Réttur


Réttur - 01.05.1967, Síða 19

Réttur - 01.05.1967, Síða 19
„Jæja þá, karlinn. Sjáðu til. Þér ferst á- byggilega ekki að vera að brúka neinn kjaft. Þú ert ekki í svo háum metum hérna. Ef ])ú opnar ekki á stundinni kalla ég á vertinn og ])ú skall verða rekinn.“ Þótt slikur liðsauki hlyti að tákna algjört ofurefli, raskaði slíkt ekki ró íbúa herbergis- ins. Hann svaraði eins og Spartverjar í Lauga- skarði hefðu gert í svipaðri aðstöðu: „Þá getið ])ið bara brotið upp dyrnar!“ Stúlkan snerist á hæli og gekk burt. Pilt- urinn stóð eftir i sömu sporum og vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið. En varla var stúlk- an horfin niður stigann þegar lykli var snúið í skránni fyrir innan og dyrnar rifnar upp. „Inn með ])ig.“ Honum var kippt inn fyrir og síðan lokað á ný. „Fjandans merin, — gott hún fór.“ Hann blés og ballaði sér með upp- rétt höfuð að hurðinni. Augun voru brún, stór og gljáandi, eins og í drykkjumanni. Hár- ið var úfið og á hökunni dálítill skegghýjung- ur. Hann var berfættur í splunkunýjum vinnu- buxutn, en nærskyrtu einni að ofanverðu, svo óhreinni að gestinum varð starsýnt á. „Fjand- ans merin. Nú klagar hún mig fyrir vertinum.“ Hann glotti stórt og renndi augunum í þá átt sem stúlkan hafði farið. „En hún gelur klagað ef hún vill. Þá drep ég hana. Svo má nú líka minna hana á ýmislegt.“ Hann hló, sveiflaði vöðvarýrum handleggjunum og flevgði sér niður á legubekk við vegginn. Eftir að hafa horft upp í loftið nokkra stund með einkenni- legt bros á vör, reis hann upp við dogg og tók upp sígarettupakka. „Viltu reykja?“ Pilturinn hikaði. Hann hafði að vísu próf- að að reykja þegar hann var í bvggingarvinnu hjá kaupfélaginu fyrir norðan, en aldrei kom- izt vel upp á lagið. Svo hafði það lika verið pípa sem hann var að fikta við. En áður en hann vissi af hafði hann rétt fram höndina og hinn bar að honum sígarettukveikjara með ])riggja þumlunga eldloga. A aðra hönd í herberginu var annar dívan og nokkrar ábreiður. Þar settist hann og hall- aði sér upp að veggnum. Þetta var lítið her- bergi. Yfir rúmi þessa nýja kunningja bans var gríðar-stór mynd af ljóshærðri stúlku i rauðum baðfötum, með smurningsolíudós i bægri hendi, sem hún hélt hátl á loft. Ekki hafði listamaðurinn dregið af sér við að und- irstrika hin kvenlegu einkenni og pilturinn að norðan gat ekki slillt sig um að ígrunda hvort önnur eins kona að líkamlegu atgervi finnd- ist á Islandi. Fyrir norðan var bún ekki til. Það var bann viss um. Pilturinn í rúminu reykti og reykti. Þykkir bólstrar stigu upp af vitum hans og það snarkaði i sigarettunni, þegar hann saug til sín reykinn í löngum sog- um. „Já, helvítis stelpan hún Metta. Var hún nokkuð að tala um mig áður en þú komst hingað?“ Pilturinn hrökk upp úr hugleiðingum sín- um um stúlkuna á myndinni. „Ha, — um þig?“ Hann lézt hugsa sig um. „Eg held hún hafi sagt að þú ynnir við benz- ínafgreiðsluna.“ „Ekkert fleira?“ „Nei, hún sagði ekkert fleira.“ „Ja, ég hélt kannski, að hún hefði verið að rægja mig. Eg veit að hún gerir lílið annað. En ef ])ú skyldir heyra hana rægja mig þú láttu mig vita það.“ Hann seildist eftir fingur- löngum sívalning undir koddanum sínurn og settist fram á. „Eg hef nefnilega sagt henni berum orðum, að ef hún er að rægja mig og ég fæ fullar sannanir um það þá drep ég hana.“ Þessum orðum sínum til áherzlu þrýsti hann á lítinn svartan hnapp á sívalningnum og með lágum smelli skrapp fram stutt blikandi hnífs- blað. „Þelta kvað gefast vel í Ameríku,“ sagði hann. „Fjöldamorðinginn sem drap allar kon- urnar í Mexico notaði einmitt einn svona. En ég verð að fá fullar sannanir. Þú skilur að ég verð að hafa fullar sannanir.“ Pilturinn kinkaði kolli. Hann liafði ekki augun af þessu hryllilega morðtóli og var hálf- órótt, ])ví eftir orðum hins mátti hann vel eiga 75

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.