Réttur


Réttur - 01.04.1938, Síða 31

Réttur - 01.04.1938, Síða 31
veit ekkert hvað ég á að gera. Ég hefi aldrei á æfi minni lent í þvílíkum vanda. Ef ég tek þetta að mér, þá get ég unnið mér inn dálitla peninga, en aðeins með því gera fólki illt, sem aldrei hefir gert neitt á hlut minn. Ef ég segi nei, þá verð ég stimpluð sem andfasisti og ofsótt á allan hugsanlegan hátt. Þú ert nú búin að þekkja mig í þrjátíu ár, og þú veizt að ég er hvorki fasisti eða andfasisti; þú veist að ég hefi alltaf unnið heiðarlega fyrir mér og ekki skipt mér af öðru en mínu“. Daníel stóð í djúpum þönkum. Caterina lagði enn af stað, andvarpandi, og enn fylgdi Daníel á eftir. Agostino beið við endann á stígnum. ,,Heyrðu“, sagði Daníel við konuna, ,,þú skalt ekki vera hrædd, en segðu Agostino það, sem þú varst að segja mér, og gerðu svo það, sem hann segir þér“. Daníel horfði á eftir þeim, þar sem þau gengu í átt- ina til Gordola, síðan hélt hann aftur til svínastíunn- ar til að iíta eftir grísunum sínum. Dag nokkurn var hann ásamt Silvíu dóttur sinni að vinnu í víngarði sínum. Þá kom Agostino. Þetta var fyrsta sinn, sem Daníel sá hann síðan gyltan gaut. Daníel hafði tekið þessa morgunstund til þess að reyna að bjarga vínviðnum sínum undan skemmdum phylloxerunnar (þ. e. sníkjudýr, sem veldur miklu tjóni á vínviði í Sviss og víðar), hann leitaði uppi sýktu blettina með litlum stálbursta, en Silvía gekk í slóð hans með sjóðandi vatnskönnu og hellti því á skemmd- irnar. Agostino ók vagni með múrsteinum. Hann hægði á og kallaði: „Hæ! nú er kominn skriður á málið!“ „Hvaða mál?“, svaraði Daníel, sem áttaði sig ekki strax á við hvað hann átti. „Þú veizt hvað ég meina“, sagðiAgostino, veifaði höndinni og ók burt. Daníel hristi höfuðið. «3

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.