Réttur - 01.11.1967, Side 44
leiðtogum Kommúnistaflokks Kan-
ada, ritar um áhrif byltingarhug-
sjónanna.
Þvínæst koma ræður og greinar
frá júní-ráðstefnunni í Prag. Eru
þessir höfundar m. a.:
Boris Ponomarjov, ritari Komm-
únistaflokks Sovétríkjanna: „Októ-
berbyltingin, upphaf tímabils sósíal-
ismans og kommúnismans."
R. Palme Dutt, hinn kunni for-
ystumaður enska Kommúnistaflokks-
ins: 50 ára almenn kreppa kapí-
talismans.
Ib Nörlund, danski kommúnista-
leiðtoginn: Leið þróaðra auðvalds-
landa til sósíalismans.
Madera Keita, einn af alþýðufor-
ingjum Malí-lýðveldisins: „Stór-
fenglegasti atburður tímabilsins".
Amilcar Cabral, aðalritari afrí-
kanska sjálfstæðisflokksins í „Portú-
gölsku“ Guineu og Kap Verdeeyj-
um.
Til þess að minnast aldarafmælis
hins sígilda höfuðrits Karls Marx
„Das Kapital“, var haldin ráðstefna
í Berlín í september 1967. Voru þar
fluttar ýmsar merkar ræður. Meðal
þeirra er þar töluðu var Tran Quang
Huy, einn af forystumönnum al-
þýðuflokksins í Norður-Víetnam. Er
ræða hans birt í þessu hefti undir
heitinu: „Víctnam berst jyrir sósíal-
isma“.
Að lokum ritar Art Shields fagra
og ýtarlega minningargrein um John
Reed, bók hans: „10 dagar, sem
skelfdu heiminn" og haráttu hans
alla.
World Marxist Review. IV. 12.
hefti. 1967. — Prag
f þessu hefti segir frá samanköll-
un umræðufundar ýmissa kommún-
istaflokka og annarra verklýðs-
flokka, sem hefjast skal í Búdapest
224
26. febrúar 1968. — Þvínæst er
grein um alþjóðlegt gildi minning-
arhátíðarinnar um 50 ára afmæli
byltingarinnar í Rússlandi.
Stejan Jedrychowski, einn af for-
ystumönnum pólska Verkamanna-
flokksins og forseti áætlunarráðs
Póllands, skrifar grein um hið nýja
áætlunarkerfi í Póllandi og fram-
kvæmd þess.
Zisis Zografos, meðlimur í fram-
kvæmdanefnd gríska Kommúnista-
flokksins, ritar um baráttuna gegn
herforingjastjórninni í Grikklandi.
— Þá eru greinar um haráttuna
fyrir frjálsri starfsemi gríska komm-
únistaflokksins og um erfiðleika
verklýðshreyfingarinnar í Bretlandi.
Þá kemur mjög eftirtektarverð
grein um lýðveldið Guinea á 10. ári
þess. En í því landi hefur alþýða
manna undir róttækri forustu gert
nokkra tilraun til að feta sig fram til
sósíalisma úr frumstæðum þjóðfé-
lagsháttum.
„Hvert jtróast kapítalismi nútím-
ans“ — er efni, sem var til umræðu
á alþjóðafundi, sem ritstjórn tíma-
ritsins gekkst fyrir í Prag 25. og
26. október 1967 í tilefni af 100 ára
afmæli „Auðmagnsins" eftir Karl
Marx og 50 ára afmælis „Imperíal-
ismans" eftir Lenin. Franzow, rit-
stjóri tímaritsins, hóf umræðurnar
með stuttri ræðu um marxismann
og nútímann. Tóku margir þátt í
þessum fundi og lögðu þar margt
til málanna.
William Kashtan, aðalritari
kommúnistaflokks Kanada, ritar um
nýja stefnuskrá, sem kommúnista-
flokkurinn í Kanada vinnur nú að.
Þá er sagt frá kosningasigri sviss-
neskra kommúnista. í Genf-fylki
(,,Kanton“) fengu þeir fimmtung
allra atkvæða, og í Neuchatel-fylki
19%. Og í allsherjarþingi Sviss
fengu þeir nú 5 fulltrúa í stað
fjögra áður og þar með aðstöðu til
að eiga fulltrúa í öllum nefndum.
Búlgarskir og japanskir kommún-
istar skrifa um reynslu sína og
starfsemi.
Monika Warnenska, pólsk kona
og rithöfundur góður, skrifar ágæta
grein um hetjubaráttu alþýðunnar
í Víetnam. Monika fór f þriðja sinn
þangað í janúar 1967 og ferðaðist
um 7500 kílómetra leið, -— allt frá
Dien Bien Phu til „hlutlausa" belt-
isins við 17. breiddargráðu, en inn
í það svæði fór hún og hafa fáir
fréttaritarar frá Evrópu komið þar.
Jesus Faria, aðalritari kommún-
istaflokksins í Venezuela, ritar um
sögu og haráttu flokksins í 30 ár,
en í ágúst 1967 voru liðin 30 ár frá
stofnun flokksins. Lýsir hann hinni
löngu og hörðu baráttu, sem flokk-
urinn og alþýðan hafa orðið að
heyja allan þennan tíma.
Þá er sagt frá vísindalegum ráð-
stefnum, sem haldnar voru í sept-
ember til október 1967: í Berlín
vegna aldarafmælis „Auðmagnsins“,
— í París um efnið „Októberbylt-
ingin og Frakkland“, var sú ráð-
stefna í Maurice-Thorez-stofnuninni,
vísindastofnun franska kommúnista-
flokksins, — og í Baku um Október-
byltinguna og þjóðfrelsishreyfingar
Asíu, Afríku og rómönsku Ameríku.
Þá minnist Ramiro Otero, mið-
stjórnarmaður í kommúnistaflokki
Bólivíu, ýmissa þeirra hetja, er féllu
við hlið Che Guevara eða í sams-
konar baráttu og liann þar í Bóli-
víu.
Að síðustu er frásögn um bók,
sem út kom s.l. haust á rússnesku
um „Hinn mikla október og bylt-
ingarþróunina“. Rita hana Suslow,
einn helzti forysliimaður kommún-
istaflokks Sovétríkjanna, Waldeck
Rochet, aðalritari franska flokksins,
Tim Buck, aðalritari kanadiska
flokksins, Dolores Ibarurri, formað-
ur spánska flokksins og Gus Hall,
aðalritari kommúnistaflokks Banda-
ríkjanna.