Réttur


Réttur - 01.01.1987, Page 32

Réttur - 01.01.1987, Page 32
Hin djarfa stefnubreyting í Sovétríkjunum Leiðir hún til endurnýjunar á valdi og áhrifum sósíalismans ? I. Stefnubreyting sú, sem Gorbatshoff boöar nú í Sovétríkjunum, getur haft í för meö sér stóreflingu á valdi og áhrifum sósíalismans í heiminum. Friöarboð- skapurinn hefur að vísu lengi verið einkennandi fyrir stefnu Sovétríkjanna, en honum verður nú framfylgt með meiri dirfsku en nokkru sinni, meðan Bandarík- in hinsvegar einangrast meir og meir í vitfirringslegri hernaðarstefnu sinni og fleiri og fleiri í Bandaríkjunum sjálfum vakna til andstöðu við þá vítisstefnu. Hinsvegar boðar það umburðarlyndi, sem nú einkennir stefnu Gorbatschoffs, sú barátta gegn spillingu í ríkiskerfinu og afstaðan til sögulegra mistaka svo að segja aldahvörf í pólitík Sovétstjórnarinnar. II. Þegar menn dæma og skilgreina stefnu þá sem ríkir á hverjum tíma í Sovétríkj- unum og aðgerðir þær, sem framkvæmd- ar eru, verða menn að hafa í huga hvílíkt einstakt kraftaverk það er að sósíalistísk- ur flokkur skuli yfirleitt hafa komist til valda þar eystra og að í því forna Rúss- landi skuli yfirleitt hafa tekist að leggja grundvöll að sósíalistísku ríki. Hið gamla rússneska keisaraveldi var raunverulega ólíklegast allra Evrópu- landa til slíkrar þjóðfélagsbyltingar: Hálf- ánauðug bændastétt, ólæs og óskrifandi, — sterk verkalýðshreyfing aðeins í örfá- um stórborgum, — og fjandsamlegt auð- vald drottnandi í öllum Evrópulöndum. Pað auðvald hafði þegar 1871 kæft í blóði fyrstu byltingartilraun verkalýðs í iðnríki eins og Frakklandi, þegar franskir og þýskir auðvaldsherir tóku höndum saman um að myrða Parísarkommúnuna, er ráð- ið hafði höfuðborg Frakklands í þrjá mánuði. Það vantaði heldur ekki að jafnt for- ustumenn byltingarinnar sem fjandmenn hennar gerðu sér Ijóst, hve tæpt hún stóð. Lenin sagði við einn félaga sinn í febr- úar 1918: „Sjáöu hve vel við höfum staðið okkur, við höfum nú lifað lengur en Par- ísarkommúnan“ (Fjóra mánuði). — Og hve tæpt það var að auðvaldsinnrás 32

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.