Morgunblaðið - 16.01.2006, Page 6
6 MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VÍSINDAMENN Íslenskrar erfða-
greiningar hafa eftir nokkurra ára
starf, fundið erfðabreytileika sem
tengist sykursýki fullorðinna, en það
er sjúkdómur sem verður æ algeng-
ari í heiminum og getur haft alvar-
legar afleiðingar. Þekkt er að tíðni
sjúkdómsins eykst í samhengi við
aukna tíðni offitu í heiminum en ekki
hefur áður fundist erfðabreytileiki
sem hefur svo gagnger áhrif á það
hversu hætt fólki er við að veikjast.
„Niðurstöðurnar sýna að um 38%
Íslendinga hafa fengið þennan
breytanleika frá öðru foreldri og sá
hópur á 40% meiri líkur á að fá sjúk-
dóminn en þeir sem ekki hafa þenn-
an breytinleika. 7% Íslendinga hafa
svo fengið breyttileikann frá báðum
foreldrum og þeir hafa um 150%
meiri líkur á að fá sjúkdóminn. Það
eru mjög mikil áhrif,“ segir dr. Kári
Stefánsson, en hjá ÍE sýnist mönn-
um að þessi breytileiki valdi um 20%
tilfella af sykursýki af gerð 2.
Erfðarannsóknin var upphaflega
gerð á um 2000 einstaklingum á Ís-
landi. Niðurstöðurnar voru í fram-
haldinu staðfestar í samvinnu við
vísindamenn í Danmörku og Banda-
ríkjunum.
Greiningarpróf í þróun
Kári bendir á að á Íslandi fyrr á
öldum, þegar litla næringu var að fá,
hafi það mögulega komið sér vel að
bera þennan breytileika og nýta
orkuna úr fæðu vel. „En froskar
breytast í prinsa og öfugt.“ Í dag séu
aðstæður í umhverfinu allt aðrar.
Þegar vitneskja um breyttileika sem
veldur sykursýki komi til, verði það
líklega spurningin, hver verði áhrif
hins frjálsa vilja.
„Við höfum mikið af upplýsingum
sem benda til að fólki gangi ekki sér-
staklega vel að nýta sér vitneskju
um hættuna af reykingum eða
áfengisdrykkju og svo framvegis.
En það að hafa greiningarpróf sem
sýnir þér hvort þú ert með þetta eða
ekki gefur þér val,“ segir Kári sem
telur ekki ólíklegt að innan tveggja
til þriggja ára verði komin einföld
greiningarpróf á markað, þar sem
einungis þurfi litla blóðprófu til að
skera úr um hvort fólk sé með
breytileikann. Einnig eru kostir í
lyfjaþróun við sykursýki 2 nú skoð-
aðir hjá ÍE, en það tekur lengri tíma.
Um kostnað við prófið segir Kári:
„Próf sem hægt væri að markaðs-
setja um allan heim er próf sem ég
held að yrði ekki geysilega dýrt, en
hversu dýrt get ég ekki sagt um. Það
fer líka eftir því hvað samfélagið vill
borga fyrir svona heilbrigðisþjón-
ustu. Ef mjög lítið er borgað fyrir
slík próf eru líkurnar á að fleiri próf
verði þróuð, mun minni.“
Aðspurður telur hann líklegt að
töluverður áhugi á uppgötvuninni
gæti verið fyrir hendi, þó enn væri of
snemmt að segja til um hann þegar
viðtalið var tekið í gær. „Þú sérð að í
New York Times á þriðjudag, mið-
vikudag, fimmtudag og föstudag,
voru forsíðugreinar alla þessa daga
um sykursýki fullorðinna. Sjúkdóm-
urinn hefur vakið mikla athygli enda
er hann orðinn að faraldri í hinum
vestræna heimi.“ Um 200 milljónir
manna í heiminum eru með sjúk-
dóminn og telur Alþjóða heilbrigð-
isstofnunin (WHO) að þeir verði um
300 milljónir eftir tuttugu ár. Á Ís-
landi hafa um 5.000 manns verið
greindir en talið er að fyrir hvern
sem greinist séu 2–3 með sjúkdóm-
inn ógreindan. Stór hluti sjúklinga
greinist fyrst við meðferð vegna al-
varlegra fylgikvilla sem kosta heil-
brigðiskerfið mikla fjármuni.
Fullorðinssykursýki hefur reynst
erfðafræðingum erfiður ljár í þúfu
og því er það stór áfangi sem nú er
náð. „Erfðafræðingum hefur gengið
mjög illa að vinna með þennan sjúk-
dóm. Þannig að mér kom á óvart að
finna breytileikann, einn erfðavísi
með þetta mikil áhrif. Ég hefði veðj-
að gegn því að okkur tækist þetta
því umhverfisþátturinn er svo mik-
ill.“
Kom talsvert á óvart
Verkefnið hófst fyrir nokkrum ár-
um, einum þremur eða fjórum telur
Kári. Unnið var í samstarfi við syk-
ursýkilækninn Rafn Benediktsson
en að öðru leyti voru það alfarið vís-
indamenn Íslenskrar erfðagrein-
ingar sem unnu að rannsókninni.
En hvað gerir þessi uppgötvun
fyrir fyrirtækið Íslenska erfðagein-
ingu? „Það er mjög erfitt að segja.
Það eina sem við getum gert á þessu
augnabliki er að berja okkur á
brjóst. Svo er að sjá hvernig við þró-
um vöru á markað. En þetta er mjög
spennandi. Niðurstöðurnar komu á
óvart en svona er þetta, það er ekki
hægt að rífast við líffræðina. Og
Guði sé lof að eitthvað kemur á
óvart.“
ÍE finnur erfðabreytileika
tengdan sykursýki fullorðinna
„Hefði veðjað gegn því að okkur tækist þetta,“ segir Kári Stefánsson
Associated Press
Vitað er að sykursýki fullorðinna eykst með velmegunarvandamálinu of-
fitu. Nú hefur hins vegar fundist erfðabreytileiki sem tengist sjúkdómnum
og að sögn Kára Stefánssonar eru þeir einstaklingar yfirleitt grennri sem
fá sjúkdóminn og hafa erfðabreytileikann í erfðamengi sínu en þeir sem
ekki hafa breytileikann en veikjast samt.
Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur
aps@hi.is
Stöðugt
fylgst með
ástandinu
EINS og greint var frá í Morg-
unblaðinu í gær hefur Þróunarsam-
vinnustofnun Íslands í undirbúningi
verkefni á sviði sjávarútvegs í Sri
Lanka. Sighvatur Björgvinsson,
framkvæmdastjóri stofnunarinnar,
segir að í ljósi þess ófriðaraástands
sem ríkt hefur að undanförnu, og
endurspeglaðist í sprengingu bíls í
eigu norrænu friðargæsluliðanna
sl. föstudag, sé stöðugt fylgst með
ástandinu. Ófriðurinn er hvað
mestur á norður- og norðaust-
urhluta landsins en verkefni stofn-
unarinnar er í öðrum landshluta
þar sem ekki hefur verið mikil
ókyrrð til þessa. Sighvatur segir að
ef ókyrrð færist í vöxt á því svæði
muni stofnunin hugsa stöðuna upp
á nýtt.
„Við erum í stöðugu sambandi
við okkar umdæmisstjóra í Srí
Lanka sem er síðan í stöðugu sam-
bandi við norrænu sendiráðin, þar
sem áhættan er metin frá degi til
dags. Ef það fer að verða einhver
áhætta á svæðinu, þ.e. meiri en í
dag, munum við að sjálfsögðu kalla
okkar fólk heim,“ segir Sighvatur.
Þróunarsamvinnustofnunin er
með einn mann í Srí Lanka, Árna
Helgason, um þessar mundir og
áætlað er að sá næsti fari út í byrj-
un febrúar. Einnig verða um sex til
sjö skammtíma ráðgjafar sendir út
á árinu vegna undirbúningsverk-
efna.
GARÐAR Lárusson, starfsmaður í
norrænu friðargæslunni á Srí Lanka,
býr í höfuðstöðvum friðargæslunnar
í austurhluta borgarinnar Batticaloa
þar sem bílsprengja sprakk rétt fyrir
miðnætti sl. föstudag. Sprengingin
varð á bílastæði í eigu friðargæsl-
unnar sem er skammt frá skrifstof-
unum. Engan sakaði í sprenging-
unni, sem er fyrsta beina árásin sem
gerð er á friðargæsluliða í landinu,
en að sögn Helenar Maríu Ólafsdótt-
ur, upplýsingafulltrúa, hristi hún
virkilega upp í mannskapnum. Hún
segir að fyrst hafi verið talið að hand-
sprengju hefði verið kastað inn á
bílastæðið en síðar hafi komið í ljós
að sprengibúnaði hafði verið komið
fyrir undir bíl. Sá eyðilagðist en jafn-
framt skemmdust þrír bílar eitthvað
minna.
Helen segir að í kjölfarið hafi verið
boðað til fundar og rætt hvort loka
þyrfti skrifstofum í Batticaloa af ör-
yggisástæðum. Ákvörðun hafi hins
vegar verið tekin um að efla örygg-
isgæslu frekar og halda starfseminni
áfram. Lögreglumenn hafi séð um
gæsluna en það hafi ekki dugað til og
var herinn því fenginn til öryggis-
gæslu.
Helena María segir að hörð við-
brögð hafi borist frá stjórnvöldum
sem lýstu því yfir að þau myndu gera
allt sem í þeirra valdi stæði til að
hjálpa við rannsókn málsins. Einnig
hafi Tamil-tígrarnir komið með yfir-
lýsingar og fordæmt árásina. Ekki er
talið að þessir aðilar hafi staðið að
árásinni og beinast spjótin fremur að
öðrum öflum á Srí Lanka. „Líklegt er
talið að þetta hafi verið tilraun til að
hræða okkur því þegar litið er á árás-
ina þá vita flestir að við erum ekki á
eftirlitsferðum á kvöldin eða nótt-
unni og bílastæðið er jafnframt svo-
lítið frá húsnæðinu þannig að lítil
hætta var fyrir starfsfólk okkar,“
segir Helen María.
Sprengingin í kjölfar
yfirlýsingar friðargæslunnar
Í hádeginu á föstudag sendi nor-
ræna friðargæslan frá sér harðorða
yfirlýsingu eftir að árás var gerð á
her yfirvalda. Helen María segir að
alvarlegar árásir hafi verið gerðar á
herliðin nyrst í landinu að undan-
förnu og séu tamil-tígrarnir spurðir
neiti þeir aðild og segi fólkið í landinu
bera ábyrgð á þeim. „Við sendum út
yfirlýsingu þar sem við töldum þau
svör ekki fullnægjandi og gætum því
ekki útilokað aðild þeirra. Í sömu yf-
irlýsingu sögðum við að herinn og
stjórnvöld hefðu ekki staðið sig sem
skyldi í að afvopna önnur öfl sem
starfa í landinu,“ segir Helen María
en vill þó ekki gefa í skyn að beint
samband sé á milli yfirlýsingarinnar
og sprengjunnar. „Við vitum að það
eru einnig önnur öfl á ferðinni og erf-
itt er að benda á einn hóp. Það er fullt
af fólki sem myndi græða á því að hér
brytist aftur út stríð.“
Fréttir af undanförnu hafa bent til
vaxandi ókyrrðar í landinu og tekur
Helen undir það en segir forseta
landsins á hinn bóginn hafa gefið það
út að hann ætli ekki að gefa undan og
standi fast á því að hernum verði ekki
ýtt út í stríð.
Bíða eftir niðurstöðum
rannsóknar
Fimm Íslendingar eru um þessar
mundir staddir í Srí Lanka við
vopnahléseftirlit á vegum norrænu
friðargæslunnar og býr Helen María
í höfuðborginni Colombo. Hún telur
ekki ráðlegt að kalla friðargæsluliða
heim að svo komnu máli. „Ég held að
menn verði að bíða og sjá hvað kem-
ur út úr rannsókninni. Meðan við vit-
um ekkert um þessa sprengju er ekki
viturlegt að fara að kalla neinn
heim,“ segir Helen og bætir við að
fundað verði í dag um málið en óvíst
er hvort einhverjar fréttir verði af
sprengjunni.
Ragnheiður Árnadóttir, aðstoðar-
maður utanríkisráðherra, sagði í
gærkvöldi að friðargæsluliðar væru
undir stöðugu og góðu eftirliti utan-
ríkisráðuneytisins. Málefni friðar-
gæsluliðanna í Srí Lanka eru til
skoðunar, eins og endranær, og staða
þeirra metin reglulega. Ragnheiður
segir að eðlilega verði farið yfir þetta
atvik sérstaklega en engin ákvörðun
hefur verið tekin um aðgerðir.
Íslenskir friðargæsluliðar halda áfram starfi sínu í Srí Lanka þrátt fyrir árás á höfuðstöðvarnar
Margir græða ef stríð brýst út
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
Ljósmynd/RÚV
Bíll friðargæsluliðanna á Srí Lanka er gerónýtur eftir árásina.
Óbreyttir
álagningar-
stuðlar í
Borgarbyggð
LJÓST er að álagningarstuðlar
vegna fasteignagjalda í Borgarbyggð
verða óbreyttir í ár frá því sem var á
síðasta ári. Fasteignamat í Borgar-
nesi hækkaði um 30% á sérbýli og um
20% á íbúðum í fjölbýli og á atvinnu-
húsnæði, en hækkun matsins í dreif-
býli var um 10% og munu því gjöld
tengd matinu hækka hlutfallslega
sem þessu nemur.
Páll Brynjarsson, bæjarstjóri,
sagði að sáralítil umræða hefði farið
fram um þessi efni á bæjarstjórnar-
fundi í gær og því stæði fyrri ákvörð-
un um óbreytta álagningarprósentu
fasteignagjalda í Borgarbyggð. Meg-
inástæða þess að málið hefði ekki
komið til umræðu væru tilmæli sam-
einingarnefndar sveitarfélaganna á
svæðinu sem sameinast að loknum
bæjarstjórnkosningum í vor þess efn-
is að þau sameini álagningu fasteigna-
skatta í bæjarfélögunum. Borgar-
byggð hefði verið með lægsta
stuðulinn 0,41% og önnur sveitarfélög
hefðu lækkað sig niður í það.
Nýtt nafn í vor
Sveitarfélögin Borgarbyggð, Borg-
arfjarðarsveit, Hvítársíðuhreppur og
Kolbeinsstaðahreppur sameinast í
nýju sveitarfélagi í júní og verður kos-
ið í sameinuðu sveitarfélagi í bæjar-
stjórnarkosningunum 26. maí næst-
komandi og verður þá einnig kosið um
nýtt nafn fyrir sveitarfélagið.
♦♦♦
LEIGUBÍLSTJÓRI lenti í vand-
ræðum með farþega í Keflavík í gær-
morgun. Farþeginn sló til hans og
braut svo framrúðu bílsins. Lögregl-
an fann manninn nokkru síðar eftir
að leigubílstjórinn kærði hann. Var
tekin af honum skýrsla og honum
sleppt að því loknu.
Braut
framrúðu
leigubílsins