Réttur - 01.11.1967, Qupperneq 24
PRESTES SJÖTUGUR
ÞANN 3. JANOAR 1968 VARÐ LUIZ CARLOS PRESTES AÐALRITARI
KOMMÚNISTAFLOKKS BRASILÍU SJÖTUGUR. UM NAFN ÞESSA LEIÐ-
TOGA ALÞÝÐUNNAR í BRASILÍU STENDUR ÆFINTÝRALJÓMI. HANN
OG FLOKKUR HANS EIGA AÐ ÐAKI HINA HETJULEGUSTU SÖGU
í LANGRI OG ERFIÐRI FRELISBARÁTTU ALÞÝÐUSTÉTTANNA
í SUÐUR-AMERÍKU.
Sósíalistaflokkur Brasilíu var stofnaður 1916
og tók 1921 þá ákvörðun að ganga í Alþjóða-
samband Kommúnista og hét upp frá því
Kommúnistaflokkur Brasilíu. Var Prestes leið-
togi hans frá uphafi.
Frægastur varð Prestes ög flokkur hans fyrir
„herferðina löngu", er þeir fóru á árunum 1924
til 1927 í gegnum frumskóga Brasilíu 25.000
kílómetra leið. Höfðu þeir beðið ósigur í upp-
reisn alþýðunnar og björguðu því, sem bjarg-
að varð með þessum langa „marsi". Prestes
hafði 28. október 1924 leitt hermenn f Rio
Grande do Sul til uppreisnar gegn afturhalds-
stjóminni. Ferðin á eftir frá suðri til norðurs
gegnum endilanga Brasilíu tók 2'A ár, hennl
lauk í febrúar 1927.
Heimskreppan 1929 hafði ægileg áhrif í Bras-
ilíu. Stéttamótsetningamar hörðnuðu. Getulio
204
Vargas braust þá til valda, hafði m. a. hagnýtt
sér í lýðskrumsaugnamiði vígorð Kommúnista-
flokksins gegn heimsvaldastefnunni. Vargas
bauð Prestes að verða hermálaráðherra sinn,
en Prestes neitaði. Stjóm Vargas tók að þróast
í átt til harðstjórnar.
Undir forystu Prestes tókst 1935 að mynda
víðfeðma þjóðfylkingu kommúnista, sósíalista,
stúdenta, verkamanna o. fl. Brátt kom til verk-
falla. Hluti af hernum gekk í lið með verkfalls-
mönnum. Það kom til borgarastyrjaldar. Verka-
menn höfðu stóra hluta landsins á valdi sínu.
En Vargas tókst að sigra þá 1936 og hófst nú
hin versta ofsókn. Hundruð verkamanna voru
drepnir. Þúsundir voru pyndaðir.
Prestes var dæmdur í 16 ára fangelsi — og
síðar var bætt við 30 ára fangelsisdómi. Og
meðan hann sat í fangelsinu, var kona hans