Réttur


Réttur - 01.11.1967, Blaðsíða 40

Réttur - 01.11.1967, Blaðsíða 40
Wassili Jemeljanow próíessor. inn, sem dáist að hinum undrafljótu framför- um á því erfiða sviSi. Fátæki trésmiSssonurinn frá Baku er orSinn einn viSurkenndasti vísindamaSur heims. Hann hefur átt höfuSþátt í því aS umskapa eitt frumstæSasta land veraldar, — sem hélt alþýSu manna ólæsri og óskrifandi — í annaS mesta vísinda- og iSnaSarveldi heims, -— í krafti sósíalismans. EITRAÐ FYRIR INDÍÁNA Sögu hinnar hryllilegu meSferSar, sem Indí- ánar hafa sætt af hendi hvítra manna frá því hinir síSarnefndu stigu á land í Ameríku, er ekki lokiS enn. Fyrir nokkru upplýsti rómversk-kaþólskur prestur, Valdemar Weber aS nafni, aS hvítir gúmmísafnendur hefSu útrýmt hálfum ætt- flokki Indíána á AmazonsvæSinu meS því aS setja arsenik í sykur, er þeir gáfu þeim. GúmmígræSgin leiSir — eins og gullgræSg- in fyrrum, — hvíta braskara til glæpaverka. 220 Ákærur prestsins virSast hafa viS rök aSstySj- ast. Sú stofnun Brasilíustjórnar, sem hefur meS mál Indíána aS gera („Indian Protective Service“) tilkynnti landbúnaSarráSherranum jjetta og staSfesti glæpinn og skipaSi ráSherr- ann þá rannsóknarnefnd í máliS. ÞaS er ættflokkur Tapanhumas, sem hefur aS hálfu veriS þurrkaSur út meS þessari eitr- un. ASrir 35 ættflokkar Indíána í Brasilíu eru í hættu. Hvítu gúmmísafnendurnir ágirnast lönd Indíána og vilja annaShvort drepa ])á eSa neySa J)á til aS flýja æ lengra inn í frumskóg- inn, — eins og þeir hafa veriS aS gera í 500 ár. I Brasilíu eru 110 þúsund Indíánar, sem lifa enn aS fornum hætti. ÞaS má minna á þaS úr sögunni af fram- ferSi hvíta mannsins annars staSar, aS Púrí- tanarnir í NorSur-Ameríku, sem ekki hefSu lifaS af fyrsta landnema-veturinn án hjálpar Indíána, fóru oft aS veiSa Indíána á sunnu- dögurn eftir messu. Og hvítir menn í Ástralíu lögSu lönd frumbyggjanna oft undir sig meS ])ví aS setja eitur í vatnsbólin, sem frumbyggj- arnir notuSu. HerferS hvítra morSingja gegn íbúum ann- arra heimsálfa nær hámarki sínu í útrýmingar- herferS BandaríkjaauSvaldsins gegn Víetnam. Einnig þar er eitri stráS auk annarra aSferSa til múgmorSa. En þaS er nauSsynlegt aS fylgjast meS aS- ferSum braskara og auSmanna hvar í heimi sem er, því alstaSar er ferill þeirra stráSur glæpum og hlóSi. ANTI- APARTHEID „Réttur“ hefur áSur skýrt frá þeirri hetju- legu baráttu, sem háS er gegn kynþáttakúgun- inni í SuSur-Afríku og sérstaklega rakiS har- áttu Abram Fischer og Mandela. Fyrir þá les- endur, sem vildu afla sér frekari gagna um fasistíska kúgun SuSur-Afríku-stjórnar, skal J

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.