Réttur - 01.08.1987, Page 48
frægu borg við Svartahafið, 7. ágúst, og
haldnir í samkomusal mikils ferða-
mannahótels að viðstöddum nokkur
hundruð áheyrendum. Voru viðtökur
þar, eins og víðast hvar annarstaðar, hin-
ar prýðilegustu. Síðan voru haldnir sér-
stæðir tónleikar á útileiksviði einu í mið-
borg Jalta á Krímskaga 9. ágúst, daginn
eftir var komið fram á tónleikum í heilsu-
hæli námuverkamanna í Jalta og þar
næsta dag voru síðustu tónleikarnir sem
tengdir voru íslandsdögunum í Úkraínu.
Voru þeir haldnir í samkomusal menn-
ingarmiðstöðvar stórs samyrkjubús, sem
kennt er við Sdanov og er á miðri hásléttu
Krímskaga, um 30 km norður af borginni
Simferopol. Voru þessir tónleikar, eins
og öll heimsóknin á samyrkjubúið, ís-
lendingum ákaflega minnisstæðir.
Auk áðurnefndra tónleika íslenska
tónlistarfólksins í Úkraínu kom allur
hópurinn fram á tónleikum í Vilnjus,
höfuðborg Litháens, og á útisviði í
Gorkí-skemmtigarðinum í Moskvu.
Sönghópurinn lét í sér heyra oftar, m.a. í
Novgorod og Tallinn, höfuöborg Eist-
lands, og hann tók einnig lagið við fleiri
tækifæri í Jalta og Moskvu. I síðastnefndu
borginni söng karlasveitin t.d. citt lag fyrir
sovéska sjónvarpið laugardaginn 15. ágúst
og um kvöldið gengu kórmenn milli fimm
brúökaupsveislna í Hótel Rossía og
sungu fyrir brúðhjónin og gesti þeirra viö
mikla hrifningu!
íslandsdagarnir í Úkraínu vöktu tals-
verða athygli fjölmiðla þar í landi. Sjón-
varps- og útvarpsstöðvar sögðu frá
dögunum, fluttu frásagnir af dagskráratr-
iðum og tónleikum og áttu viðtöl við ís-
lendinga. Allmikið var skrifaö um kynn-
ingardagana og ísland í úkrainsk blöð.
Þær umsagnir um sýninguna og tónleik-
ana sem borist hafa eru mjög vinsamleg-
ar. Um verk Ragnars Lárussonar og tón
leika íslendinganna segir m.a. í blaðinu
Pravda Úkraíni 5. ágúst sl.:
„Athygli gesta beindist að verkum hins
kunna íslenska myndlistamanns Ragnars
Lárussonar. Verk hans, sem bera með sér
að hann hefur tæknina á valdi sínu, eru
áhugaverð vegna heimspekilegs inni-
halds. Hann notar fjörlega liti og nær
fram djúpstæðum raunsæisáhrifum, skap-
ar skýrar, sálfræðilegar svipmyndir.
í hátíðarsal Húss Sambands úkrainskra
myndlistarmanna voru haldnir tónleikar
íslenskra listamanna. í tvær klukkustund-
ir hljómaði tónmál hinnar norrænu þjóð-
ar — tvinnað fornum sögnum og lögum.
Efnisskráin hófst með söng áhugamanna-
kórs karla frá Reykjavík undir stjórn
Helga Einarssonar. Þessi kór hefur starf-
að í mörg ár (misskilningur hjá greinar-
höfundi, því sönghópurinn var fyrst
stofnaður á sl. vori vegna fyrirhugaðra ís-
landsdaga í Úkraínu — ÍHJ.) og tekið sér
sérstaklega fyrir hendur að kynna úrval
þjóðlegra söngva. Eldmóðurinn var slík-
ur í flutningi kórsins, að áheyrendur gátu
í senn hrifist af hinum elstu lögum um
þjóðtunguna, Ijóðrænum vögguvísum,
hátíðaróðum til ættjarðarinnar og ís-
lenskri útgáfu af rússneska þjóölaginu
„Er í Voigu klettaklungur“.
Klarinettuleikarinn Guðni Franzson,
sem tekið hefur þátt í alþjóðlegum tón-
listarhátíðum og samkeppni norrænna
tónlistarmanna, flutti inn í konsertsalinn
blæbrigði og hljómfall nútímans, kynnti
fyrir áheyrendum áhugavert vcrk eftir
samtímahöfundinn Jón Nordal. Vcrkiö
„Tvær tónmyndir“ eftir hann sýndi fram á
takmarkalausa möguleika hins gamla
hljóöfæris. Listamanninum var í góðum
flutningi verksins mikill styrkur að ná-
kvæmri túlkun hins unga píanóleikara
160