Réttur - 01.05.1967, Blaðsíða 30
eins o" sundurgreinantli á þjóðfélögin,
jafnt í afskekktum eylöndum sem hinum
„stóra heimi.“ Meðan verkalýðsbyllingar
í Mið-Evrópu og Finnlandi voru kæfðar í
hlóði verkanianna, fóru þjóðfrelsisbyltingar
sem sovétbyltingin einnig hafði tendrað, sem
stormur yfir Asíu. Og einnig úti á því íslandi.
er þá var enn „einbúinn í Atlantshafi,“ óx trú
fólksins á það, að hugsjón sósíalismans væri
nær til framkvæmda en menn höfðu þorað að
vona.
Margt hefur á dagana drifið þessi 50 ár. —
Slórkostleg afrek liafa verið unnin: uppbygg-
ing sósíalistískra þjóðfélaga. — Skelfingar
dunið yfir: fasismi, heimsstrið. — Ægilegar
hættur vofa yfir enn: Eyðing mannkvnsins í
atomstríði. — Heimsvaldastefna auðvalds er
enn söm við sig: Arásarstyrjöld Ameríkana
gegn hetjuþjóð Vielnam. — En stórfengleg
tæknibylting gefur fyrirheit um, að hungur-
vofunni, er þjáir „þriðja heiminn,“ verði af-
létt, aðeins ef þjóðirnar hafa vit og þor til að
grípa til sósíalistískra úrræða.
Kyndillinn, sem tendraður var i Petrograd
6. nóv. 1917, logar í dag, hvert sem litið er í
höfuðáttir heims. í Peking, í Havana, í Dar-
es-salem, i Berlín. Hann gerir ekki alltaf að-
eins að verma. Hann brennir og stundum.
En logi hans verðuj- aldrei framar slökktur.
Hann mun lýsa mannkyninu unz upphaflegri
hugsjón hans er náð: Utrýming allrar fátækt-
ar. allrar kúgunar, sem til er á jarðríki.
Þótttakcndur á heimsþingi Alþjóðasambands ungra kommúnista árið 1920. Standandi lengst til hægri
eru Brynjáltur Bjarnason og Hendrik Ottáson.
86