Réttur - 01.05.1967, Qupperneq 41
lángri tölu; svaraði Jón henni í vel völdum
orðum. Þó er það fyrst á öðrum fundi það-
an frá (dagsetníngu vantar í gerðabók) að
hiti færist að marki í umræðurnar. Jón tók þá
fyrstur til máls og dró saman mál sitt:
„Þegar talað er um stefnu þessara tíma,
þá er að tala um andlegt jrelsi og almenn
mannréttindi, til hins fyrra heyrir frelsi í vís-
indalegum efnum og í trúarefnum, til hins síð-
ara kvenfrelsi og sósíalt frelsi (sósíalismus).“
Eiríkur Briem var andmælandi og mælti
svo: „Siðast var ekki rætt um stefnu límans
eins og hún er, heldur eins og frummælandi
óskaði að hún væri. Viðvíkjandi rétti skyn-
seminnar, sem talað var um að heyrði til stefnu
tímans, þá er langt frá því að hann sé viður-
kenndur, jafnvel af hinum merkustu og mennt-
uð'ustu þjóðum. Dæmi: Danir leggja aðeins
12000 ríkisdali til vísindalegra starfa, og þykj-
ast miklir af, en hvað er slíkt nema krækiber
í helvíti? Feuerbach, einn hinn mesti og ágæt-
asti vísindamaður veraldarinnar, deyr í sumar
er leið í örbirgð og volæði. Stuart Mill segir
að i pólitískum rétti etc. hafi heiminum ekki
Sigurður Guðmundsson
þokað áfrain síðan á dögum Sókratesar. Við-
víkjandi kvenfrelsinu þá er það að segja, að
það er lítt viðurkennt, enda er það ósatt að
kvenfólk sé í nokkrum þrældómi. Enn þá síður
einkennir sósíalismus stefnu tímans, því þó
hann sé að vísu allmikið úthrciddur, þá er það
þó lítill hluti mannkynsins, sem þeirri stefnu
fylgir.
Jón Olafsson: Andmælandi ranghermir alll
mitt mál, og þykist þó ekkert hafa af því heyrt.
(Vrövl í nokkurn tíma). Eg er sósíalisti, eman-
eipalionisti, rationalisti etc. og þykir æra að
því öllu saman. Það er ekki stefna tímans, sem
flestir eru á, heldur það, sem allt stefnir að
að verða muni. Það er ekki satt að sósíalistar
hafi nokkursstaðar dóminerað fyrr en á þess-
um tíma, en einmitt nú dóminera þeir. (Vrövl
í nokkurn tíma). Kvenfrelsi er ekkert; þær
konur hafa ekki fjárráð og mega ekki afla sér
fjár. Kvenfólk má ekki hiðja sér karlmanna.
Er það ekki guðlaust hvernig farið er með
kvenfólkið. Stuart Mill helvítis lýgur að heim-
inum liafi ekki þokað fram í pólitískum rétti
síðan á dögum Sókratesar; deinókratie hefur
Motrhias Jochumsson 1871
97