Morgunblaðið - 16.01.2006, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 16.01.2006, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 2006 23 UMRÆÐAN FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár LÓÐIR ÓSKAST TIL KAUPS Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU Hef sérhæft mig í sölu á lóðum og öðru tengdu byggingarrétti. Til mín hafa leitað aðilar sem hafa áhuga á kaupa nýbyggingarlóðir/byggingarétt ásamt atvinnuhúsnæði. Hef einnig til sölu gistihús í fullum rekstri á höfuðborgarsvæðinu. Ég óska einnig eftir eignum með byggingarrétti/nið- urrifs. Áhugasamir vinsamlega hafið samband og ég mun fúslega veita nánari upplýsingar. Hákon Svavarsson, lögg. fasteignasali, sími 898 9396. Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Greiðsluáskorun Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og með 16. janúar 2006, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. janúar 2006 og önn- ur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 16. janúar 2006, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, van- skilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skráningargjaldi vegna lögskráningar sjómanna, ið- gjaldi í Lífeyrissjóð bænda, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipu- lagsgjaldi, skipagjöldum, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöld- um, sem eru: Tekjuskattur og útsvar ásamt verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, sérstakur tekju- skattur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, fjármagnstekjuskattur, slysatrygginga- gjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, búnaðargjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhús- næði, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjald- anda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 12.700 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 1.350 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreg- inn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrr- greindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 16. janúar 2006. Tollstjórinn í Reykjavík Sýslumaðurinn í Kópavogi Sýslumaðurinn í Hafnarfirði Sýslumaðurinn í Keflavík Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli Sýslumaðurinn á Akranesi Sýslumaðurinn í Borgarnesi Sýslumaðurinn í Stykkishólmi Sýslumaðurinn í Búðardal Sýslumaðurinn á Ísafirði Sýslumaðurinn í Bolungarvík Sýslumaðurinn á Patreksfirði Sýslumaðurinn á Hólmavík Sýslumaðurinn á Siglufirði Sýslumaðurinn á Sauðárkróki Sýslumaðurinn á Blönduósi Sýslumaðurinn á Akureyri Sýslumaðurinn á Húsavík Sýslumaðurinn á Ólafsfirði Sýslumaðurinn á Seyðisfirði Sýslumaðurinn á Eskifirði Sýslumaðurinn á Höfn Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Selfossi Sýslumaðurinn í Vík Sýslumaðurinn á Hvolsvelli Gjaldheimta Vestfjarða Gjaldheimta Austurlands Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum Stórútsala Gjafa gallery gjafavöruverslun Aðalstræti 7 — sími 896 2760 — www.gjafagallery.com Nýtt kortatímabil Útsalan er hafin Hulda Guðmundsdóttir: „Ég tel að það liggi ekki nægilega ljóst fyrir hvernig eða hvort hinn evangelísk-lútherski vígslu- skilningur fari í bága við það að gefa saman fólk af sama kyni …“ Birgir Ásgeirsson: Opið bréf til vígslubiskups Skálholtsstiftis, biskups Íslands, kirkjuráðs og kirkjuþings. Jakob Björnsson: Útmálun hel- vítis. „Álvinnsla á Íslandi dregur úr losun koltvísýrings í heim- inum borið saman við að álið væri alls ekki framleitt og þyngri efni notuð í farartæki í þess stað, og enn meira borið saman við að álið væri ella fram- leitt með raforku úr eldsneyti.“ Þorsteinn H. Gunnarsson fjallar um rjúpnaveiðina og aug- lýsingu um hana, sem hann telur annmarka á. Prófkjörsgreinar á mbl.is www.mbl.is/profkjor Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar UMRÆÐAN síðustu vikur ársins hefur snúist um afleiðingar áfengis- og vímuefnaneyslu. Rætt hefur verið um að neyslan valdi æ fleirum vand- ræðum og allt of margir hafa týnt líf- inu. Bent hefur verið á hvaða úrræði séu til fyrir þá sem í vanda eru komnir og hvernig er hægt að koma þeim til hjálpar. Það er aðdáunarvert starf sem unnið er í með- ferðargeiranum og hve margir ná sér á strik og hætta neyslu. Við skulum þakka þeim sem leggja þar lið. Er nóg að vera með björgunarnet undir þeim sem stíga þennan línudans? Það hefur lítið verið rætt um hversu mikill óþarfi það er að taka þessa áhættu. Það hefur ekki verið haldið á lofti þeim fjöldamörgu leiðum sem hægt er að fara án þess að neyta áfengis og vímuefna. Fjölmiðlar hafa verið ósparir að þiggja fé frá áfengisumboðum til að hvetja til neyslu á áfengi. Það eru farnar ótal leiðir til að telja okkur trú um að áfengi sé ómissandi við öll tækifæri. Ágengni áfengisumboð- anna er yfirgengileg og birtist okkur á ótrúlegustu stöðum. Það má nefna að flestir fjölmiðlar landsins hafa birt hvatningar í einhverri mynd, hvort sem þeir telja það vera löglegt eða ekki. Verslanir hafa tekið upp á sitt einsdæmi að hvetja til neyslu áfengis með ákveðnum tegundum matar. Netsíður eru notaðar óspart þó að það séu bloggsíður barna og unglinga eða annarra að þeim for- spurðum. Í desember fór af stað átak til að vekja athygli á óáfengum drykkjum og að vekja fólk til umhugsunar um að hafa ekki áfengi um hönd innan um börn og ungmenni þar sem for- eldrar sem fyrirmynd eru sterk forvörn. Brautin, bindindisfélag ökumanna, í samvinnu við Te og kaffi og Sam- starfsráð um forvarnir fengu í lið með sér Jónínu Tryggvadóttur ís- landsmeistara kaffibarþjóna til að setja saman uppskriftir að óáfengum drykkjum. Það er ánægjulegt þegar óeigingjarnt framtak forvarnaraðila kemur af stað umræðu og margir fylgja í kjölfarið og leggja um- ræðunni lið. Bárður Guðlaugsson fagstjóri framreiðslusviðs mennta- skólans í Kópavogi, sem kennir bar- þjónum að laga drykki, bendir á að hægt sé að gera flesta kokteila óáfenga í dag með því að nota hinar fjölmörgu tegundir af bragðbættu sírópi í staðinn fyrir áfengi. Það má gera meira af því að birta efni sem hvetur fólk til umhugsunar um hvort eigi að stíga það skref að neyta áfengis eða annarra vímuefna þar sem sú leið sé varasöm. Það líf sem auglýst er að fáist með áfengis- og vímuefnaneyslu er ekki í neinum tengslum við raunveruleikann. Óáfengir drykkir eru sjálfsagður valkostur Aðalsteinn Gunnarsson fjallar um áfengismál ’Það má gera meira afþví að birta efni sem hvetur fólk til umhugs- unar um hvort eigi að stíga það skref að neyta áfengis eða annarra vímuefna...‘ Aðalsteinn Gunnarsson Höfundur er formaður Barnahreyfingar IOGT á Íslandi. NÚ ER komið nóg. Fyrir 10 árum út- skrifaðist ég sem leik- skólakennari, glöð, stolt og full af eft- irvæntingu hóf ég störf. Allt frá fyrsta degi hef ég lagt allan minn metnað í starf mitt. Starf sem ekki er allra og er mjög krefjandi á allan hátt. Ég hef kynnst svo ótrúlega mörgum ynd- islegum börnum, þakk- látum foreldrum og frábæru samstarfs- fólki. Ég hef horft á börn- in „mín“ stækka og þroskast, fara í skóla og verða að ungu myndarlegu fólki. Ég hef staðið í ströngu með for- eldrum sem þurft hafa að berjast fyr- ir réttarstöðu fatlaðs barns síns, ég hef glaðst með nýútskrifuðum leikskólakennurum og sagt velkomin í hópinn. Fyrir 10 árum var ég bjartsýn, að hefja göngu mína í starfi sem ég er svo óendanlega ánægð í, þetta vil ég gera, þetta átti að vera framtíðin mín. En nú get ég ekki lengur brosað og verið stolt af menntun minni því ekki er hún mikils virði, allavega ekki þegar kemur að launaumslaginu. Nú er svo komið að það myndi borga sig fyrir mig að brenna prófskírteinið mitt og sækja um starf sem ófaglærður starfs- maður. Þetta get ég á engan hátt sætt mig við. Ekki get ég heldur sent börnum mínum þau skilaboð að nám sé einskis virði. Ungling- urinn minn er byrjaður að huga að framtíðinni og ekki get ég sagt við hann að menntun borgi sig ekki. Með þetta allt í huga, kökk í hálsinum og allt- of hraðan hjartslátt, gekk ég á fund leik- skólastjórans míns og bað um uppsagnar- eyðublað, sjaldan hefur mér liðið eins illa eins og þegar ég skrifaði nafnið mitt og ástæðu uppsagnar, vegna kjaramála. Þetta var mjög erfitt en varð að gerast. Nú get ég aðeins beðið og vonað að eitthvað gerist á næstu mánuðum og að vinnuhópur sem settur var á laggirnar komi með ein- hverjar úrbætur, annars verð ég að segja skilið við draumastarfið mitt, sem ég hef alltaf verið svo stolt af. Draumastarfið mitt Helga Björg Dagbjartsdóttir fjallar um erfiðleika sína við að yfirgefa draumastarfið sitt Helga Björg Dagbjartsdóttir ’… annars verðég að segja skil- ið við drauma- starfið mitt.‘ Höfundur er deildarstjóri á leikskólanum Ásborg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.