Réttur


Réttur - 01.08.1987, Page 9

Réttur - 01.08.1987, Page 9
ÁSGRÍMTJR ALBERTSSON: Eyjólfur Árnason Kveðjuorð Það var í vikunni fyrir páska 1928 að ég sá lítinn bát koma utan af ísafirði og var það í sjálfu sér ekki nýr viðburður. En hitt var nýlunda að hann hafði uppi rauð- an fána í afturstafni. Það hafði ekki sést fyrr í Álftafirði. Svo gerðist það á föstudaginn langa, 6. apríl, að stofnað var Verkalýðsfélag Álft- firðinga. Þrír af hinum aðkomna bát, þeir Eyjólfur Árnason, Halldór Ólafsson og Ingólfur Jónsson urðu nokkurskonar guð- feður hins nýja félags. Bátseigandinn, Sæmundur Guðmundsson, mun einnig hafa setið stofnfundinn þótt það sé ekki bókað. Stofntelagar voru 39. Þetta les ég í fundargerðabók Verka- lýðsfélags Álftfirðinga. Sjálfur kom ég þar ekki nærri né kynntist þessum mönn- um þá, því að ég var enn í barnaskóla. Eyjólfur hefur verið 18 ára þegar þetta gerðist, því hann var fæddur 20. jan. 1910. En þetta sýnir að hann hefur snemrha farið að beita sér að eflingu sam- taka verkalýðsins. Kynni okkar urðu svo ekki fyrr en mörgum árum seinna og var það ein úr hópi okkar Nesjakrakkanna í Súðavík, Guörún Guðvarðardóttir, sent leiddi okkur saman. Báðir höfðum við þá verið í skólum, harla ólíkum þó, ég í Núps- skóla, en hann austur í Rússlandi. Reynsla okkar var vissulega mjög ólík, en hafði veitt okkur báðum þroska. Ég mótaðist til þeirrar félagshyggju, sem ég hef alið meö tnér síðan. Hann varö áhorfandi að nokkrum þáttum einnar stórkostlegustu tilraunar mannkynssögunnar til að skapa nýtt þjóðfélag. Ég hlustaði með mikilli athygli á það sem hann hafði að segja af því sem hann hafði séð og reynt. Pólitísk barátta okkar hér heima tengdist svo mjög því sem var að gerast þar austurfrrá að fylgst var af lifandi áhuga með því hvernig þar tækist til. Þegar ég rifja það upp í huganum þá finnst mér að frásagnir Eyjólfs hafi borið nokkuð annan svip en suinra annarra. Hann var að eðlisfari öfgalaus og raunsær og laus við að vera með glýju í augum. En hann trúði á það að þessi tilraun tækist þótt honum væri ljósara en okkur sem heima sátum hverja annmarka var við að eiga bæði að því er snerti hlut byltingar- forkólfanna og andstæðinga þeirra. Þarna var enginn leikur á ferðinni heldur grirnrn alvara sögunnar. Á ísafirði tók Eyjóll'ur öflugan þátt í baráttu hins unga Kommúnistaflokks svo að flokknum tókst að fá hann kjörinn í bæjarstjórn. En atvinnumöguleikar voru þar rýrir fyrir menn af hans sauðahúsi. Segir það sína sögu um viðhorfin til rót- tækra manna á ísafirði þá, að manni nteð hæfileika Eyjólfs bæði til anda og handar skyldi ekki verða þar líft. Leitaði hann því eins og fleiri til Siglufjarðar á surnrin. Kynntist hann þar m.a. Aðalbirni Péturs- syni, gullsmið. Uröu þau kynni til þess að hann hafði milligöngu um að ég réðst til iðnnáms hjá Aðalbirni haustið 1935. 121

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.