Réttur - 01.11.1967, Page 32
leiðin til þess er að skapa vígreifa einingu
allrar alþýðu“.
Hrammur Bandaríkjanna liggur yfir Kól-
umbíu. Bandaríski herinn er að kenna her
ríkisstjórnarinnar aðferðirnar í stríði við
skæruliða. Aðalóvinur kólumbíska hersins er
nú orðið fólk Kólumbíu sjálft. Helmingur alls
ríkishersins hefur verið sendur gegn skæru-
liðum, — um 25.000 hermenn, er nota þyrlur
til að komast á staðina.
Bardagar hafa hvað eftir annað orðið all-
harðir. Ríkisherinn hefur oft gripið til þess
að neyða bændur til þess að flytja burt úr
sveitum sínum, auk þess sem bændum hefur
verið safnað saman svo þúsundum skiftir í
brakka og reynt að pína þá þar til sagna.
Ríkisstjórnin hefur í æ ríkara mæli gripið
til harðstjórnar í borgunum. Á meðal um
þúsund manna, sem fangelsaðir voru, var Gil-
berto Vieira, aðalritari Kommúnistaflokksins.
En engar ofsóknir megna að buga kjark
byltingarmanna. Þeir hagnýta hverja glufu
og sprungu í liði óvinanna. Og þeir reyna að
sameina alla byltingarmenn í eina fylkingu.
Við hlið FARC eru starfandi önnur skæru-
liðasamtök, er nefnast ELN (þjóðfrelsisher-
inn). Hefur FARC eindregið skorað á þá að
koma á samvinnu við sig, svo þessar tvær
fylkingar samræmi aðgerðir sínar. „Við bylt-
ingarmenn verðum að sameinast og við trúum
því ekki að sameining þýði undirgefni annars
undir hinn“, — segir FARC í áskorun sinni.
— Enn hefur þessi eining ekki tekist.
En baráttan heldur áfram og FARC beitir
sér fyrir því við hliðina á hernaðaraðgerðun-
um að leysa hin félagslegu vandamál bænda.
En það er ljóst að skæruhernaðurinn er orð-
inn einn höfuðþáttur í valdatöku alþýðunnar
í Kólumbíu.
212
j