Morgunblaðið - 16.01.2006, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.01.2006, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Rúmlegur helmingursvarenda í nýrrikönnun sagði að þeir eða einhver í fjöl- skyldu þeirra hefði orðið fyrir afbrotum á síðustu fimm árum, þar af 22% ár- ið 2004. Þetta kemur fram í bókinni „Brotaþolar, lög- reglan og öryggi borgar- anna“ eftir þau Rannveigu Þórisdóttur, Helga Gunn- laugsson og Vilborgu Magnúsdóttur. Ríkislög- reglustjóri og Háskólaút- gáfan gefa bókina út. Í bókinni eru birtar helstu niðurstöður úr íslenska hluta Alþjóðlegu fórnarlamba- könnunarinnar sem framkvæmd var hér á landi í fyrsta skiptið í byrjun árs 2005. Um er að ræða spurningalistakönnun sem bygg- ist á úrtaki 3.000 Íslendinga 16 ára og eldri af landinu öllu og var svar- hlutfall 67%. Þegar litið er til reynslu síðustu fimm ára sögðu hlutfallslega flest- ir að þeir eða einhver á heimili þeirra hefði orðið fyrir reiðhjóla- þjófnaði (22%), þá þjófnaði á veski eða öðrum munum (20%), ofbeldi eða hótun (16%) eða að munum væri stolið úr ökutæki þeirra (16%). Mun færri höfðu orðið fyrir kynferðisbroti (6%), tilraun til inn- brots (5%), innbroti (4%), þjófnaði á ökutæki (3%) eða ráni (2%). Fleiri konur en karlar verða fyrir kynferðisbroti Mun fleiri konur (10%) en karl- ar (1,3%) sögðust hafa orðið fyrir kynferðisbroti en ekki var mikill munur á því hvort þau lýstu atvik- inu sem alvarlegu kynferðisbroti eða særandi framkomu. Af þeim sem höfðu orðið fyrir kynferðis- brot á síðustu fimm árum voru hlutfallslega flestir á aldrinum 16- 25 ára (47,5%) en hlutfall fórnar- lamba lækkar eftir því sem fólk eldist. Þannig voru 4% í hópnum 56 ára og eldri. Þegar spurt var nánar hvort fórnarlömbin hefðu þekkt brotamanninn eða -menn- ina í alvarlegum kynferðisbrotum sögðust 34% ekki hafa þekkt hann eða þá og 42% sögðust hafa þekkt a.m.k. einn með nafni. Þegar spurt var um tengsl við þann sem réðst á hvert fórnarlamb í alvarlegu mál- unum kom í ljós að í nærri 13% til- vika var um að ræða náinn vin og í tæplega 10% tilvika vinnufélaga. Ennfremur kemur í ljós hvað al- varlegu brotin snertir, að lang- samlega oftast eru brotin framin annars staðar í borginni eða bæn- um (46,8%) en annar vettvangur er á heimili eða dvalarstað (15%) nálægt heimili eða dvalarstað (4,3%), í vinnunni (8,5%), annars staðar á landinu (8,5%) og erlendis (17%). Mun fleiri karlar en konur sögð- ust hins vegar hafa orðið fyrir of- beldi eða alvarlegri hótun, eða um 21 prósent karla og 12 prósent kvenna. Sömu sögu er að segja af ránum, ívið fleiri karlar en konur höfðu orðið fyrir ráni. En hvernig finnst fólki að refsa eigi þeim sem brjóta af sér? Til að skoða viðhorf til refsingar voru svarendur spurðir að því hvaða refsingu þeir teldu 21 árs mann eiga að fá sem fundinn er sekur um innbrot í annað sinn þar sem hann stal sjónvarpi. Helmingur svarenda taldi samfélagsþjónustu viðeigandi refsingu en 19% nefndu fjársektir og 17% fangelsi. Vakin er athygli á því að karlar nefndu fangelsisdóm frekar en konur. Þær hölluðust frekar að sam- félagsþjónustu sem hæfilegri refs- ingu. Íbúar landsbyggðarinnar voru þá hlynntari samfélagsþjón- ustu en höfuðborgarbúar sem nefndu fangelsi oftar. Athygli vek- ur einnig að yngri þátttakendurn- ir nefndu fangelsisrefsingu oftar en hinir eldri. Stefnt að því að dýpka þekk- ingu á viðhorfum til afbrota En hver eru næstu skref að mati höfundanna? Stefnt er að því að dýpka þekkingu á viðhorfum til afbrota, sérstaklega hvað varðar viðhorf til lögreglu og hlutverks hennar í samfélaginu. Öryggi hef- ur t.a.m. hingað til gjarnan verið mælt með því að spyrja út í hversu öruggan eða óöruggan viðkom- andi telur sig vera þegar hann er einn á gangi að næturlagi í hverfi sínu eða á öðru skilgreindu svæði. Höfundar greina frá því að miklar umræður hafi orðið um það hvað þessar spurningar mæla í raun og veru og hvort þær hafi sömu merkingu fyrir alla hópa. Að mati höfunda er mikilvægt að nota fleiri aðferðir en spurningalistakannan- ir til að fá fram dýpri skilning á þessu hugtaki og öðrum sambæri- legum. Ein aðferð sé að styðjast við umræðu í „fókushópum“. Þá eru einstaklingar með ákveðna reynslu eða viðhorf fengnir til að ræða málefnið á opinskáan máta sín í milli. Rannsakandi stýrir síð- an umræðunum inn á ákveðin svið en spyr einnig nánar út í einstök ummæli. Samanburðarþáttur rannsókn- arinnar er einnig afar mikilvægur að mati höfunda í ljósi þess að hingað til hefur samanburður á af- brotum á Íslandi við önnur lönd yfirleitt byggst á opinberum töl- um sem setja þarf ýmsa fyrirvara við. Fréttaskýring | Brotaþolar, lögreglan og öryggi borgaranna Eru vinirnir varasamir? 2% urðu fyrir kynferðisbrotum og bentu oftast á nána vini og vinnufélaga Annar hver maður er fórnarlamb afbrota. Þjófnaður og ofbeldi eða hótun algengustu brotin  Svarendur voru spurðir hvort þeir eða einhver í fjölskyldunni hefði orðið fyrir afbrotum árið 2004. Flestir nefndu þjófnað og ofbeldi eða hótun (7%), þjófnað á reiðhjóli (5%) og þjófnað úr öku- tæki (4%). Tæplega 2% sögðust hafa orðið fyrir kynferðisbroti, og þar af voru það nánir vinir sem oftast voru nefndir sem ger- endur í alvarlegu brotunum. Vinnufélagar koma líka við sögu í þessum brotaflokki. Eftir Egil Ólafsson og Örlyg Stein Sigurjónsson egol@mbl.is orsi@mbl.is Maður getur varla trúað því að maður hafi verið svona ofsalega duglegur, Ragnhildur mín. FYRSTA útskrift nýs sameinaðs háskóla, Háskólans í Reykjavík, fór fram í Borgarleikhúsinu á laug- ardag. Skólinn sameinaðist Tækniháskólanum á síð- asta ári. Að þessu sinni útskrifuðust 229 nemendur. Fjöldi útskrifaðra úr viðskiptadeild var 103, 15 nem- endur úr lagadeild, 84 útskrifuðust með há- skólagráðu úr tækni- og verkfræðideild og 27 nem- endur af frumgreinasviði tækni- og verkfræði- deildar. Háskólinn í Reykjavík útskrifaði í fyrsta sinn nem- endur með MSc gráðu í fjárfestingarstjórnun (MSIM) úr viðskiptadeild og MSc gráðu í tölvunarfræði. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Fyrsta útskrift nýs sameinaðs háskóla 1. DESEMBER 2005 voru 84,1% landsmanna skráð í þjóðkirkjuna en fyrir áratug var þetta hlutfall 91,5%. Á sama tíma hækkaði hlut- fall íbúa í fríkirkjusöfnuðunum þremur – Fríkirkjunni í Reykjavík, Óháða söfnuðinum og Fríkirkjunni í Hafnarfirði – úr 3,3% í 4,6%. Þetta kemur fram á vefsíðu Hag- stofu Íslands. Skráðum trúfélögum hefur fjölg- að talsvert á undanförnum árum. Skráð trúfélög utan þjóðkirkju og fríkirkjusafnaða eru nú 23 en voru 14 fyrir 10 árum. Þessum trúfélög- um tilheyra nú 4,6% íbúa en voru 2,7% árið 1995. Kaþólska kirkjan er þeirra fjölmennust, þar hefur meðlimum fjölgað um meira en helming frá árinu 1995, úr 2.553 í 6.451. Árið 2005 tilheyrðu því 2,2% þjóðarinnar kaþólsku kirkjunni en fyrir áratug voru kaþólskir 1%. Hvítasunnusöfnuðurinn er næst stærsta trúfélagið utan þjóðkirkju og fríkirkjusafnaða. Þar eru með- limir nú 1.854 en voru 1.148 árið 1995 (0,6% þjóðarinnar 2005 en 0,4% árið 1995). Önnur trúfélög hafa innan við 1.000 meðlimi og í engu þeirra er hlutfall meðlima yfir 0,3% af íbúafjölda. Í óskráðum trúfélögum og með ótilgreind trúarbrögð voru 3,9% þjóðarinnar 2005 en hafði verið 1% árið 1995. Utan trúfélaga voru 2,5% 2005 en árið 1995 voru þeir 1,5%. Nokkrar breytingar hafa orðið á skipan sókna og prestakalla og á síðasta ári sameinuðust tvö pró- fastsdæmi í eitt, Barðastrandarpró- fastsdæmi og Ísafjarðarprófasts- dæmi í Vestfjarðaprófastsdæmi. Sóknarbörnum þjóð- kirkjunnar fækkar enn FARÞEGUM um Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar fjölgaði um 11% á árinu 2005 miðað við árið 2004, eða úr rétt rúmum 1.637 þúsund farþegum í tæpa 1.817 þúsund farþega. Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur rétt tæpum 11% milli ára, en farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir N-Atlantshafið fjölgaði um 13%. Þetta er í samræmi við farþegaspá sem breska fyrirtækið BAA Plc., sem rekur stærstu flugvelli í Bret- landi og víðar, gerði í upphafi árs 2005. Í þeirri spá er jafnframt gert ráð fyrir að farþegafjöldi muni fara í 3,2 milljónir árið 2015. Skipulagssér- fræðingar BAA horfa til ýmissa þátta sem áhrif hafa svo sem hag- vaxtar á Íslandi, fargjalda, markaðs- sóknar og vinsælda Íslands sem án- ingarstaðar ferðafólks. Um 11% fjölg- un farþega í Keflavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.