Réttur


Réttur - 01.05.1967, Blaðsíða 54

Réttur - 01.05.1967, Blaðsíða 54
ræða knappan framfærslulifeyri, jafnan fyrir alla, getur aldrei breytt því, að kjör manna eru nijög misjöfn á efri árum, eftir því hvort þeir njóta eftirlaunaréttar vegna starfa á lið- inni ævi auk hins almenna ellilífeyris eða ekki. Lífeyrissjóðum hefur að vísu farið fjölgandi, en vitað er, að án beinnar lagasetningar um lífeyrissjóð fyrij- alla landsmenn, muni þeir aldrei ná nema til takmarkaðs hluta þjóðar- innar. betta hafa grannþjóðir okkar á Norð- urlöndum séð og farið ])á leiðina að lögfesta almennar eftirlaunatryggingar. Hjá okkur hef- ur allmikið verið um málið rætt og nokkuð ritað, a. m. k. undanfarinn áratug — og enn er málið á vangaveltustiginu. hað hefur markverðast gerst í málinu, að árið 1964- fól félagsmálaráðuneytið Haraldi Guðmundssyni, fyrrverandi ráðherra, að semja álitsgerð um, hvort ekki sé tímabært að setja löggjöf uin lífeyrissjóð. sem allir lands- menn, sem ekki eru þegar aðilar að lífeyris- sjóðum, geti átt aðgang að. Haraldur lagði síðan fram víðtæka álits- gerð árið eftir og niðurstaða hans varð á þessa leið: „Það er fullkomlega tímabært að setja löggjöf um eftirlaunasjóð og eftirlauna- tryggingu fyrir allt vinnandi fólk til viðbótar við gildandi lífeyristryggingar.“ Reyndar kem- ur lillu síðar fram, að með orðunum vinnandi fólk er hér átt við þá, sem afla beinna tekna með vinnu sinni, en samkvæmt ])ví telst liús- móðir á 10 manna heimili ekki til vinnandi fólks. Þegar til lagasetningar kemur um alls- herjar lífevrissjóð, ])urfa ]>ví húsmæður ör- ugglega að vera vel á varðbergi, eigi hlulur ])eirra ekki að verða næsta smár. I greinargerð Haraldar koma fram mjög athyglisverð rök fyrir því að við séum sízt vanbúnari en grannþjóðir okkar til þess að koma almennu eflirlaunakerfi i framkvæmd, og Lel ég rétt að kynna hér hin lielzlu, þar sem skýrsla hans hefur ekki verið almenningi til- tæk. Hann bendir á, að markaðsverð þjóðarfram- leiðslu okkar árið 1964 hafi verið hærra mið- að við mannfjölda en i Noregi og Danmörku, en Svíar einir Skandinava borið meira úr být- um en við það árið. Við erum því tvímæla- laust efnuð þjóð, en jafnframt kom í ljós, að við liöfðum varið lægri hundraðshluta þjóð- arframleiðslunnar til lífeyristrygginga en nokkur hinna þjóðanna þriggja og næsl lægst urðum við á blaðinu, þegar athuguð voru út- gjöld til trygginga á hvern íbúa. En auk þess sem þjóðarframleiðslan er mik- il, kemur einnig í Ijós, að skipting þjóðarinnar í aldursflokka er hagstæðari hér en í hinurn löndunuin. Gamalmenni eru hér fæst að til- tölu, eða 7.2% af þjóðinni móti 11% í Sví- þjóð, en börn og unglingar innan 16 ára flest að tiltölu, eða 37% þjóðarinnarí og fjölgun fólks á starfsaldri á næstu árum verður til- lölulega örust hér. Viðbrögð Alþingis og ríkisstjórnar við |)essari skýrslu voru þau að skipa nefnd í málið og þar við situr. Málið virðist ekki sér- lega ofarlega á baugi um þessar mundir og lítið fór fyrir því í kosningabaráttunni í vor. En hér er hinsvegar um það að ræða að ná verulega stórum áfanga á leiðinni til félagslegs öryggis og jafnræðis, og hér er sérstaklega um að ræða eitt af stórmálum verkalýðshreyf- ingarinnar. Málinu ber því að fylgja fast eftir og knýja ])að fram að löggjöf um lífeyrissjóð fyrir alla landsmenn verði sett í velur og hún verði ])annig úr garði gerð, að hún komi öllu vinnandi fólki að fullu gagni. Adda llúra Sigjúsdóttir. 110
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.