Réttur


Réttur - 01.11.1967, Side 41

Réttur - 01.11.1967, Side 41
benl á eftirfarandi samtök og blöð. sem heyja þessa baráttu: Ajrican National Congress eru samtök þau, er aðalbaráttuna heyja og er hinn bannaði Kommúnistaflokkur einnig við hlið þeirra. Að- alaðsetur A. N. C. er 49 Rathbone Str., London Wl. Samtökin eru bönnuð í Suður-Afríku. Þau hófu að gefa út mánaðarrit, SECHABA, á síðasta ári, málstað sínum til stuðnings. Er O. R. Tarnbo, varaforseti A. N. C., einn aðal- hvatamaður þess. Hann er lesendum Réttar kunnur úr grein um Mandela í 49. árg. hls. 100—104. Allir, sem vilja styðja málstað A. N. C. ættu að kaupa það og er hægt að gerast áskrifendur með því að skrifa á ofannefnt heimilisfang. The Anli-Apartlieid Movement er víðfeðm hreyfing, sem vinnur gegn kynþáttapólitík Suður-Afríku-stjórnar með upplýsingum um ástandið í þessu fasistaríki o. fl. Aðalaðsetur hreyfingarinnar í Englandi er: 89 Charlotte Street, London Wl. Er hreyfing þessi mjög sterk og víðlæk. Hún gefur út stórt mánaðar- blað á ensku: Anti-Apart.heid News. Heim- ilisfang sama og hreyfingarinnar. Kostar 10 shillinga (ca. 70 kr. á ári). Er þetta gott blað og fjölbreytt, birtir einnig myndir. — Það er einnig deild úr Anti-Apartheid Movement á írlandi. Aðalaðsetur þess er: 173 Barton Road East, Dublin 14. Standa að þeirri deild jafnt þingmenn úr þjóðernissinnaflokknum þar, ka- þólskir prestar, kunnir menntamenn og verk- lýðsleiðtogar. Formaður hreyfingarinnar þar er Dr. Conor Cruise O’Brian, sem stendur prófessor í háskóla í New York. Hefur hann nýlega ritað bækling: „Ireland, the United Nations and Southern Africa". Kostar hann ] shilling (ca. 15 kr.) og fæst frá aðalaðsetr- inu í Dublin, er ofan greinir. World Campaign jor tlie Release of Soutli African Political Prisoners er hreyfing, sem einbeitir sér að því að reyna að fá leysta úr prísund þá pólitísku fanga, sem nú eru í dý- flissum Suður-Afríku-stjórnar, beittir mis- þyrmingum og pyntingum. Formaður nefndar- innar er síra L. John Collins, en ritari er skáld- ið Dennis Brutus, sem sjálfur var um tíma á Robben Island, djöflayju fasistastjórnarinn- ar, þar sem Mandela og Abram Fischer og fleiri eru. Dennis Brutus mætti fyrir sérnefnd (Special Committee) Sameinuðu þjóðanna 27. febrúar 1967 og sagði frá lífi pólitísku fang- anna í dýflissum Suður-Afríku. Hafði sú skýrsla hans mikil áhrif. — Aðsetur þessarar hreyfingar er: 2 Amen Court, London E. C. 4. Gefur hreyfingin út fjölritaðar skýrslur um baráttu sína. Það er vissulega víðfeðma fylking, sem berst fyrir frelsi þeirra fanga, sem fasistastjórn Suður-Afríku nú kvelur að hætti Hitlers og nazista. Þannig gaf Christian Action Publica- tions Limited nýlega út bækling, er nefnist „South Africa’s Prisons and the Red Cross Investigation“. Er það ægileg lýsing á aðbún- aðinum, sem pólitísku fangarnir sæta. Er þar m. a. birt skýrsla Rauða krossins og svör Suður-Afríku-stj órnar. Þá ber þess að geta að í Svíþjóð gefur Syd- afrikakommittén í Lundi út: Södra Afrika — Informationsbulletin. Kemur það út a. m. k. 6 sinnum á ári og kostar 6 sænskar krónur. (Hvert hefti um 30 síður). í Svíþjóð eru starfandi allmargar Suður-Afríku-nefndir, m. a. í Uppsölum og Stokkhólmi. Utanáskrift til nefndarinnar í Lundi er: Box 707, Lund 7. — Ritstjórn er hjá Gunnar Persson, Pilegatan 12, Lund. íslendingar þurfa vissulega að fara að láta fasistísku kúgunina í Suður-Afríku meira til sín taka en hingað til. Arið 1968 er mannréttindaárið. Á tímabil- inu frá 21. marz, — þeim degi, er blóðbaðið var í Sharpeville og þann dag hafa Samein- uðu þjóðirnar gert að alþjóðadegi gegn þjóð- flokkakúgun, — og til 26. júní, frelsisdegi fyr- ir Suður-Afríku, verður baráttan gegn Apart- heid sérstaklega skipulögð. 221

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.