Réttur - 01.01.1987, Blaðsíða 45
mínum minnsta bróður gerir þú og mér“?
— Segjast ekki auðvaldsþjóðirnar fyrr-
nefndu vera kristnar?
En það eru framleidd drápstæki fyrir
slíkar ótrúlega háar fjárhæðir að væru
þær notaðar til að lina hungrið í heimin-
um, mætti allt mannkynið verða satt.
En það er svo gífurlegur gróði að því
að framleiða drápstækin að auðdrottnar
Bandaríkjanna sem eru þar fremstir í
flokki þverneita að öll ríki sameinist um
að hætta allri drápstækjaframleiðslu.
Heldur skal eiga það á hættu að allt
mannkyn farist í kjarnorkustríði.
Gróðinn er þeirra guð í „Mammonsríki
Ameríku“ — en svo nefndi síra Matthías
Jochumsson Bandaríkin. — „Nú er djöf-
ullinn sestur að á jörðinni“, sagði Albert
Einstein, er Bandaríkjastjórn lét kasta
fyrstu kjarnorkusprengjunni á Hiroshima
og Nagasaki.
Er ekki tími til kominn að stöðva verk
„djöfulsins“ og hindra yfirdrottnun
Mammons og ríkja hans, — en hyggja að
velferð vors minnsta bróður — áður en
það er of seint?
Vaxandi mótspyrna gegn
skuldaþrælkun
„Réttur“ hefur áður skýrt frá vaxandi
mótspyrnu í Mið- og Suður-Ameríku
gegn skuldaþrælkuninni. Viðurkennt er
nú að skuldir þróunarríkja séu orðnar um
1000 milljarðar dollara (1000.000.000.000).
Tvímælalaust fer nú vaxandi uggur auð-
drottna um að fá þessar skuldir greiddar.
Það vofir yfir uppreisn skuldaþrælkaðra
þjóða gegn okur-auðvaldi Bandaríkj-
anna.
Nýlega tilkynnti forseti Brasilíu að
Brasilía muni hætta að greiða vexti af
skuldum sínum. Búist er við samskonar
tilkynningu frá Argentínu.
Forseti Mosambik, Samora
Machel, myrtur með flugslysi
Samora Machel, forseti hins róttæka
ríkis Mosambik, var myrtur 19. október
1986 þannig að flugvél sem hann var í var
leiðbeint rangt, svo hún fórst. Voru and-
stæðingar ríkisstjórnar hans þar að verki.
Machel var einn stofnenda Frelimo-
flokksins, þjóðfrelsisflokksins í Mosambik
1962, en Eduardo Mondlane var þá for-
seti flokksins, en hann var myrtur af port-
úgölsku leynilögreglunni 1969. Árið eftir
var Machel kosinn formaður. Leiddi
hann flokkinn til sigurs í stríðinu við ný-
lendustjórn Portúgala í Mosambik 1975.
Var síðan að því stefnt að gera Mosambik
að sósíalistísku landi. Hinsvegar hatast
harðstjórn Suður-Afríku við ríkisstjórn
Mosambik og reynir með öllum ráðum:
morðum og hverskonar skemmdarverk-
um, að vinna henni tjón sökum stuðnings
hennar við frelsisbaráttu svertingjanna,
sem eins og kunnugt er, eru meirihluti
íbúa Suður-Afríku, þrælkaðir og mann-
réttindalausir.
45