Réttur - 01.03.1938, Síða 8
utan þings og innan. Og slíkt bandalag á síðan að
hafa samvinnu við alla þá úr Sjálfstæðisflokknum,
sem af heilum hug vilja vinna að velferð þjóðarinnar
og verndun frelsis hennar, jafnframt því, sem slík
þjóðfylking lætur hart mæta hörðu gagnvart spell-
virkjum þjóðarbúskaparins og sýnir fjármálaspill-
ingunni enga mildi.
Allir þeir menn, sem á einn eða annan hátt reyna
að hindra að það takist, vinna þar með beinlínis í
þágu fasismans og auðvaldsins. Öllum lýðræðissinn-
um verður að vera ljóst, eftir atburðina, sem nú hafa
gerzt í veröldinni, að lýðræðinu stafar einungis hætta
frá auðmannaklíkunni og erlendum bandamönnum
hennar og af sundrungu eða linleskju sinna eigin
fylgjenda, — en hvergi annarsstaðar frá.
E. O.
Maðurinn á veginum.
Eftir Albert Mallz.
Um klukkan 4 síðdegis ók eg yfir brúna í Gauley
í Vestur-Virginía, og síðan eftir snarpri beygju á veg-
inum inn í neðanjarðargöngin undir járnbrautar-
brúnni. Eg hafði ekið þessa leið einu sinni áður, og
fór því varlega. Þegar eg kom inn göngin hafði eg
hægt á bílnum niður í 10 mílna hraða á klukkustund.
En þrátt fyrir þessa gætni, hefi eg aldrei komist nær
því að aka yfir mann, heldur en í þetta sinn. Það at-
vikaðist þannig.
Vegurinn var rennblautur eftir dags rigningu, og
mjög háll. Það var dimmt í lofti, þoka og rigning, og
þess vegna ómögulegt að aka nema hafa ljós á bíln-
um. Um leið og eg ók ,inn í göngin, kom stór, gul-
8