Réttur


Réttur - 01.05.1967, Blaðsíða 38

Réttur - 01.05.1967, Blaðsíða 38
rísa þeir upp sem óðir menn, entla eru þeir þá líka voðalegir, því ekkert dýr er ógurlegra en maðurinn, þegar hann er rekinn að heljar- þröminni, — og hvað mun fremur knýja menn til örvinglunar og æðis en hungur og sultur?" Eingum stæði nær en Gísla Brynjúlfssyni að vera nefndur fyrsli boðberi sósíalisma á Is- landi, og sem slíkur birtist hann einnig í ijóð- um sínum. í kjölfar Norðurfara sigldu Gestur Vest- firðingur, Reykjavíkurpósturinn og bjóðólfur heima á íslandi. Enn eitt þeirra frækorna byltínganna sem sáð var hér í örbirgðinni og fásinninu, vildum vér og telja tíðindavert. lJað var sérstæð félagsstofnun, sem er tilefni þessa greinarkorns. Kvöldfélagið Á árunum 1B61—1874 slarfaði leynilegl fé- lag í Reykjavík, Leikfélag andans, síðar nefnl Kvöldfélagið. Stofnendur þess voru í upphafi tólf: Helgi E. Ifelgesen, guðfræðíngur. Hann var alla tíð einn helzti burðarás félagsins og var kosinn forseti þess allan tímann að undantekn- um einum vetri, þegar hann var setlur um- sjónarmaður Lærða skólans. Helgi hafði nuin- ið fræði sín í Kaupmannahafnarháskóla og kynnzl þar fræðslustefnu Grundtvigs og fyrstu alþýðuskólunum, og koma þau kynni greini- lega fram í afskiplum hans af Kvöldfélaginu og ýmsu þarflegu sem lil hans iná rekja: stofn- un Lestrarfélags Reykjavíkur og fyrirleslrar- haldi um sögu og náttúrufræði sem hann stóð fyrir ásamt fleirum úr Kvöldfélaginu. Eiríkur Magnússon guðfræðíngur, síðar bókavörður í Cambridge. Steinn Sleinsen guðfræðinemi. Lorvaldur Jónsson læknaneini. Ísleifur Gíslason guðfræðinemi. Jakob Björnsson guðfræðinemi. Brandur Tómasson guðfræðinemi. L. A. Knudsen verzlunarmaður. Eyjólfui- Jónsson guðfræðinemi. Sigurður Guðmutidsson málari. Markús Gíslason guðfræðinemi. Oli Finsen verzlunarmaður. Af þeim mörgu sem síðar geingu í félagið má nefna Jón A. Hjaltalín, Jón Árnason þjóð- sagnamann, Gísla Magnússon skólakennara, Malthías Joehumsson, Hallgrím Sveinsson síð- ar biskup, Jón Olafsson ritstjóra og skáld, Sig- urð Vigfússon fornfræðíng, Kristján Fjalla- skáld, Jón Borgfirðíng, séra Svein Skúlason, Jón Rorkelsson skólakennara, séra Eggert Briem, séra Eirík Briem, séra Jón Bjarnason, séra Valdimar Briem, séra Kristján Eldjárn Lórarinsson, Árna Thorsleinsson. Félag þetta lét sér fátt óviðkomandi er að menníngarlegum efnum laut. í lögunum segir: .,Störf félagsins hin almennustu skulu vera þessi: Á samkomum ræða menn um fróðleg og vísindaleg efni; utan samkoma rita menn ritgjörðir í sömu átt, semja leikrit og ævin- týri, setja lög við innlendan kveðskap o. s. frv.“ Og þessi lög voru ekki orðin tóm. Helztu framfaramál sem þá voru á döfinni eða urðu að veruleika næstu árin voru stöðugt lil um- ræðu í félaginu. l’að stóð að og styrkti útgáfu rita, svo sem kvæða Krisljáns að lionum látn- um. Á fundum félagsins eignuðusl skáldin Matlhías, Jón Ölafsson og Kristján sína fyrslu hlustendur. Félagið styrkti Jón Olafsson til að hefja sinn lánga, sérstæða og harðskeytla blaðamennskuferil. Lað lagði fé til minnis- varða Sigurðar Breiðfjörðs og styrk lil útgáfu á æviminníngu hans eftir jón Borgfirðíng. Fé- lagsmenn Kvöldfélagsins lögðu drjúgan skerf til þjóðsagnasafns jón Árnasonar. Merkaslan hlut átli félagið að leiklist og naut þar ekki sízt Sigurðar málara, sem manna bezt kunni skil á þeim efnum. Félagsmenn gáfu Reykja- víkurbæ 1865—66 100 rikisdali af ágóða und- an geinginna leiksýnínga með það fyrir aug- um að byggt yrði „scenuhús.“ Leikril voru lesin og rædd á fundum, þýðingar Matthías- ar bar mjög á góma, og Utilegumennirnir voru sýndir 1862 og 1865—66. Ævintýri á 94
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.