Morgunblaðið - 16.01.2006, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.01.2006, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Daglegt málþing þjóðarinnar á morgun „ÉG er mjög ánægður með mína út- komu og það traust sem mér er sýnt,“ segir Erling Ásgeirsson sem varð efstur í prófkjöri sjálfstæðismanna í Garðabæ á laugardag, vegna kom- andi sveitarstjórnarkosninga. Hann hlaut 848 atkvæði í fyrsta sætið. Páll Hilm- arsson, sem einnig sótt- ist eftir fyrsta sætinu, hlaut 664 atkvæði í fyrsta til annað sætið, Stefán Konráðsson hlaut 798 atkvæði í fyrsta til þriðja sætið, Sturla Þorsteinsson hlaut 787 atkvæði í fyrsta til fjórða sætið og Ragnhildur Inga Guð- bjartsdóttir hlaut 974 at- kvæði í fyrsta til fimmta sætið. Tólf gáfu kost á sér í prófkjörinu; sjö konur og fimm karlar. Á kjörskrá voru 2.200 manns og var kosningaþátttakan um 81%. Erling segir að félagatalan í sjálfstæðisfélaginu í Garðabæ hafi nærri tvöfaldast í aðdraganda próf- kjörsins og gleðst hann yfir því. Hann segist sömuleiðis ánægður með það hversu stór hluti þeirra sem voru á kjörskrá tók þátt í prófkjörinu, eða rúmlega 81%, eins og áður sagði. Það sé trúlega hlutfallslega mesta þátt- takan í prófkjöri hingað til. Samkvæmt prófkjörsreglum Sjálf- stæðisflokksins er þátttaka í prófkjöri einungis heimil flokksbundnum sjálf- stæðismönnum. „Til þess að geta tek- ið þátt í prófkjörinu skráði fólk sig í stórum stíl í sjálfstæðisfélagið í Garðabæ,“ segir Erling. Inntur eftir ástæðu þess segir hann að nýir íbúar séu þar að gera vart við sig en sjálf- sagt hafi einhver smölun átt sér stað. Hann segir að íbúum Garðabæjar hafi fjölgað um tvö þúsund frá síðustu sveitarstjórnarkosningum. Heildar- fjöldi íbúa er um 9.200. Ein kona í fimm efstu sætunum Erling hefur verið í bæjarstjórn í um tuttugu ár. Hann skipaði annað sæti á framboðslista sjálfstæðis- manna í síðustu kosningum. Ásdís Halla Bragadóttir vermdi þá efsta sætið, en hefur síðan þá snúið sér að öðrum störfum, eins og kunnugt er. Sjálfstæðismenn hafa ekki haldið prófkjör vegna sveitarstjórnar- kosninga í Garðabæ síðan 1978. Frá þeim tíma og þar til nú hefur listanum verið stillt upp. Sjálfstæðismenn eru með fjóra fulltrúa í bæjarstjórn Garða- bæjar af sjö. Fyrir síðustu kosn- ingar voru tvær konur í fimm efstu sætum framboðslista sjálfstæðismanna, en samkvæmt nið- urstöðu prófkjörsins um helgina verð- ur ein kona í fimm efstu sætunum, Ragnhildur Inga, sem hafnaði í fimmta sætinu. Erling segir það rétt að hlutfall kvenna á listanum veki óneitanlega athygli. Þetta sé hins vegar lýðræðisleg niðurstaða. Hann leggur þó áherslu á að sjálfstæðis- menn sú nú með góða konu í fimmta sætinu, baráttusætinu og bætir því við að hann telji raunhæfan mögu- leika á því að hún verði bæjarfulltrúi eftir næstu kosningar. Ingibjörg Hauksdóttir hafnaði í sjötta sætinu í prófkjörinu, Laufey Jóhannsdóttir í því sjöunda, Ragný Þóra Guðjohnsen í því áttunda, Er- lingur Þór Tryggvason í níunda sæt- inu, María Grétarsdóttir í tíunda, Auður Hallgrímsdóttir í ellefta og Rannveig Hafsteinsdóttir í tólfta. Erling Ásgeirsson varð efstur í próf- kjöri sjálfstæðismanna í Garðabæ Eftir Örnu Schram arna@mbl.is Erling Ásgeirsson „Ánægður með mína útkomu“ FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ (FME) lagði dagsektir á fjóra stofnfjáreig- endur í Sparisjóði Hafnarfjarðar (SPH) sl. haust fyrir að svara ekki eða veita ófullnægjandi svör við fyr- irspurnum eftirlitsins. Kærðu menn- irnir ákvarðanir FME til kærunefnd- ar, sem starfar skv. lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarf- semi. Kærunefndin felldi ákvarðanir FME um dagsektirnar úr gildi með þeim rökstuðningi, að það hefði ekki verið ætlun löggjafans að veita FME heimild til að beita einstaklinga, sem eiga eignarhlut í lögaðila sem rekur eftirlitsskylda starfsemi, dagsektum. 10 þúsund kr. sektir á dag FME sendi öllum stofnfjáreigend- um í SPH bréf í júní og óskaði eftir upplýsingum í tengslum við rannsókn sem hófst sl. sumar á hvort virkur eignarhlutur hefði myndast í spari- sjóðnum. Óskað FME m.a. eftir upp- lýsingum um hvort stofnfjáreigendur hefðu verið aðilar að samkomulagi um sölu stofnfjár í sparisjóðnum, þeim borist tilboð í stofnfé sitt, hvort þeir hafi gerst aðilar að samkomulagi um beitingu atkvæðisréttar á aðal- fundi, eða gerst aðilar að samkomu- lagi, formlegu eða óformlegu, um o.fl. Einn stofnfjáreigendanna svaraði ekki ítrekuðum fyrirspurnum FME og var honum tilkynnt í ágúst að tek- in hefði verið ákvörðun um að leggja á hann dagsektir, alls 10.000 kr. fyrir hvern dag allt til þess dags sem um- beðnar upplýsingar bærust FME. Maðurinn kærði ákvörðunina til kærunefndar með þeim rökum að FME væri ekki bært að lögum til að leggja á sig dagsektir og innheimta þær hjá sér. Vísaði hann til þess að ákvæði laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi þar sem skilgreint væri hverjir væru eftirlitsskyldir að- ilar sem FME hefði eftirlit með. Hvergi væri vikið að eftirlitsskyldu gagnvart einstaklingum sem ættu hlutafé eða stofnfé í fjármálafyrir- tækjum. FME vísaði í rökstuðningi sínum m.a. til þess að Fjármálaeftirlitið hefði skv. lögum heimildir til eftirlits með eigendum fjármálafyrirtækja. Það geti krafist hvers konar gagna og upplýsinga frá einstaklingum eða lög- aðilum sem eigi eða hyggist eignast eða fara með eignarhlut í fjármála- fyrirtækjum í því skyni að meta hvort þeir falli undir tilkynningaskyldu skv. lögum og hvort þeir teljist hæfir til að fara með virkan eignarhlut. Kærunefndin komst að þeirri nið- urstöðu í úrskurði sínum um málið undir lok október sl. að fyrir lægi skýr heimild FME til þess að afla upplýsinga og gagna frá kæranda um atriði er vörðuðu það hvort stofnfjár- hlutur hans teljist hluti af virkum eignarhlut í sparisjóðnum. Vísaði kærunefndin hins vegar til þess að í lögskýringargögnum eða lögum um þetta efni, verði ekki með skýrum hætti ráðið að ætlun löggjafans hafi verið að veita FME heimild til að beita einstaklinga sem eiga eignar- hlut í lögaðila sem rekur eftirlits- skylda starfsemi, dagsektum. „Að mati kærunefndar verður heimild op- inbers aðila til þess að beita einstak- linga þvingunarúrræðum og refsi- kenndum viðurlögum að byggjast á skýrri og afdráttarlausri lagaheim- ild,“ sagði í úrskurði kærunefndar, sem taldi að FME hafi skort lagastoð til að beita stofnfjáreigandann dag- sektum. Taldir hafa uppfyllt skyldur sínar með svörum til FME Aðrir stofnfjáreigendur sem beittir voru dagsektum voru ekki taldir hafa veitt fullnægjandi svör við fyrir- spurnum FME að mati eftirlitsins. Í svörum eins þeirra sagði stofnfjáreig- andinn að hann hefði ekkert sam- komulag gert um beitingu atkvæðis- réttar og sagðist ekki vera aðili að samkomulagi um frekari viðskipti með stofnfé í sparisjóðnum. FME taldi þörf á frekari upplýsingum og sendi honum ítrekaðar spurningar, m.a. um hver væri viðsemjandi hans vegna kaupa á stofnfjárhlutum, hvort það hafi verið seljandi beint eða til- teknir milligönguaðilar og þá hverjir. Ítrekaði FME einnig spurningar um hvort stofnfjáreigandinn hefði fjár- magnað kaupin af eigin fé eða lánsfé. Í svari stofnfjáreigandans kom m.a. fram að hann hefði keypt stofn- bréf af tveimur konum, ekki hafi ver- ið gerður skriflegur kaupsamningur og að um staðgreiðslu hefði verið að ræða, sem var fjármögnuð af eigin fé og lánsfé. Taldi hann sé óheimilt að upplýsa um kaupverð enda væri það trúnaðarbrot gagnvart viðsemjend- um hans. FME taldi svörin ekki fullnægj- andi og um miðjan september ákvað FME að leggja dagsektir á manninn, 10 þús. kr. fyrir hvern dag þar til um- beðnar upplýsingar bærust. Maður- inn kærði ákvörðunina til kærunefnd- ar. Hið sama gerðu hinir tveir stofnfjáreigendurnir sem voru taldir hafa gefið FME ófullnægjandi svör. Kærunefndin úrskurðaði í málum stofnfjáreigendanna þriggja 30. nóv- ember og komst nefndin að sömu nið- urstöðu og með sömu rökum og í máli þess stofnfjáreiganda sem áður er getið, þ.e. að FME skorti lagaheim- ildir til að beita stofnfjáreigendurna dagsektum.Taldi kærunefndin jafn- framt að stofnfjáreigandurnir hefðu uppfyllt skyldur sínar í þeim svörum sem þeir gáfu FME. Eins og fram hefur komið hefur FME eftir rannsókn á stofnfjárvið- skiptum í SPH nýlega tilkynnt emb- ætti ríkislögreglustjóra að grunur leiki á að lög um fjármálafyrirtæki hafi verið brotin við kaup á stofnfjár- hlutum í SPH sl. sumar. Er lögreglu- rannsókn hafin á málinu. Kærunefnd ógilti dagsektir FME Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Morgunblaðið/RAX Kærunefnd ógilti dagsektir FME á hendur fjórum stofnfjáreigendum. SIÐANEFND Blaðamanna- félags Íslands hefur komist að þeirri niðurstöðu að DV hafi ekki brotið gegn siðareglum með frétt um að gjaldkeri Fé- lags fasteignasala hefði selt ósamþykkta íbúð sem sam- þykkta og verið dæmdur til að greiða 1,3 milljónir í bætur. Kærandi taldi að á forsíðu DV hefði verið afar ósmekkleg myndbirting af honum og til- gangur framsetningarinnar á forsíðunni hefði greinilega verið sá að svívirða forystu Félags fasteignasala og valda persónu hans og starfsemi sem allra mestu tjóni og æru- meiðingum. Siðanefnd komst að þeirri niðurstöðu, að blaðamaðurinn, sem skrifaði fréttina inni í blaðinu hefði ekki brotið nein- ar reglur. Varðandi forsíðuna tekur siðanefnd undir það sjónarmið kæranda að gert hafi verið mikið úr málinu og að farið sé með mistök hans í starfi eins og um ásetning hafi verið að ræða, enda megi skilja fyrirsögnina á forsíðu á þann veg að kærandi hafi verið að selja eigin íbúð. Hins vegar telji siðanefnd að ekki sé bein- línis hægt að staðhæfa að fyr- irsögnin sé röng, því það sé vissulega málvenja að tala um að fasteignasalar selji eignir. Þá segist siðanefnd telja, að það skipti máli að kærandi hafi verið valinn til trúnaðarstarfa í félagi fasteignasala sem gjaldkeri félagsins og því sé ekki óeðlilegt að það komi fram. Það sé hins vegar hvorki í höndum siðanefndar BÍ né kæranda að meta eða ákveða fyrir fjölmiðla hvenær fjallað skuli um mál og hvenær ekki. Siðanefnd telur DV ekki brotlegt vegna fréttar um fasteignasala

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.