Réttur


Réttur - 01.08.1987, Síða 44

Réttur - 01.08.1987, Síða 44
söfnum í Sovétríkjunum. Umgjörð setningar íslandsdaganna í Kíev var mjög hátíðleg. Fánar fslands, Sovétríkjanna og Úkraínu blöktu utan við aðalinngang Húss myndlistarmanna, svo og í sýningarsölum og á sviði hátíðar- salarins; þar var og stórt kynningarspjald og blómaskreytingar og yfir sviðið og áheyrendasal var strengdur borði með hvatningu um að efld verði vinátta milli þjóða íslands og Sovétríkjanna. Formaður úkrainska vináttufélagsins, Vasilí Pavlovitsj Osnatsch, setti samkom- una, en að ávarpi hans loknu lék lúðra- sveit þjóðsöngva íslands, Sovétríkjanna og úkrainska sovétlýðveldisins. Þá flutti A. I. Kholodenko, ritari borgarstjórnar- innar í Kíev, ávarp og síðan talaði frú D. F Protsenko, formaður Náttúruverndar- ráðs ríkisins í Úkraínu, en hún var í hópi þeirra Úkraínumanna sem komu til Is- lands 1978 í tilefni Sovésku daganna. Loks flutti formaður MÍR, Ivar H. Jónsson, ræðu og sagði þá m.a.: „í fornum ritum íslenskum er Garðarík- is oft getið, en svo var Kíev-Rús nefnt á íslensku eftir stærstu borgum og borgríkj- um þeirra tíma þar í landi. Fræðimenn greinir á um sannleiksgildi frásagnanna í hinum íslensku ritum og þó eru einkum skiptar skoðanir um áhrif norrænna manna á þjóðlíf í hinu forna rússneska ríki eða þau spor sem þcir kunna að hafa skilið eftir sig þar. En um þaö er ekki deilt, að norrænir mcnn, m.a. Islending- ar, lögðu oft leið sína til Garðaríkis og fóru um þaö eftir vatnaleiðum suður til Miklagarðs og lengra í austur. I hópi þessara manna var einn víðförlasti Islcnd- ingur þeirra tíma, í lok tíundi aldar. Hann hét Porvaldur Koðránsson, og tók kristna trú í útlöndum cn hélt síðan lil kristniboös á íslandi og crlendis og fór víða um heiminn, eins og segir í íslend- ingasögum, og allt til Jórsalaheims (Jerú- salem) og þaðan til Miklagarðs og svo til Kænugarðs hið eystra eftir Njepr. Sagt er og að Þorvaldur víðförli hafa stofnað reglu munka í þeirri höfuðkirkju í Kíev, sem helguð var Jóhannesi skírara. Lagði hann allar eigur sínar í klaustrið, sem síð- an var við hann kennt. Og svo segir enn í íslendingasögum: „Þorvaldur andaðist í Rússía, skammt frá Palteskju. Þar er hann grafinn í fjalli einu, að kirkju Jó- hannis baptista og kalla þeir hann heilag- an.“ Nú, réttum þúsund árum eftir fyrstu ferð Þovaldar víðförla til hinnar fornu borgar við Dnjepr erum við, 100 landar hans, komnir af íslandi langan veg austur yfir haf og land hingað til höfuðborgar so- vétlýðveldisins Úkraínu á bökkum Dnjeprfljóts. Og við — félagar í MÍR, Vináttufélaginu Island-Sovétríkin — erum ekki hingað komnir fyrir tilviljun eða að tilefnislausu. í fyrsta lagi er ferð okkar nú — fjölmennasta hópferð félags- ins til þessa — skipulögð og farin til þess að kynnast eins og kostur er á skömmum tíma sögufrægum stöðum, þjóðlífi og menningu í Sovétríkjunum. Og það eyk- ur mjög gildi þessarar kynnisferðar okkar að hana ber í senn upp á 70. afmælisár Hinnar miklu sósíalísku Októberbylting- ar og jafnframt mikilvægt þróunarskeið í endurskipulagningu hins sósíalíska sam- félags. Við óskum sovétþjóðunum inni- lega til hamingju með byltingarafmælið og þá miklu sigra sem unnist hafa í þjóð- málum á liðnum 70 árum og árnum þeim jafnframt velfarnaðar í framtíðinni, frið- ar og farsældar og góðs árangurs í endur- skipulagningarstarfinu. Við — eins og all- ir réttsýnir og framfarasinnaöir menn í hciminum — metum mikils það mikla 156

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.