Réttur - 01.04.1938, Qupperneq 56
minn gerður að ráðherra. Hrein framsóknarstjórn ?
Mikil eru verkin mannanna. Allt í lagi! Allt er betra
en íhaldið! En hitt verða menn svo að taka með trú-
arinnar augum, hvernig þessi stjórn ætlaði að starfa
og standa. Það er ólærðum mönnum í afskekktu hér-
aði ofvaxið að skilja.
En óhug sló þó á kjósendahjörð forsætisráðherrans
þegar hann lýsti því yfir í útvarpsumræðum nýlega,
að til mála gæti komið að mynda einhverskonar þjóð-
stjórn, þ. e. gefa íhaldinu hlutdeild í stjórn lands-
ins. Og í tilefni af þeirri yfirlýsingu geta kjósendur
þessa mæta manns tekið sér í munn hina gömlu hóg-
væru bæn: Ef það er mögulegt, þá víki þessi kaleikur
frá okkur.
En verði hún ekki heyrð, þá er sennilegt að sagan
endurtaki sig og sú stund komi, að ráðherrann verði
að standa frammi fyrir ,,háttvirtum kjósendum“ í
,sömu sporunum og Tryggvei heitinn Þórhallsson stóð
1934; því þeir verða sennilega fáir, sem vilja taka
sér í munn niðurlag bænarinnar: Ekki þó eins og ég
vil, heldur eins og þú vilt.
Páskadag 1938.
Jóhannes Jósepsson.
Hvaða möguleika hafa Jap-
anir lil alí vinna stríðið í Kína?
Þegar stríðið í Kína hófst í fyrra, munu Japanir
hafa gert sér vonir um að geta lagt landið undir sig á
mjög skömmum tíma. En þetta l'ór á annan veg. Kín-
verska þjóðin hefir sameinast til varnar og veitir nú
öflugt viðnám og hrekur Japani jafnvel til baka af
þeim svæðum, sem þeir voru áður búnir að ná á sitt
vald. Þegar þessar staðreyndir eru athugaðar hlýtur
að vakna spurningin: Hversu lengi geta Japanir, sem
88