Réttur - 01.11.1967, Side 39
verk gagnbyltingarmanna — og hefur engu
gleymt.
Eitt kvöld árið 1919 fékk samstarfsmaður
lians hann með sér á fund í kjallara einum.
Okunnur verkamaður hélt ræðu. Hann hvattitil
stofnunar deildar úr hinum bannaða Kommún-
istaflokki til þess að undirbúa uppreisn. Deild-
in var stofnuð sama kvöldið. Wassili var kos-
inn ritari. Hann var sá eini, sem kunni að lesa
og skrifa. — Þannig varð hann meðlimur
Kommúnistaflokksins og trúnaðarmaður hans
um leið, 18 ára gamall.
Vorið 1920 fer hinn ungi ritari flokksdeild-
arinnar fyrirskipun um að taka þátt í uppreisn.
28. apríl 1920 hefst uppreisnin í Baku. Undir
forystu þeirra Kirows, Ordshonikidse og Mik-
ojan sigrar rauði herinn gagnbyltinguna.
Verkamenn setjast við forstjóraborð Nobel-
félagsins. Olíulindir útlenda auðvaldsins eru
þjóðnýttar.
Er borgarastyrjöldinni lýkur 1921 fær Jem-
eljanow aðstöðu til að ganga á verkfræðiskóla
í Moskvu og lýkur prófi 1928 með ágætum.
Ilann er síðan sendur utan til framhaldsnáms,
verður berklaveikur, sendur á hæli í Krím,
læknast og fer aftur utan.
Þrjátíu og fjögra ára gamall verður hann
forstjóri rafstáliðjuvers í Ural, hins fyrsta
sinnar tegundar í Sovétríkjunum. Árið 1937
er hann settur yfir framleiðslu á brynvörðum
plötum í bryndreka á landi og sjó. Hann hafði
aldrei unnið að því áður, en nú var stríð fram-
undan. Og Jemeljanow vann dag og nótt. Hann
lagði sitt fram svo Sovétríkin gætu sigrast á
villimennsku nazismans.
Bandarikin sprengja kjarnorkusprengju
1945. Truman Bandaríkjaforseti segist þá hafa
„hamar í hendi“ gegn Rússum.
í árslok 1945 er Jemeljanow kallaður til
Kreml. Honum er falið, 44 ára að aldri, að
byggja upp kjarnorkuiðnað Ráðstjórnarríkj-
anna. Prófessor Wassili Jemeljanow hefur nú
löngum verið forseti kjarnorkumála Sovétríkj-
anna. Ávöxt þess starfs þekkir allur heimur-
Jemeljanow í Rauða hernum 1920. 2—4 frá vinstri: Kirov, Orsjonitidse, Mikojan.
219