Réttur


Réttur - 01.05.1967, Blaðsíða 9

Réttur - 01.05.1967, Blaðsíða 9
stigin og stóruin skakkaföllum og klofningum verið afstýrt. En það er fyrst og fremst for- sjá og sveigjanleiki stjórnar Sósialistaflokkí- ins, sem forðað hefur frá ógæfu í þeim efnum hingað til. Svo má segja að um vist skeið hafi hin vinstri sósialisliska hreyfing í Danmörku liafi engu að tapa, en allt að vinna. En okkar hreyf- ing á islandi hefur nú i aldarfjórðung liafl miklu að tapa, mikið að verja — og þarf að muna það og gæta þess í öllum sínum gerðum. SAMFYLKINGIN FRÁ 1954 Afturhaldið á Islandi og þeir menn, sem því gerast andlega háðir, lýsa gjarnan stjórn Sósíalistaflokksins sem harðsvíraðri klíku. er með bolabrögðum brjóti allt undir sig til þess að tryggja sér völd og metorð. Nú i kosninga- hríðinni var og reynt að búa til slíka grýlu- mynd. Hverjar eru svo staðreyndirnar? Við skulum rifja upp aðstæðurnar i sam- starfi Sósialistaflokksins við Hannibal Valdi- marsson um þingframboðin í Reykjavík frá ]iví það samstarf hófst á Alþýðusam- bandsþingi 1954. Hingað til höfum við sósial- istar ekki haft þær slaðreyndir á glámbekk, en rélt er að birta þær nú, þegar aðstaða vor er svo afflutt sem raun ber vilni. Mun þá sjást hver metið hefur meira hug heildarinnar og eininguna — og liver sett hefur fram óbil- gjarnastar kröfurnar: Á Alþýðusambandsþingi 1954 þegar sósial- istar og vinstri Alþýðuflokksmenn undir for- yslu Hannibals tóku höndum saman, mun eigi vera fjarri að sósíalistar og fylgjendur þeirra hafi hafl upp undir 140 fulltrúar, en að um 20 hafi fylgt Hannibal. Kjósa skyldi 9 menn í mið- stjórn. Hannibal krafðist þess að fá að ráða 7 sætum, sósialistar skyldu fá Lvö. Það var ósvífin krafa og heimskuleg, er slofnað gal valdalöku vinstri manna í hæltu. ef eigi væri hinn einlægasti agi í röðum sósialista. En þegar engu varð um þokað í átt til sanngirni og skynsemi, gekk stjórn Sósialistaflokksins að þessari óbilgjörnu kröfu. til þess að koma sam- slarfinu á. — og Alþýðusambandið vannst í hendur vinstri manna með 161 atkvæði gegn 160. — Sveigjanleiki og festa sósialista tryggði sigurinn. lJegar lil framboðs kom í lleykjavík 1956, eftir stofnun Alþýðubandalagsins, bauð Sósi- alistaflokkurinn Hannibal Valdimarssyni eðli- lega 2. sæti á listanum í Reykjavík,' en þrír þingmenn höfðu venjulega tekið sæti á Alþingi af þeim lista. stundum fjórir. Sósíalistaflokk- urinn ætlaðist til þess að Eðvarð Sigurðs- son, öruggasti og sterkasli foringi verklýðs- hreyfingarinnar yrði í þriðja sæti. — Þá kom hin óbilgjama krafa um að Alfreð Gíslason yrði í 3. sæti. Enn einu sinni var eining sam- fylkingarinnar í hættu. sakir kröfuhörku sam- starfsmannanna. Sósíalistaflokkurinn bjarg- aði enn einu sinni einingunni með sveigjan- leik sínum — eða undanlátssemi, ef menn vilja heldu orða það þannig. Við framboð til þingkosninga í Reykjavík vorið 1959 endurlók sama óbilgirnin sig. Var þó viturlegast að Hannibal liefði ]iá farið á Isafjörð, til að undirbúa framboð sitl i Vesl- fjarðakjördæmi um haustið. Enn cinu sinni var reynt lil hins ýtrasta á sveigjanleik Sósíal- istaflokksins, — raunar var öllum aðiljum of- boðið með þessum aðferðum. Einingunni bjargaði Sósíalistaflokkurinn enn einu sinni. Við framboð lil þingkosninga í Reykjavík 1963 hafði Sósíalistaflokkurinn enn sýnt mikla tilhliðrunarsemi og skilning á nauðsyn víð- feðma samfylkingar með þvi að tryggja Gils Guðmundssyni, er þá gekk lil samstarfs við Aljiýðubandalagið, efsta sæti i Reykjaneskjör- dæmi. Ætlunin var svo að fjórða sætið í Reykjavík, næst á eflir Einari. Alfreð og Eð- varð, yrði skipað Magnúsi Kjartanssyni, skel- eggasta málsvara verklvðs- og þjóðfrelsis- 65
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.