Réttur - 01.01.1987, Síða 20
Eiga núlifandi
börn heims enga
framtíð?
Það deyja árlega um 40 milljónir barna af fæðuskorti og sjúkdómum skorts og
fátæktar.
En það vofir verra yfir.
Hervald Bandaríkjanna býr sig undir að geta þurrkað alla andstæðinga sína út
með kjarnorkusprengjum, eiturefnum og stjörnustríði. En andstæðingarnir búa
sig líka undir að mæta slíkum árásum. Bara kjarnorkuvopn heims geta nú drepið
hvert mannsbarn sex sinnum.
Er ekki mál að þessari vitfyrringu
linni?
Hverjir eru þeir foreldrar sem vilja að
börn sín séu drepin — og öll önnur verði,
ásamt foreldrum og öðru fólki, kjarn-
orkuvopnunum og eitrinu að bráð?
Ábyrgðin hvílir á valdhöfum Banda-
ríkjanna og öllum, sem í blindni styðja þá
til illverkanna.
F*að er upp risin sú örlagastund mann-
kyns að hver einstaklingur verður að
finna til sinnar ábyrgðar: Að knýja fram
frið um allan heim!
• Að knýja fram útrýmingu allra atom-
sprengja og eiturefna!
0 Að hindra alla þróun til stjörnustríðs
og eyðingar í himingeimnum!
• Að taka síðan til með afnám hinna
fornu vopna, sem að vísu gátu ei út-
rýmt öllu mannkyni, en valdið dauða
milljónatuga mann, kvenna og barna í
stríðum mannkynssögunnar hingað til.
• Að hindra algerlega alla framleiðslu
vopna af hverju tagi sem er, — og það
verður við ramman reip að draga því
vopnaframleiðslan er, fyrst og fremst í
Bandaríkjunum, stórkostlegasta gróða-
uppspretta voldugustu auðstéttar jarðar.
En það er um líf eða dauða allra jarðar-
búa að tefla.
Eiga núlifandi börn í veröldinni að fá
að veröa fullorðin — fá að lifa, — eða
ekki?
20