Réttur


Réttur - 01.08.1987, Page 29

Réttur - 01.08.1987, Page 29
Stefanía kemur til skjalanna 1947 dró skugga yfir viljann til góðra verka, nýsköpunarstjórnin fór frá völd- um, við tók kolsvört afturhaldsstjórn, nefnd táknrænu nafni „Stefanía“. Dags- brún gekk á fund þessarar stjórnar og óskaði eftir svörum við því hvort tryggt væri að ekki yrðu gerðar ráðstafanir af hálfu hins opinbera sem rýra mundu kaup launþega, svör fengust engin. f*á gerði Dagsbrún samkomulag við atvinnurek- endur um þær breytingar á uppsagnará- kvæðum samninga að hægt var að segja upp samningum hvenær sem væri með eins mánaðar fyrirvara, félagið vildi vera við öllu búið. 3. og 4. maí fór fram allsherjaratkvæða- greiðsla í Dagsbrún um uppsögn samn- inganna og var samþykkt með miklum meirihluta. F>á höfðu öll dagblöð bæjar- ins, nema Pjóðviljinn, hafið hatramman áróður gegn forustu Dagsbrúnar og upp- sögn samninga sem upp var sagt vegna stórkostlegra tollahækkana. Áróðri íhaldsins og blaða þeirra linnti ekki í röska tvo mánuði. Viðræður við atvinnu- rekendur báru því engan árangur, enda voru tveir íhaldsburgeisar settir í sátta- nefndina með Torfa Hjartarsyni, þeir Guðmundur í. Guðntundsson og Gunn- laugur nokkur Briem, en þeir virtust líta á það sem sitt höfuðverkefni að sannfæra samninganefnd Dagsbrúnar um að kröfur félagsins væru ósanngjarnar og ranglátar. Þessir ríkilátu samningamenn auð- valdsins komu fljötlega fram með „sátta- tillögu“ sem fól í sér óbreytt kjör frá fyrri samningum og fyrirskipuðu allsherjar at- kvæöagreiðslu í Dagsbrún um þá tillögu. Með miklu harðfylgi Dagsbrúnarmanna fékkst að halda fund í Dagsbrún áður en atkvæðagreiðslan hófst. Atkvæðagreiðsla þessi bar keim af al- mennum kosningum í Reykjavík. Fór hún fram í Miðbæjarbarnaskólanum und- ir „eftirliti“ yfirvaldanna. Flokksskrifstof- ur með bíla og kosningasmala voru í full- um gangi. Pjóðviljinn einn túlkaði mál- stað verkamanna. Úrslit atkvæðagreiðslunnar urðu þau, að 1341 Dagsbrúnarmaður greiddi at- kvæði gegn „sáttatilboðinu“ en 789 með því, var þetta eftirminnilegur ósigur fyrir andstæðinga Dagsbrúnar. En „saman níðingar skríða“ og því magnaðist áróðurinn og var reynt að sundra röðum verkfallsmanna og svelta þá til hlýðni. En þó Dagsbrúnarmenn væru ekki allir sam- mála í upphafi deilunnar, stóðu þeir sem einn maður þegar út í verkfallið var komið. Heill mánuður leið í verkfalli án til- rauna til samninga. 5. júlí tókust samn- ingar loks eftir að samningafundur hafði staðið án uppihalds í 48 klukkustundir. Þann 6. júlí var Dagsbrúnarfundur í Gamla bíó og var húsfyllir, þar voru samningarnir samþykktir með öllum greiddum atkvæðum gegn 10. Allt grunn- kaup hækkaði um 15 aura á klst. lágmarks- taxtinn í kr. 2,80, nokkrar tilfærslur voru þá til hækkunar á milli flokka. í þessum átökum naut Dagsbrún stuðnings Alþýðu- sambandsins, sem þá var í höndum sam- einingarmanna. Rétt fyrir jólin 1947 samþykkti Alþingi lög, sem bönnuðu að kaup væri greitt með hærri vísitölu en 300 stigum, vísital- an var þá 328 stig. Lögin afnámu öll ákvæði úr frjálsum samningum verkalýðs- félaganna um hærri greiðslur. Við þessa lagaráðstöfun lækkaði útborgað kaup Dagsbrúnarmanan um 78 aura á klst. 141

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.