Réttur


Réttur - 01.11.1967, Blaðsíða 43

Réttur - 01.11.1967, Blaðsíða 43
dvölin í fangelsum og fangabúðum. Búist er við framlialdi af þessu riti. OII er þessi frásiign ágætlega rit- uð. Endurminningamar ljósar, sterkur persónuleiki yfir öllu ritinu, — og sterk viðleitni til þess að skil- greina rétt þá óheillaþróun, sem þarna var að gerast. Og það er undravert — eins og lijá Drabkínu, — að koma með ó- skert sálarþrek út úr slíkri ranglátri fangabúðarvist hjá eigin yfirvöld- um og hafa allan tímann haldið sinni sannfæringu og standa fast á henni enn. Sýnir slíkt bezt hvílíkur persónuleiki það er, sem hér heldur á penna. World Marxist Review. 8. hefti 1967. — Prag. Þetta hefti er fyrst og fremst helgað sósíalistisku byltingunni miklu í Rússlandi og 50 ára afmæli liennar. Eru það fyrst og fremst ræður þær og ritgerðir, sem fram koniu á ráðstefnu þeirri, er ritstjórn tímaritsins gekkst fyrir að haldin var í Prag 22.—24. júní. Birtast því í þessu hefti m. a. greinar eftir þessa forystumenn: To/lor Pawlow, framkvæmda- nefndamaður í kommúnistaflokki Búlgaríu (um þróun heimspeki marxismans), Vladimir Koucky, rit- ari kommúnistaflokksTékkóslóvakíu (um alþjóðahyggjuna), Ernesto Siu- (lici, úr miðstjóri kommúnistaflokks Argentínu, Santiago Alvarcz, úr framkvæmdanefnd kommúnista- flokks Spánar (mjög eftirtektarverð grein tim byltinguna, myndun komm- únistaflokkanna og hlutverk þeirra í söguþróuninni), Franco Calaman■ tlrei. úr miðstjórn Kommúnistaflokks Ilalíu (um skapandi marxisma og pólitískt frumkvæði flokksins), Iz- adj Eskandari, einn af foringjum Tudeh-flokksins í Iran (byltingin og þróun hugtaks ættjarðarástar). Þá koma og margar greinar, er fjalla um ýms vandamál hinna ein- stöku landa og októberbyltinguna, og að lokum ýmsar greinar um dæg- urharáttnna, m. a. í Astralíu, Vest- ur-Þýzkalandi, ísrael og Araba- löndum. World Marxist Review. 10. hefti 1967. — Prag. 1 þetta hefti ritar Fiirnberg, aðal- ritari Kommúnistaflokks Austurrík- is, inngangsgreinina um nauðsyn á einingu allra lýðræðisafla. Síðan koma greinar, er fjalla um vandamál Nígeríu, haráttu Araba og stríðið í Víetnam. En höfuðefnið er helgað 50 ára afmæli byltingarinnar. Fyrst kemur greinaflokknr, þar sem ýmist fremstu menn vísinda og lista rita um hyltinguna og heims- menninguna. Má þar m. a. nefna hrezka nóbelsverðlaunahafann Hcr- nal, er ritar um vísindin í sambandi við hyltinguna, tónskáldið D. Schos- takowitsch, um músík, — skáldið P. Neruda, um skapandi menntafólk og hyltinguna, Rockwell Kent, mál- arann ameríska, um fegurðina, — N. Scmjonov, nóbelsverðlaunahaf- ann fyrir eðlisfræðiafrek sín, ura vísindi byltingarlandsins, — o. fl. o. fl. Síðan er lialdið áfram að birta greinar þær og ræður, er fram komu á Prag-ráðstefnunni í júní. Meðal höfunda eru: Duclos, hinn frægi franski kommúnistaleiðtogi, Rodny Ohman, sænski kommúnistinn, og P. Martinnúiké, finnskur kommúnisti. Skrifa þau öll um byltinguna og verklýðshreyfingnna í Vestur-Ev- rópu. Þá koma greinar um rómönsku Ameríku og kúgunina í lndónesíu. Ennfremur um ofsóknirnar gegn kominúnistum í Argentínu. Að lok- tim er grein um Kathe Kollwitz, sem útdráttur hefur hirzt úr í Rétti. World Marxist Review. 11. hefti 1967. — Prag. Þetta er hátíðahefti — nóvemher- hefti, helgað hálfrar aldar afmæli byltingarinnar að mestu leyti. Leonid Breshnew, aðalritari Kommúnistaflokks Sovétríkjanna, ritar inngangsgreinina: Fram til nýrra sigra kommúnismans. Síðan koma viðtöl við ýmsa for- ystumenn úr byltingum kommún- ista, um áhrif byltingarinnar al- mennt og sérstaklega í löndum þeirra. Meðal annarra er rælt við þessa: Walter Ulbricht, aðalritara Sósíal- istiska Einingarflokksins í Austur- Þýzkalandi. Jumshagin Zedenbal, aðalrilari mongólska byltingarflokksins. Zenon Kliszko, einn af helztu lcið- togum pólska Verkamannaflokksins. Jiri Hendrych, ritara Kommún- istaflokks Tékkóslóvakíu. W aldeck Rochet, aðalritari franska kommúnistaflokksins, ræðir bylting- una og baráttu franskra kommún- ista. Villc Pessi, aðalritari finnska kommúnistaflokksins, ræðir hylting- una og Finnland. Reza Radmanesh, formaður Al- þýðuflokksins í Iran (Ttrdeh-flokks- ins), ræðir hvílíkt fordæmi hylting- in var fyrir perneskn alþýðuna. Aldo Tortorella, einn af foringj- iim ítalska komnrúnistaflokksins, rit- ar iim hyltingiina og verklýðslrreyf- ingn Italíu. Stanley B. Ryerson, cinn af heztu 223

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.