Réttur - 01.11.1967, Síða 31
JAIME GONZALEZ
UPPREISNARHERINN
í KÓLUMBÍU
Tvö undanfarin ár, 1966 og 1967, hefur
skæruhernaður vopnaðra bænda undir for-
ystu kommúnista færst í aukana í Kólumbíu.
Aðalsamtökin, sem að þessum skæruhernaði
standa, heita „Fuerzas Armados Revolucion-
arias de Columbia“, eða FARC (Vopnað bylt-
ingalið Kólumbíu). í byrjun október s.l. hélt
herstjórnin fund til þess að líta yfir farinn veg
og meta ástandið.
Það hefur komið í ljós að skæruliðar FARC
hafa staðist vel þær árásir, sem ríkisstjórn
Lleras Restrepo hefur gert á þá með banda-
rískri aðstoð, og hafa þær árásir þó verið
mjög harðvítugar.
Ríkisstjórn afturhaldsins hefur gripið til æ
meiri harðstjórnar. Pyntingum og aftökum án
dóms og laga er heitt í æ ríkari mæli.
Kommúnistaflokkur Kólumbíu ákvað þegar
á 10. flokksþingi sínu í janúar 1966, að óhjá-
kvæmilegt væri að grípa til vopna og beita
þeirri baráttuaðferð við hliðina á löglegri
haráttu í bæjunum. Hefur reynslan sannað
hve óhjákvæmilegt það var. Var FARC raun-
verulega stofnað í apríl 1966 með því að sam-
eina skæruliðana í Marquetalia, Rio Chiquito,
Pato og Guayabero, ennfremur hreyfingu þá,
sem kennd er við 26. september og skærulið-
ana í suðurhluta Tolimo. Þannig varð alþýðu-
her Kólumbíu til. Foringi hans varð Manuel
Marulanda Velez, herstjóri FARC og meSlim-
ur miðstjórnar Kommúnistaflokksins.
Vorið 1967 hóf skæruliðaherinn sókn og
brauzt fram til Valle del Cauca og Quindio-
héraðanna, en þar er þéttbýlt og iðnaður all-
mikill. Ennfremur eru þar mikil kaffiræktar-
svæði.
I október var hafin sókn af hálfu FARC í
norðurhluta landsins, í Santander-héraðinu,
og kennd við Che Guevara („Operation Che
Guevara“).
FARC heyr því barátlu nú bæði norðan til,
sunnan til og í miðju landi. Hefur Kommún-
istaflokkurinn undirbúið jarðveginn með ára-
tuga starfi meðal bænda. Þegar stjórnarher-
inn réðst á bændaherina ó þessum slóðum,
svöruðu þeir með skyndiáhlaupi á höfuðborg-
ina.
FARC leggur mikla áherzlu á að halda sem
beztu sambandi við bændaalþýðuna. í ályktun
skæruliða segir: „Við vitum að það er löng
barátta framundan. Við höfum misst margt
manna. En við vitum að leppstjórn auðvalds-
ins, sem rekur erindi bandarísku heimsvalda-
stefnunnar, getur ekki leyst vandamálin. Eina
211