Réttur - 01.08.1987, Qupperneq 43
Við komuna til Kíev liinn 2. áf>úst sl. tóku islensku söngniennirnir laj>ið undir væn;> flugvélarinnar, seni flutti
|>á frá Vilnjus í Litháen til Kænuf>arös.
tónskáld, en einnig fáein útlend lög.
Sýningarefnið frá íslandj, sem sett var
upp í Kíev og einnig sýnt víðar í Úkra-
ínu, samanstóð af stórum Ijósmyndum af
landi og þjóð og myndverkum (teikning-
um, vatnslitamyndum og grafik) eftir
Ragnar Lárusson. Einnig voru til sýnis
bækur, m.a. bækur um íslenska myndlist-
armenn og þýddar bækur o.fl., svo og
myndir og annað upplýsingaefni um þau
íslensku fyrirtæki sem veitt höfðu MÍR
fjárstuðning vegna íslandsdaganna.
Dagar íslands voru settir í hátíðasal
stórhýsis Sambands úkrainskra myndlist-
armanna í Kícv síðdegis mánudaginn 3.
ágúst sl. Stundu áður hafði ljósmynda- og
myndlistarsýningin verið opnuð í salar-
kynnum hússins. Við það tækifæri voru
flutt stutt ávörp, m.a. talaði Alexei Arta-
monov listmálari, einn virtasti myndlist-
armaður Úkraínu, en hann kom til ís-
lands haustið 1978, þegar efnt var til So-
véskra daga á íslandi og þeir sérstaklega
tileinkaðir úkrainska sovétlýðveldinu.
Minntist listamaðurinn íslandsdvalarinnar
með ánægju og þeirra hughrifa sem luin
vakti með honum, en Artamonov gerði
mörg frumdrög að myndum þá daga sem
hann dvaldist hér á landi, vann úr þeim
myndaflokk þegar heim kom og hélt síð-
an sýningu á Islandsmyndum sínum.
Myndir úr þessum t'lokki eru mi víða á
155