Réttur


Réttur - 01.05.1967, Page 33

Réttur - 01.05.1967, Page 33
BYLTINGIN í GÍNEU Nokkrir blaðamcnn fró tímaritinu W.M.R. óttu nýlega tal við Sékou Touré, forseta Gineu og for- mann Lýðræðisflokksins. Aður en forsetinn svaraði spurningum þcirra gerði hann grein fyrir óstandinu i Gineu á tíma nýlenduvaldsins, forsendunum fyrir og nauðsyninni á stofnun Lýðræðisflokksins og hlut- verki hans i stéttabaróttunni og þjóðlifinu almennt. Einnig ræddi hann gerð hins nýja þjóðfélags, at- vinnulíf og mcnningarmól, og að lokum viðhorf sin til nokkurra þeirra móla, sem nú eru efst ó baugi i heiminum. Er þessi inngangur allur hinn fróðlegasti, en rúmsins vegna verður Réttur að sleppa honum. Svör forsetans við spurningum blaðamannanna birtast hér oll mikið stytt. Hvað er helzt framundan ó hinni nýju leið Gíncu ón kapítalisma? Um tvær leiðir var að velja. Annars vegar yfir- róð einkaauðmagnsins og arðrán alþýðunnar — leið kapítalismans. Hin leiðin var að segja skilið við kapitalismann. Við erum oft að þvi spurð hvort sú leið liggi ekki til sósíalisma. Við svörum því að hún sé viIjayfirlýsing um sósialisma. Sósialisminn er ákveðið þróunarstig, sem kommúnisminn siðan leysir af hólmi. Allar leiðir, sem hafna arðráni og kúgun eru ekki kapítaliskar. Sósíalisminn er ein þeirra, kommúnisminn önnur — eru sama eðlis. Grundvöllurinn, sem byggt er á er hagsmunir al- mennings, afnám hverskyns arðráns og firringar, samfélagslegt réttlæti, öryggi og samræmd fram- þróun manns og þjóðfélags. i þessu Ijósi skilgrein- um við leið okkar — af sjónarhól áframhaldandi sögulegra framfara . . . Hin ekki-kapítaliska leið byggist á algerðu og heilsteyptu lýðræði. Við tökum okkur sjaldan í munn orðið sósíalismi, er þar öðruvísi farið en mörg- um ríkisstjórnum í Afríku sem eru si og æ með það á vörunum, en hafa ekkert gert til að koma á lýð- ræði hjá sér eða beita sér fyrir framförum í þágu almennings — þvert á móti hafa þær skapað kapí- talismanum ákjósanlegri jarðveg en nokkru sinni fyrr. Fjármálakerfi þeirra er á nýlendustigi, allir bankar og framleiðslutæki i höndum kapítalista. En fyrir gaspur þeirra um sósíalisma og yfirlýsingar eru þeir margir, sem telja þessi ríki standa Gíneu framar.......... Það er algeng skoðun að sósíalismi hæfi aðeins háþróuðum iðnaðarlöndum — ekki-kapítaliska leið- in vanþróuðum löndum. Að okkar áliti er sósíal- ismi ekki bundinn við tækniþróunarstig, heldur gerð stjórnarkerfis, skipulag efnahags- og þjóðlífs, for- ustu alþýðunnar, samræmda og jafna þróun í stjórnarfari, efnahags- og menningarmálum og sið- ast en ekki sízt sósíaliskri hugsun...... Hvað segir þér um erlenda fjárfestingu i Gíneu? Það er fyrst og fremst alþýðan í landinu, sem gerir efnahagsþróunina að veruleika, en þar njót- um við stuðnings vinsamlegra ríkja, sem láta okkur i té nauðsynlega tækni- og efnahagsaðstoð. Hvort heldur hún er ókeypis eða gegn greiðslu breytir engu um það að ávextirnir verða eign alþýðunnar í Gíneu. Það er aðeins í nárnuiðnaðirum að við leyfum ennþá erlenda fjárfestingu. bannlg er um alúmin- verksmiðjurnar í Fría sem framleiða um 520 þús. 89

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.