllum
þjóðum lýðræðis og menningar stórhætta. Frá þessum
fasistaríkjum kemur sú styrjöld, sem með hverju ár-
inu færist út á nýtt svið, og fyrr en varir getur breytzt
í heimsstyrjöld.
Það ætti að liggja í augum uppi, að gegn þessari
ógn fasismans eiga öll lýðræðisríki að taka höndum
saman, öll lýðræðisöfl að mynda eina fylkingu. Og
1