Réttur


Réttur - 01.04.1938, Page 16

Réttur - 01.04.1938, Page 16
þrjá daga. Þar voru fyrirlestrar og umræður um lands- ins gagn og nauðsynjar, glaumur og gleði, 200—400 manns samankomin, til að fræðast og skemmta sér. Eitt kvöldið voru almennar umræður um hina sígildu kreppu, sem þá var aðeins ársgamalt fyrirbrigði á Austfjörðum. Þá tók ég til máls og varpaði yfir krepp- una Ijósi minna hættulegu skoðana. Litlu síðar tók til máls mesti og glæsilegasti bóndinn á öllu Héraði, Sveinn á Egilsstöðum. Hann er holdi klædd bænda- hugsjón Jónasar frá Hriflu. Hann hefir fjölda kúa, sem búa í einhverju allra glæsilegasta húsinu í hreppnum, þegar undan er skilið hús Sveins sjálfs. Stórt og vélltækt tún, bílvegur heim á hlað, og hverj- um bagga ekið í bíl heim að hlöðudyrum. Engjar eru líka véltækar, mörg hundruð ær. Risna er á mjög háu stigi á heimili hans og íerðamannastraumurinn liggur þar um garð allt sumarið. Auk þess er hann albróðir kaupfélagsstjórans á Reyðarfirði. Eins og gefur að skilja, þá skilur svona bóndi, hve skoðanir mínar á kreppunni voru hættulegar og þessvegna hélt hann yfir mér rungandi skammarræðu, þar sem hann sýndi fram á, hvað ég væri hásvívirðilegur maður. Þetta þótti mér mjög eðlilegur hlutur og alvanalegur. En Héraðsbúar litu nokkuð öðrum augum á málið. Gleði og bróðurhugur hafði ríkt við umræðurnar, svo sem í öllum öðrum greinum á námsskeiðinu. Það höfðu ver- ið haldnar milli 10 og 20 ræður, sumar ekki nema eina eða tvær mínútur og sumar ákaflega þunnar að allra dómi, eins og gengur og gerist. En af því að það lá svo ljómandi vel á fólkinu, þá hafði hver einasti maður a'lltaf klappað fyrir hverjum einasta ræðu- manni. — Þar til Sveinn hafði lokið máli sínu, ríkasti bóndinn á Héraði, sá, sem átti fallegast fjós um allt Austurland, flestar kýr, átti bíl og ók á honum öllum sínum nauðsynjum heim í hlað og að hlöðudyrum, bóndinn á frægasta höfuðbóli landsfjórðungsins, þá klappaði enginn, eklci einn einasti maður. í einum 48

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.