Réttur


Réttur - 01.11.1967, Síða 26

Réttur - 01.11.1967, Síða 26
urinn 600.000 atkv. eða um 10% allra greiddra atkvæða, — 14 þingmenn á þjóðþingið og einn í öldungadeildina, Prestes. En íhaldið vann samt. Við bæjarstjórnarkosningar í janúar 1946 fengu kommúnistar 800.000 atkvæði. Ríkisstjór- inn í Sao Paulo var kosinn með atkvæðum kommúnista. í höfuðborg Brasilíu, Rio de Jan- eiro, urðu kfommúnistar stærsti flokkurinn, fengu 18 af 50 bæjarstjórnarmönnum. Afturhaldið sá nú hvað verða vildi, ef lýð- ræði héldist: í maí 1947 var gripið til harð- stjórnarínnar á ný og Kommúnistaflokkurinn bannaður. Bandarlkjastjóm var þá að hefja kalda stríðið — og eftir höfðinu dönsuðu lim- irnir. Brasilía komst æ meir í helgreipar banda- rísku auðhringanna og að sama skapi voru of- sóknimar hertar: Verklýðsfélögin bönnuð, fangelsanir frjálslyndra, árásir á fundi, blöð og verkföll bönnuð o. s. frv. Það var heitið 50.000 dollurum fyrir að ná Prestes, dauðum eða lifandi. Það var höfðað mál gegn honum og 17 öðrum meðlimum mið- stjómar flokksins. En þrátt fyrir allar ofsóknir, hélt Kommúnistaflokkurinn áfram að starfa í banni laganna. Það voru yfir 40.000 manns í flokknum 1950. Hann gaf út meir en tuttugu blöð á laun. Og harðstjórunum tókst ekki að fanga Prestes. Og þannig heldur sagan áfram: Undir friðsamlegum kringumstæðum verður Kommúnistaflokkurinn undir forystu Prestes æ aftur eitt sterkasta afl í Brasilíu. — Og þá gríp- ur afturhaldið og her þess — með samþykki Bandaríkjanna — til harðstjómar. Þannig fór og eftir friðsamlegt millibil í apríl 1964 að her- foringjaklíka tók völdin, steypti lýðræðislegri stjóm og bannaði 27. okt. 1965 alla flokka lands- ins. Enn einu sinni er Prestes ákærður og dæmdur, — fjarverandi — 7. júní 1966 í 14 ára fangelsi. — En afturhaldið nær ekki Prestes. Á laun vinnur hann og flokkur hans áfram að sigri þess málstaðar, sem Prestes hefur barist fyrir allt sitt líf: sigri alþýðunnar og sósíalism- ans. Manni koma í hug, er hugsað er um ævi þessa glæsilega leiðtoga, orð Karls Liebknecht í ,,Rote Fahne", daginn, sem hann var myrtur 15. janúar 1919: „Himinhátt rísa öldur atburðanna — við er- um því vanir að oss sé þeytt frá tindinum nið- ur í djúpið. En skip vort heldur stefnu sinni fast og stolt fram að takmarkinu. Og hvort sem við þá lifum eða ekki, þegar því marki er náð — lifa mun stefna vor. Hún mun ráða í heimi frelsaðs mannkyns. Þrátt fyrir allt!" 206

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.