Réttur - 01.03.1939, Síða 39
:in legðust niður. Hann telur núverandi ríkisstjórn hafa
átt þátt í góðu verði mjólkur við Mjólkurbú Flóamanna,
-en hyggur hins vegar, að sú verðhæð sé á kostnað ann-
arra mjólkurframleiðenda og telur það verr farið, og
hann segist alltaf hafa verið þeirrar skoðunar, að rétt-
,asta leiðin til þess að halda uppi verði mjólkur til bænda,
væri sú, að leggja sem mesta áherzlu á sölumagn ann-
arrar mjólkur og telur jafnvel lækkun útsöluverðs til
neytenda hugsanlega leið til þess að ná því marki.
En ekkert af þessu, sem ég enn hefi talið, veldur
úrslitum um það, hvar hann skipar sér í flokk. Það er
hreint hugsjónaatriði, menningarlegt, siðferðilegt, þjóð-
■ernislegt. Ifann vill að einstaklingurinn hafi sem mest
persónufrelsi. Hann vill, að allir hafi jafnan rétt til lífs-
ins, og hann tekur það skýrt fram, að það er mjög stórt
atriði í þessu máli, að Sjálfstæðisflokkurinn er ekki
stéttarflokkur. Þorgeir er óvinur alls stéttarmismunar
og stéttarbaráttu, og hana játar því hiklaust og ein-
dregið, þegar ég spyr, hvort hann teldi það ekki vel far-
ið, ef hann sæi leið til að afnema allan stéttarmismun
.meðal mannanna.
Þannig er viðhorf Þorgeirs á Hræringsstöðum til hug-
sjónamála mannkynsins, og út frá þessii viðhorfi fylkir
hann sér í sveit Sjálfstæðismanna. Og viðhorf þetta vil
ég kynna, af því að ég veit að þetta er einnig viðhorf
f jölda annarra greindra og athugulla alþýðumanna, sem
hafa skipað sér í þessar sömu fylkingar. Það er ekki
eins óalgengt og margur hyggur, að alþýðumenn taki
afstöðu til pólitískra flokka, án tillits til lausnar þeirra
mála, er lífsafkoma þeirra varðar. Fyrir þeim er það
sjálfsagt mál, að þeir verði að berjast í bökkum, eins
og íslenzk alþýða hefir gert alla sína daga og þeir gera
varla ráð fyrir því, að nokkur flokkur fari að ganga
á rétt þeirra til að reyna að berjast áfram á sama hátt
og verið hefir. Þeim virðist það nokkuð sjálfsagt mál,
að mjólkurbúin og kaupfélögin starfi á sama hátt, hvaða
flokkur, sem er við völd í landinu, því að sjálfir þykjast
39