Réttur


Réttur - 01.05.1967, Blaðsíða 15

Réttur - 01.05.1967, Blaðsíða 15
Fjöllin, hálsarnir, túnin og annað það sem liann hafði daglega fyrir augum heima, allt var þetta horfið sýnum. I úrhellisrigningu á laugardagsmorgni hafði hann slitið tengzlin við heim æskuára sinna og tekið fari með flutningabíl á vit ]>ess ókunna. I’að hafði vak- ið honum nokkra furðu með hve litlum trega hann kvadrli heimaslóð sína, þar sem hann hafði þó átt heima frá því hann mundi eftir sér fyrsl. En hann hafði fundið að forlögin œtluðu honum að starfa og lifa annars stað- ar, og á undarlegan hátt hjó sú vissa um sig í honum að hann mundi aldrei snúa til baka. Bílstjórinn hafði kveikt á útvarpinu og brátt heyrðist hæg tónlist, blönduð lágu suðu- hljóði, sem kom frá einhverri stöð í fjarlægu landi. Lengi vel lék amerísk danshljómsveit róleg lög. Bílstjórinn leit aftur á úrið sitt og sté þéttar á benzíngjöfina. Hljóðið í vélinni varð samfelldara og hraðinn jókst. Skyndilega lauk pilturinn upp augunum. Hann hreyfði sig ekki en horfði á daufgræna birtu mælanna fyrir framan hann nokkra stund. Svo leil hann á bílstjórann sem horfði stöðugt beint fram og kreppti hendurnar um stýrishjólið. Hann hafði brett ermarnar upp fyrir olnboga. Á framhandlegg var tattóveruð mynd af skútu sem sveif fyrir þöndum seglum. Bílstjórinn var maður á léttasta skeiði, hár, grannholda og skarpleitur. Á höfðinu bar hann gult kaskeiti. sem hann tók helzl ekki ofan nema brýn nauð- svn ræki hann til ]jess. Varirnar voru þunnar og milli þeirra velkti hann hálfreyktri sígarettu sem slokknað hafði í nokkrum kílómetrum norðar. „Hef ég sofið lengi?“ spurði pilturinn, reis snögglega upp og þrýsti andlitinu að rúðunni. til að sjá sem bezt fram fyrir sig. „Erum við bráðum komnir?“ Bílstjórinn teygði sig að útvarpinu og lækkaði hljómlistina. „Hálfnaðir, — svona bráðum,“ svaraði hann. „I’egar við komum að Veitingaskálan- um erum við nákvæmlega hálfnaðir. Það er ekki svo langt. Við sjáum hann rétt á eftir.“ Hann leit ekki á farþega sinn meðan hann sagði ]>elta, en horfði stöðugt fram. „Hefurðu nóga jjeninga með þér?“ spurði hann svo, eins og upp úr þurru. Pilturinn svaraði ekki strax, en þreifaði eftir einhverju í hægri jakkavasa sínum og síðan í þeim vinstri. „Já, það held ég,“ sagði hann svo. „Hvað kostar ferðin?“ „Hugsaðu ekki um það. En við gistum lik- lega í Veitingaskálanum, og ]>að kostar nokkr- ar krónur. Við höldum svo áfram um hádeg- isbilið á morgun.“ Hinn kinkaði kolli til samþykkis, þótt ])etta væru honum nokkur vonbrigði. Ferðin var víst lengri en hann hélt. Hann hafði vonazt til að koma til höfuðborgarinnar þá um nótt- ina, — já, einmitt um þetta leyti. En bezt var að láta slíkt ekki uppi. Það hlaut að vera ófyr- irgefanleg fákunnátta að vita ekki betur skil á þessari leið. Þeir voru nú komnir niður á láglendi og vegurinn lá þráðbeinn og sléttur framundan. Á báðar hliðar voru snyrtilegar girðingar og nýslegið valllendi. Þetta landslag var ólíkt ])ví sem hann átti að venjast fyrir norðan, og þótt það kæmi honum ekki beinlín- is á óvart, fannst honum hann vera að halda inn í annað land, land, sem hann þekkti varla nema af afspurn. Hann dró djúpt andann og leit í kring um sig. Honum þótti hann þegar sjá móta fyrir fjölda nýrra viðfangsefna. Því sunnar sem hann kæmist, því nær yrði hann því að geta hafist handa. Hendurnar kreppt- ust saman, eins og þær vildu þegar taka til við eitthvað, hjól, hamar, stjórnstöng, — eitthvað! Nú tók pilturinn eftir að bílstjórinn varð þungur á brún. Hann leit fram og sá þá tví- Ivft vault timburhús. bægra megin vegarins. Hann horfði ákafur í áttina. Þetta hlaut að vera Veitingaskálinn. Við framhlið hússins stóðu tvær benzíndælur frá SHELE-félaginu, og einmitt i þessu var verið að fylla á stóran svartan fólksbil með afarháa loftnetsstöng. Við stöngina var fest blaðra, sem slóst til og frá. Handan vegar var þjóðfáninn við hún. En mesta athvgli hans vakti hinn mikli fjöldi bif- reiða kring um húsið. I fvrstu datt honum í 71
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.