Réttur - 01.04.1938, Page 53
Tryggvi heitinn Þórhallsson kenndi okkur að þekkja
kjörorðið: Allt er betra en íhaldið. Hann ávann sér
hyili okkar með þessu kjörorði og hélt henni óskiftri,
meðal allra frjálslyndra umbótamanna, meðan hann
reyndizt því trúr.
En þó kom þar að um síðir, að svo leit út, sem hann
tæki að hvika frá þessu kjörorði. Hann vildi reyna
verzlunarleiðina, vinna til hægri, eða vinstri, eptir því
sem á stæði.
Þá kom annar maður til sögunnar. Hermann Jón-
asson, núverandi forsætisráðherra, er sendur norður
á Strandir til þess að forða okkur frá þeim voða, að
verða hinum pólitíska spekúlant — Tryggva Þor-
hallssyni að bráð. Og það tókst. Hermann Jónasson
sýndi fram á það með sínum þjóðkunna dugnaði, hve
það væri í raun og veru bráðómöguleg pólitík, að ætla
að vinna ýmizt tii hægri eða vinstri.
Iiann sagiðst vera kominn til þess að rétta Fram-
sóknarflokkinn af. Flokkurinn hafði sem sé verið
tekinn að hallast til hægri og það mátti ekki eiga sér
stað. Samvinna til vinstri — halli til vinstri — ekkert
annað kom til mála. Þetta féll í góða jörð hjá Stranda-
mönnum. Tryggvi Þórhallsson hafði ekki til einskis
hrætt þá með íhaldinu í 11 ár. Hann sáði, en Hermann
Jónasson skar upp mjög svo glæsilegan kosningasigur
og þar með ráðherradóm.
Þetta var árið 1934.
Svo komu aftur kosningar 1937. Hermann kom á
Strandir og talaði til háttvirtra kjósenda. Það voru nú
ræður í lagi. Hann sýndi fram á það með enn meiri
dugnaði, en hann hafði húðflett hina háskalegu póli-
tík Tryggva Þórhallssonar 1934, að Sjálfstæðisflokk-
urinn væri orðinn hvorki meira né minna en hreinn
fasistaflokkur. Hann lamdi það inn í fólkið, eins og
hann væri að keyra gjarðir á tunnu, að ef Breiðfylk-
ingin kæmizt í meiri hluta, myndi hún koma fasism-
anum á umsvifalaust, og eyðileggja lífsmöguleika
85