Réttur


Réttur - 01.04.1938, Side 50

Réttur - 01.04.1938, Side 50
„Verkfræðingurinn lét fallast ofan í stól. „Hver var Matteotti?" spurði hann. „Það var maður, sem barðist fyrir málstað fátækl- inganna, þess vegna var hann myrtur af Mussolini“. „Ert þú andfasisti?“ „Auðvitað“. • „Og Silvia líka ? “ „Hún er meiri andfasisti en eg“. „En faðir þinn?“ „Hann er meiri andfasisti en við báðar . . . En hann talar ekki um það, hann framkvæmir“. Luisa fór með hann upp á efra loftið. „Þetta er herbergi foreldra minna“. „Og hvaða herbergi er þetta?“ „Það fær enginn að koma þangað inn. Pabbi bann- ar það. Það er mikið af blöðum þar inni, og hann vill ekki láta óhreinka þau“. Luisa og ,,verkfræðingurinn“ fóru aftur út í garð- inn. — Næsta hálftímann gekk hann fram og aftur um garðinn. Því næst tók hann ákvörðun, fór inn til Luisu og sagði: „Viltu senda fyrir mig símskeyti?“ Hann fékk telpunni skeytið og peningana, sagðist vera þreyttur og ætla beint í rúmið. Morguninn eftir fór Silvia upp með matinn „verk- fræðingsins“, en það var ekki svarað. Dyrnar voru læstar. Silvia var viss um að eitthvað hefði komið fyrir, og hrópaði upp yfir sig. Öll fjölskyldan kom þjótandi, til að sjá hvað um væri að vera. Daníel sló inn hurðina. Herbergið var tómt, það hafði ekki verið sofið í rúminu, farangurinn var horfinn. „Hann er farinn!" hrópaði Silvia. „Hann fer án þess að kveðja“, sagði Luisa. „Hann hlýtur að hafa farið í gærkvöldi“, sagði Filomena og benti á rúmið. Daníel þaut í tveim skrefum upp á efra loftið, þar- 82

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.