Réttur - 01.05.1967, Blaðsíða 67
Ííi>pp:Í
•• - V :
^n gagnsókn hinna hvítu eykst. „H'ð óheil-
aga handalag" heldur óhindrað áfram harátt-
nnni í andstöðu við almenningsálitið í heim-
n'uni. Suður-Afríka, Portúgal og Suður-
Rhodesía styrkja stjórnmálaleg, efnahagsleg
°g hernaðarleg ítök sín.
J Mozambique hefur aðeins einn úr hópi
,nnfæddra fengið háskólamenntun í Portúgal
°" hann situr nú í fangelsi.
lJjóðfrelsisbaráttan í Mozambique hófst 25.
sePh 1964. í þrjú ár hefur fólkið barizt fyrir
elsi. Stór svæði eru nú á valdi þjóðfrelsis-
ylkingarinnar, FRELIMO. Þjóðfrelsisbarátl-
an hefur sameinað íbúana gegn hinum sameig-
inlega andstæðing. Meir en 3000 portúgalskir
■e|menn hafa fallið í baráttunni við skæruliða
I' RELIMO. Mozambique er 8 sinnum stærra
en Portúgal.
í mánaðarriti FRELIMO, Mozamhiska bylt-
ingin, ritari einn leiðtogi þeirra eftirfarandi:
„Portúgal er lítið, fátækt og vanþróað ríki.
Og þó að Portúgal njóti aðstoðar ríku þjóð-
anna í Atlantshafsbandalaginu, geta þeir ekki
sigrað þjóðfrelsisfylkingar Angóla, Guineu og
Mozambique.
Andstæðingur okkar er enn rnjög öflugur,
en barátta okkar heldur áfram og við munum
verða að færa miklar fórnir. En góður árang-
ur í baráttunni fram til þessa hefur sannfært
okkur um, að ekkert í heiminum getur hindr-
að okkur í sókn til sjálfstæðis Mozambique."
123