Réttur - 01.11.1967, Page 36
ERLEND /f^\
VÍÐSJÁ iiliSM
DÖNSKU
SPORIN
Danski verkalýðurinn hafði í nóvember
1966 unnið hreinan meirihluta í danska ríkis-
þinginu. Hlutfallstölur verklýðsflokkanna voru
þá þessar:
Sósíaldemókratar 38,3%
Sósíalistíski alþýðufl. (S. F.) 10,9%
Kommúnistaflokkurinn 0,8%.
Verkalýðurinn danski hefur eðlilega búist
við að þessu valdi, er hann veitti flokkum sín-
um, yrði ótvírætt og hiklaust beitt í hans þágu.
En valdamönnunum auðnaðist ekki aðhalda
rétt á því valdi, er verkafólkið fékk þeim.
Hinn voldugi sósíaldemókrataflokkur var
alltof íhaldssamur og smátækur í umhótamál-
um, þegar til samninga kom við SF-flokkinn.
Dönsk blöð gefa í skyn að Hækkerup, annar
aðalleiðtogi flokksins, hafi heinlínis frá upp-
hafi að því stefnt að eyðileggja SF-flokkinn
með því að gera honum samstarfið sem erfið-
ast hvað málefni snertir, svo hann eyðilegði
sig á samvinnunni við sósíaldemókrata. (Við
þekkjum slíka aðferð hér heima gagnvart Al-
þýðuflokknum 1934—37, og Alþýðubandalag-
inu 1956—58).
Og róttækari vinstri sósíalistar í Danmörku,
— sem í desember 1967 mynduðu flokk vinstri
sósíalista, — bera Axel Larsen, hinum dug-
mikla formanni SF, það á brýn að hann hafi
216
verið um of sveigjanlegurgagnvartsósíaldemó-
krötum, en að sama skapi tillitslaus og yfir-
gangssamur gagnvart eigin flokksstjórn.
Svo fór að stjórn sósíaldemókrata féll á
þessu ósamkomulagi. Nýjar þingkosningar
fóru fram í janúar 1968.
Verklýðsmeirihlutinn glataðist. Sósíaldemó-
kratar eru komnir niður í 34,2%, úr 41,9%,
sem þeir höfðu 1964, — og út úr ríkisstjórn
eftir 14 ára samfleyta stjórnarsetu.
Vinstri sósíalistar í Danmörku eru nú í
þrem flokkum með eftirfarandi hlutfallstölum:
S. F. 6,1%
Vinstri sósíalistar 2%
Kommúnistaflokkurinn 1%.
Samanlagt er nú hlutfallstala þeirra 9,1%,
en var 1966 11,7%. Áður höfðu allir verk-
lýðsflokkarnir til samans 50%, nú 43,3%.
Er nú illa farið með góða valdaaðstöðu.
En það kann aldrei góðri lukku að stýra að
sósíaldemókratar séu svo sterkir og ráðrikir
sem í Danmörku og embættaðir foringjar
þeirra geti sett sig á háan hest gagnvart vinstri
öflum sósíalistískrar verklýðshreyfingar.
Borgaraflokkarnir hafa nú myndað hreina
borgaralega stjórn í Danmörku, — og það er
ef til vill þyngsti áfellisdómurinn yfir stjórn
sósíaldemókrata: — menn búast ekki við því
að hún verði verkalýðnum þyngri í skauti en
ríkisstjórn sósíaldemókrata var! — En þó
skyldu menn er til lengdar lætur vart treysta
slíku, þrátt fyrir allt.
i