Morgunblaðið - 16.01.2006, Side 9

Morgunblaðið - 16.01.2006, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 2006 9 FRÉTTIR Mánudagur 16.01 Karrý korma með naanbrauði Þriðjudagur 17.01 Grænmetisbaka með heitri sósu Miðvikudagur 18.01 Aloo-Saag spínatpottur & buff Fimmtudagur 19.01 Fyllt paprika með pastasalati Föstudagur 20.01 Karabískur pottur í appelsínusósu Helgin 21.01-22.01 Próteinbollur með cashewhnetusósu Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Glæsilegar ullarkápur á stórútsölunni Bláu húsin Fákafeni, sími 588 4545, netfang: postulín.is Sigurstjarnan Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 11-15 Öðruvísir vörur en annars staðar 20-70% afsláttur Einnig á nýjum vörum Stórútsala Síðumúla 13 108 Reykjavík Sími 568 2870 Opið frá 10:00–18:00 Dæmi um verð: Áður: Nú: Tveir fyrir einn Þú kaupir eina flík og færð aðra fría Rúllukragapeysa 6.000 1.900.- + ein frí Marglit peysa 7.200 1.900.- + ein frí Jakkapeysa 6.200 2.900.- + ein frí Dömubolur 3.200. 1.000.- + ein frí Flís-jakkapeysa 5.300 1.900.- + ein frí Dömuskyrta 4.900 1.900.- + ein frí Ullarblazer 6.600 1.900.- + ein frí Gallajakki 5.300 1.900.- + ein frí Úlpa m. hettu og skinni 5.800 1.900.- + ein frí Mokkajakki 10.800 2.900.- + ein frí Kjóll m. perlum 7.300. 1.900.- + ein frí Gallapils 4.800 1.900.- + ein frí Teinóttar buxur 3.600 1.000.- + ein frí Kvartbuxur 4.700 1.500.- + ein frí Gallabuxur 5.400 1.900.- + ein frí Silfur sandalar 5.400 1.500.- + ein frí Hefst í dag Tveir fyrir einn tilboð á kr. 990 og 500 BJARNI Gaukur Þórmundsson gefur kost á sér í þriðja sæti Sam- fylkingarinnar í Kópavogi fyrir bæjarstjórnar- kosningarnar í vor. Hann er menntaður íþróttakennari frá Íþróttakenn- araháskóla Íslands og starfar sem slíkur í dag. Bjarni hefur lengi tekið virkan þátt í félagsmálum og hefur starf- að í íþróttapólitíkinni síðan 1989 þegar hann var formaður körfu- knattleiksdeildar Breiðabliks, þá einungis 21. árs að aldri. Hann sit- ur nú í framkvæmdastjórn og að- alstjórn Breiðabliks, unglingaráði körfuknattleiks- og knatt- spyrnudeildar Breiðabliks og stjórn Körfuknattleikssambands Ís- lands, KKÍ. Bjarni hefur látið til sín taka í íþrótta- og æskulýðsmálum hvar sem hann hefur komið, enda hefur hann mikinn áhuga á að bæta for- varnir meðal barna og unglinga í gegnum íþrótta- og æskulýðsmál. Ekki bara þessi hefðbundnu mál sem eru í dag styrkt af sveitafélög- unum heldur einnig önnur æsku- lýðsmál, t.d. tölvu-, videó- og jað- arsportsklúbba undir handleiðslu launaðs leiðbeinanda eins og er í íþróttum, skátastarfi og tónlist. Bjarni Gaukur Þórmundsson Bjarni stefnir á 3. sætið INGIMUNDUR K. Guðmundsson býður sig fram í 4. sætið í próf- kjöri Sjálfstæð- isflokksins í Kópavogi. Ingi- mundur er 35 ára gamall. Hann hef- ur sl. 3 ár setið í stjórn Sjálfstæðisfélags Kópavogs. Þá hefur Ingimundur setið í leik- skólanefnd Kópavogs fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins sl. 4 ár. Ingimundur var ritari Geðhjálpar frá 1995 til 1997 og varaformaður frá 1997–1998. Ingimundur var aft- ur kjörinn í stjórn félagsins 2001. 2002–2004 var hann gjaldkeri fé- lagsins. Ingimundur var varafulltrúi Geð- hjálpar í stjórn Öryrkjabandalags- ins, 1996–1998 og 2001–2004. Hann sat í atvinnumálanefnd Ör- yrkjabandalagsins frá 1997–2000. Hann er nú formaður kjaramála- nefndar Öryrkjabandalagsins. Frá 2004 hefur Ingimundur setið í trúnaðarráði Verslunarmannafélags Reykjavíkur og verið fulltrúi Versl- unarmannafélagsins á ASÍ þingi. Árið 1998 gekk Ingimundur í JCI Garðabæ, Kópavog. Hann var vara- forseti félagsins 1999–2000 og for- seti 2000–2001. Hann gegnir nú embætti landsgjaldkera JCI hreyf- ingarinnar á Íslandi. Ingimundur er kerfisstjóri hjá Og Vodafone. Í fréttatilkynningu frá Ingimundi segir að fjölskyldumál skipi stóran þátt í áherslumálum hans. „Leik- skólamálin eru ofarlega í huga og brýnt að leysa þann vanda sem upp er kominn. M.a. þarf að skoða vand- lega hvort Kópavogur eigi að hætta því samstarfi sem nú er í launanefnd sveitarfélaganna og semja beint við sitt starfsfólk. Skóla- og íþróttamál má sam- þætta betur en gert er í dag. T.d. mætti koma á meiri tengingu íþróttafélaganna við skólana og tengja þá jafnvel saman dægradvöl yngstu barnanna við íþróttastarf íþróttafélaganna. Huga þarf betur að tenglsum og samþættingu leikskóla og grun- skóla, þannig að tenging elstu barna leikskóla við grunnskólann verði skýr. Skoða þarf samvinnu við ríkið um að gera hluta 5 ára starfsins að skyldunámi. Ingimundur telur eðlilegt að um- sjón með dagmæðrum sé á sömu hendi og önnur dagvistunarmál bæj- arins og því rétt að fræðslusviðið taki við umsjón þeirra mála,“ segir m.a. í tilkynningu frá Ingimundi. Ingimundur K. Guðmundsson Býður sig fram í 4. sætið í Kópavogi HELGA Jóns- dóttir gefur kost á sér í sjötta sæti á lista Sjálfstæð- isflokksins á Sel- tjarnarnesi fyrir bæjarstjórnar- kosningarnar sem fram fara í vor. Prófkjörið fer fram 4. febrúar nk. Helga er 38 ára gömul og hefur verið búsett á Seltjarnesi frá 1991 að und- anskildum 5 árum í Bandaríkj- unum. Hún hefur lokið námi í ferðamálafræðum og lýkur í vor B.S. prófi í viðskiptafræði við HÍ með áherslu á stjórnun. Helga hef- ur unnið skrifstofustörf, lengst af hjá Flugfélaginu Atlanta sem skrif- stofustjóri. Helstu baráttumál Helgu eru m.a. uppeldis- og skólamál, skipu- lagsmál, íþrótta-og tómstundamál ásamt því að tryggja aðhald og ráð- deild í rekstri bæjarfélagsins bæj- arfélögum til hagsbóta. Helga Jónsdóttir Stefnir á 6. sætið á Sel- tjarnarnesi MARGRÉT Björnsdóttir, varabæjarfulltrúi og formaður Um- hverfisráðs Kópavogs, býður sig fram í 3. sæti í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Kópavogi sem fram fer 21. janúar nk. vegna kom- andi bæjarstjórnarkosninga. Margrét hefur verið varabæj- arfulltrúi síðustu tvö kjörtímabil og hefur setið í m.a. skipulagsnefnd og umferðarnefnd, auk þess sem hún hefur verið formaður umhverf- isráðsins á þessu kjörtímabíli. Hún hefur einnig tekið virkan þátt í starfsemi sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi um langt árabil og hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum á vegum þeirra, m.a. sem formaður Sjálfstæðiskvennafélagsins Eddu. Jafnframt á hún sæti í stjórn Lands- sambands sjálfstæðiskvenna og stjórn umhverfis- og skipulags- nefndar Sjálfstæðisflokksins. Þá hefur Margrét setið í stjórn sóknarnefndar Hjallakirkju, Skátafélagsins Kópa, Norræna fé- lagsins í Kópavogi, Skógrækt- arfélags Kópavogs og Foreldra- og kennarafélags Hjallaskóla, auk þess sem hún var ein af stofnendum Körfuknattleiksdeildar kvenna hjá Breiðabliki. Á vettvangi íþróttamála í dag starfar hún sem formaður Sigl- ingafélagsins Ýmis og er varamaður í stjórn UMSK. Í fréttatilkynningu frá Margréti segir að hún leggi höfuðáherslu á að haldið verði áfram að treysta og byggja upp þjónustu við bæjarbúa Kópavogs. Með stækkandi sveitarfé- lagi náist aukin stærðarhagkvæmi og nauðsynlegt sé að þjónusta bæj- arins eflist samhliða og í takt við stækkun hans. Mikilvægur liður í þessu er að mati Margrétar að val- kostum bæjarbúa fjölgi, hvort sem litið er til dagvistunar, leik- og grunnskóla eða öldrunarmála. Sem dæmi nefnir hún að fjölga verði val- kostum eldri Kópavogsbúa með m.a. litlum sérbýlum á einni hæð. Jafn- framt þurfi börn og unglingar að hafa úr fleiri kostum að velja á skólatíma, m.a. með því að tvinna betur saman íþrótta- og tómstunda- starf annars vegar og skólastarfið hins vegar í samvinnu við íþrótta- félög og skóla. Þá sé afar brýnt að foreldrar ungra barna hafi tryggan aðgang að dagvistunar- og leik- skólaplássum og að virkja megi bet- ur afl einkareksturs á leikskólastig- inu í því skyni. Margrét er fædd í Reykjavík en hefur búið í Kópavogi frá árinu 1957. Margrét Björnsdóttir Býður sig fram í 3. sæti í Kópavogi GÍSLI Rúnar Gíslason býður sig fram í 3. til 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins í Kópavogi vegna komandi bæjarstjórn- arkosninga. Gísli Rúnar er formað- ur Sjálfstæðisfélags Kópavogs og forstöðumaður lögfræðisviðs Fiski- stofu. Áður hefur hann m.a. starfað sem fulltrúi sýslumannsins á Ísa- firði. Gísli Rúnar hefur setið í stjórn Sjálfstæðisfélags Kópavogs síðan 2001 og verið varaformaður þess í tvö ár áður en hann varð formaður félagsins. Gísli Rúnar situr einnig í stjórn fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélag- anna í Kópavogi. Hann á einnig sæti í Lista- og menningarráði Kópavogs fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Kópavogi og situr í stjórn Gerðarsafns, lista- safns Kópavogs. Í tilkynningu frá Gísla Rúnari seg- ir að hann bjóði sig fram sem valkost fyrir þá sem vilja nýja ásýnd og breyttan lista sjálfstæðismanna í Kópavogi fyrir næstu sveitarstjórn- arkosningar. Hann hafi mikla reynslu af störfum við stjórnsýslu og félagsstörfum sem muni nýtast til starfa í þágu íbúa Kópavogs. Stefnumið Gísla Rúnars eru styrk fjármálastjórn og niðurgreiðsla skulda Kópavogsbæjar, skilvirk og aðgengileg þjónusta við bæjarbúa og að Kópavogsbær sé bær fjöl- skyldunnar. Hann vill beita sér fyrir því að mótuð verði framsækin, skýr og öfl- ug fjölskyldustefnu þar sem lögð verði áhersla á þarfir fjölskyldunnar í heild. Hann telur mikilvægt að áfram verði veittur öflugur stuðn- ingur við íþróttastarfsemi í bænum og að bæjaryfirvöld sýni framsýni og metnað í stuðningi við menningu og listir í bænum og stuðli að fjöl- breyttu menningarlífi. Þá telur hann fjölbreytt og blóm- legt atvinnulíf vera eina af for- sendum árangurs í rekstri sveitarfé- laga og nauðsynlegan hluta af ímynd hvers bæjarfélags. Gísli Rúnar Gíslason Gefur kost á sér í 3. til 4. sæti í prófkjöri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.