Réttur


Réttur - 01.05.1967, Qupperneq 29

Réttur - 01.05.1967, Qupperneq 29
„Er til ríkis kominn kannske karlssonur úr garðshorninu." spyr Stephan G. Stephansson i kvæðinu „Rols- hevikki,“ er hann yrkir 1918 og enrlar svo: ,,Er hann heims úr böli boginn, blóðugur að' rísa og liækka, múginn vorn að máttkva, stækka? Sannleiksvotlur, Ivtum loginn! Ljós, sem fyrir hundrað árum Frakkar slökktu í sínum sárum? Lítilmagnans morgunroði? Fót-troðinna friðarboði?“ „Mesti maðurinn meðal íslenzkra skálda,“ eins og Sigurður Nordal prófessor segir um Stephan G., tók hiklaust afstöðu með livltingu alþýðunnar. Lessi skáldjöfur Islendinga, sem þrælaði sem bóndi á jörð sinni á daginn og orti sínar „Andvökur“ á nóttunni, hafði og fyrstur íslenzkra sósíalista gert upp sakirnar, er sósíaldemókratar gáfust upp fyrir þjóð- rembingi auðmannastétta og léðu sig til þess að fórna verkalýð landa sinna á vígvöllum heimsvaldastríðsins 1914—1918. í „Vopna- hlé“ 1915 hafði hann lýst sorgarleik þessa verkalýðs og minnzt jieirra Karls Liebknechts, Jean Jaures og Keir Hardie, er hugrekki höfðu haft til að rísa gegn styrjaldarfárinu eins og rússnesku bolsévikkarnir. Endurhljómur hinnar sigursælu sósíalistísku byllingar I Rússlandi verður æ slerkari meðal íslendinga. í „Alþýðublaðinu" í Reykjavik og „Voröld“ í Winnipeg fer samúðin með bolsévikkum sívaxandi á árinu 1919. Sumarið 1920 sækja í fyrsta sinn íslenzkir fulltrúar þing kommúnistískra heimssamtaka í Moskvu. Brynjólfur Bjarnason og Hendrik Ottósson, ungir stúdentar þá, sitja heimsþing Alþjóðasambands ungra kommúnista. Vorið 1921 kemur út bókin „Byltingin í Rússlandi“ eflir Stefán Pétursson, einnig ung- an slúdenl. Aðdragandi byltingarinnar er rak- inn í 150 blaðsíðna bók. eins og koslur er, með þeim heimildum, er þá voru fyrir hendi, og boðskapur bolsévismans boðaður með þeim eldmóði, er einkenndi fylgjendur byltingarinn- ar og sósíalismans. Bókinni lauk með þessum orðum um „kommúnistana — herskara nýja tímans“: „Þeir berjast fyrir háleitri hugsjón, sem fyllir þá guðmóði. Eramtíðartakmarkið er, eins og Bucharin segir, ,,að gjöra enda á allan þrældóm og alla kúgun, sem til er á jörðinni“.“ Rit byltingarleiðtoganna rússnesku taka að berasl til Islands á Norðurlandamálunum, les- in með áfergju af ungum slúdentum og verka- mönnum. Meðal þeirra, er vinsælust voru á þessum árum, voru: „Stafróf kommúnismans“ (Kommunismens ABC) eftir Bucharin og Pre- obrashenski, — „Stefnuskrá kommúnistanna“ eftir Bucharin, og „Þróun sósíalismans frá vísindum til framkvæmda“ eftir Karl Radek, sem lýkur bókinni með svohljóðandi tíma- setningu, táknrænni fyrir eldmóð augnabliks- ins: „Moskvu, í september 1918, þegar Lenin, hjarta og heili heimsbyltingarinnar, barðist við dauðann og sigraði.“ Oldurnar rísa hærra og hærra, og það tekur að skerast æ meir í odda, einmitt vegna tengsl- anna við rússnesku byltinguna. Sumarið 1921 fara þeir Arsæll Sigurðsson slúdent og Ölafur Friðriksson, þá ritstjóri Al- þýðublaðsins, brautryðjandi fyrir sósíalistíska verkalýðsbreyfingu og þá valdamesti maður Alþýðuflokksins, sem fulltrúar á 3. þing Al- þjóðasambands kommúnista. Ólafur kom heim um haustið með ungan rússneskan dreng, Nathan Friedmann, son kommúnistaleiðtoga í Voronesj, sem hvítliðar höfðu drepið. Ut af þeim dreng hlauzt „hvíta stríðið“ svokallaða í nóvember 1921, átök, sem leiddu til þess, að afturhaldið á íslandi vopnaði í fyrsta sinn hvítliðahóp til þess að taka Ólaf Friðriksson og fleiti höndum og settu þá í fangelsi, en drengurinn var fluttur úr landi. En innan sós- íalistísku verkalýðshreyfingarinnar kom í þessu tilefni til fyrstu alvarlegu átakanna milli hægri og vinstri armsins. Þannig voru áh'rif rússnesku byltingarinnar 85
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.