Morgunblaðið - 16.01.2006, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.01.2006, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING ÉG HAFÐI hlakkað til að sjá þessa sýningu. Hélt satt að segja að það lægi einhver hugsun að baki því að tefla saman Íslenska dansflokknum, Leikfélagi Reykja- víkur og þeirri flottu konu og söngkonu Ásgerði Júníusdóttur í óperu Bizet, sem hér er nefnd söngleikur. Að sérstaða hverrar listgreinar fengi að njóta sín og þær segðu okkur söguna af hinni sjálfstæðu skapríku Carmen á ein- hvern ástríðufullan nýjan hátt. Það hefði svo sannarlega mátt vænta þess af LR eftir hugrökku tilraun- ina með Sölku Völku, af Íslenska dansflokknum almennt og Ásgerði Júníusdóttur. En það gerðist ekki. Hér var engin ný merking, engin ný útfærsla. Allt var þetta bara ansi beinaber stöðluð gömul klisja um Carmen og Spánverja sem er ekki alveg ljóst hvort á rætur sín- ar að rekja til danshöfundarins bandaríska Stephen Shropshire eða leikstjórans Guðjóns Ped- ersens, því erfitt er að finna í sýn- ingunni, hvorki í leikmynd bún- ingum né leik neitt af fyrri höfundareinkennum leikstjórans, líkast því helst að hann hafi ekki verið viðstaddur. Og hugmyndaríkur er þá Steph- en Shropshire ekki, hvorki í út- færslu dansanna né staðsetningum og túlkun og hreyfingar persóna oft ærið einhæfar, menn lyfta báð- um höndum til að undirstrika mál sitt (gera Spánverjar það ekki?!) og konurnar standa helst með hendur á mjöðmum (gera spænsk- ar konur það ekki?!) og til að kór- óna allt strjúka konurnar sér svo auðvitað um brjóst og læri þegar þær þurfa að heilla kallana (gera konur það ekki svona yfirleitt?!). En þó Stephen Shropshire sé klisjukenndur kall (eða er ég að flytja yfir á hann eitthvað af ábyrgð leikstjórans sem var kannski þarna líka eftir allt sam- an) þá er varla við hann að sakast, þegar kemur að aðalvanda sýning- arinnar. Þeim vanda að í sönglist- inni sem krefst kunnáttu, danslist- inni sem krefst kunnáttu og leiklistinni sem krefst kunnáttu, er tillitslaust blandað eða teflt saman kunnáttu og kunnáttuleysi og þá getur því miður ekkert annað gerst en að kunnáttan afhjúpar af miskunnarleysi kunnáttuleysið, svo einungis það hrópar oftast á mann. Þetta er að sjálfsögðu ekki bara illa gert gagnvart þessu fallega verki Bizet. Það er illa gert gagn- vart Ásgerði Júníusdóttur (Car- men) sem stendur sorglega ein í ákaflega fallegum söng sínum. Það er illa gert gagnvart Kristjönu Skúladóttur (Michaela) og Sveini Geirssyni (Don José) sem syngja eiginlega bæði vel, einkum Krist- jana, en af kunnáttu leikarans. Það er illa gert gagnvart ísmeygilega fyndinni leikgerð Guðrúnar Vil- mundardóttur. Og auðvitað öllum í sýningunni. Og hvað býr hér eiginlega að baki? Árangurslaust, en öll af vilja gerð, leita ég að sögn þessarar að- ferðar. Merkingu sýningarinnar. Það er nokkuð langsótt að reyna til dæmis að ímynda sér að söng- konan góða eigi að tákna að Car- men sé hinn eini sanni tónn verks- ins. Sömuleiðis að þetta eigi að vera brandari þó að mönnum þyki mikið gaman að spauga um ólík- legustu hluti í íslensku leikhúsi. Nærtækara að álykta að hér sé bara verið að spara við sig óp- erusöngvara. Kannski glæný ár- angurstengd sparnaðaraðgerð í Borgarleikhúsinu? Að skera niður merkingu og kunnáttu? Já, sparast mikið við það? Reyndar sparar það mér að hafa fleiri orð um sýn- inguna. Sumstaðar og í sumum hlutum er sparað LEIKLIST Borgarleikhúsið Leikfélag Reykjavíkur og Íslenski dans- flokkurinn. Söngleikur byggður á óperu Bizet. Hand- rit: Guðrún Vilmundardóttir. Söngtextar: Bergur Þór Ingólfsson, Davíð Þór Jóns- son, Frank Hall, Kristján Hreinsson, Sig- ríður Hagalín Björnsdóttir, Sjón og Þor- steinn Valdimarsson. Danshöfundur: Stephen Shropshire. Leikstjóri: Guðjón Pedersen. Leikmynd og búningar: Helga I. Stefánsdóttir. Ljós: Lárus Björnsson. Hljóð: Ólafur Örn Thoroddsen. Leikgervi: Sigríður Rósa Bjarnadóttir. Tónlistar- stjórn og útsetningar: Agnar Már Magn- ússon. Leikarar: Ásgerður Júníusdóttir, Birna Hafstein, Marta Nordal, Kristjana Skúladóttir, Sveinn Geirsson, Theodór Júlíusson, Pétur Einarsson, Guðmundur Ólafsson, Bergur Þór Ingólfsson, Erlend- ur Eiríksson. Dansarar Íd: Aðalheiður Halldórsdóttir, Brad Sykes, Emelía Bene- dikta Gísladóttir, Guðmundur Elías Knud- sen, Guðrún Óskarsdóttir, Hjördís Lilja Örnólfsdóttir, Itamar Serussi Sahar, Katr- ín Ingvadóttir, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Peter Anderson, Steve Lorenz, Unnur E. Gunnarsdóttir, Valgerður Rúnarsdóttir. Hljómsveit: Agnar Már Magnússon, Ólaf- ur Jónsson / Óskar Guðjónsson, Ásgeir Ásgeirsson, Erik Qvick, Einar Jónsson / Eiríkur Orri Ólafsson: Róbert Þórhallsson / Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson. Borgarleikhúsið, stóra sviðið 14. janúar, 2006 kl. 20.00. Carmen Morgunblaðið/Árni Sæberg „Það er nokkuð langsótt að reyna til dæmis að ímynda sér að söngkonan góða eigi að tákna að Carmen sé hinn eini sanni tónn verksins,“ segir m.a. í umsögninni um söngleikinn Carmen sem nú er á fjölum Borgarleikhússins. María Kristjánsdóttir. SIGRÍÐUR Þorvaldsdóttir leikkona var í fyrradag valin bæjarlistamað- ur Seltjarnarness við hátíðlega at- höfn í Bókasafni bæjarins. Sigríður er þjóðkunn fyrir störf sín hjá Þjóð- leikhúsinu, og fyrir síðustu jól kom út ævisaga hennar „Í gylltum ramma“ hjá Bókaútgáfu Æsk- unnar. Sigríður þakkaði fyrir sig með ræðu og lauk henni með því að leika þrjú lög á píanó. Seinna í dag- skránni tóku dætur hennar, Þórunn og Ingibjörg Lárusdætur, upp þráðinn, ásamt unnusta Þórunnar, Snorra Petersen, sem lék á gítar undir söng þeirra systranna, auk þess sem Ingibjörg tók undir á trompet. Sigríður tekur við þessum heið- urstitli af Auði Hafsteinsdóttur, fiðluleikara, og sagði í samtali við Morgunblaðið að hún hygðist eins og forveri hennar vinna íbúum bæj- arins gagn með því að koma við í skólunum. „Ég ætla að smala börn- unum í rútur og fara með þau niður í Þjóðleikhús; sýna þeim minn heimavöll. Mig langar að kynna þau fyrir því lífi sem á sér stað baksviðs; sýna þeim undirbúning sýninganna og það sem þar gerist – skoða saumastofuna, hárgreiðsluna og sminkið.“ Sigríður stofnaði Leikfélag Sel- tjarnarness fyrir átta árum. „Það gekk hreinlega ekki að hér væri ekkert áhugamannaleikhús í gangi, svo ég ýtti því af stað, segir hún og hlær. „En fyrsta áhugamannaleik- húsið sem ég stofnaði var leik- félagið sem starfar í Mosfellsbæ, en það verður þrjátíu ára í nóvember á þessu ári. Bæði félögin hafa starfað með öflugum hætti, sem betur fer,“ segir Sigríður. Leiklist | Sigríður Þorvaldsdóttir leikkona valin bæjarlistamaður Morgunblaðið/Árni Sæberg Sigríður Þorvaldsdóttir leikkona tekur við heiðursskjali af Sólveigu Pálsdóttur, formanni menningarnefndar Seltjarnarness. Ætlar að sýna börn- unum sinn heimavöll MENNINGAR- og ferðamálaráð Reykjavíkurborgar samþykkti af- greiðslu styrkja fyrir árið 2006 á fundi ráðsins nýverið, samtals að upphæð 21 m.kr. KASA hópurinn og kammerkór- inn Schola cantorum voru báðir valdir Tónlistarhópar Reykjavíkur 2006 og fá hvor um sig 2 m.kr. Til verkefna – og liststarfsemi voru veittir eftirtaldir styrkir: Myndhöggvarafélagið í Reykja- vík 1.5. m.kr. vegna samvinnuverk- efnis sex Evrópuþjóða, Site Ations- Sense in Place, er opnar sýningu í Viðey á Listahátíð í Reykjavík í maí. Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík fékk einnig 1,5 m.kr. til rekstrar og þróunar kvik- myndahátíðarinnar er haldin verð- ur að hausti. Tónlistarþróun- armiðstöðin hlaut 1,2 m.kr. til rekstrar miðstöðvarinnar er hýsir TÞM, tónleikasal, aðstöðu fyrir unga tónlistarmenn til æfinga- og tónleikahalds og ýmiss konar menningar- og félagsaðstöðu. Þá hlaut Strengjaleikhúsið 1 m.kr. til uppsetningar óperunnar Skugginn, þar sem Karólína Eiríksdóttir sem- ur tónlistina, Sjón byggir textann á samnefndri sögu H.C. Andersens og Messíana Tómasdóttir leikstýrir og annast umgjörð óperunnar. Form Ísland hlaut 900 þús. kr. til uppbyggingar á þjónustu félagsins og Kling og Bang gallerí 700 þús. til áframhaldandi gallerírekstrar að Laugavegi 23. 500 þúsund kr. styrkir 500 þús. kr. styrk hlutu Kynn- ingarmiðstöð íslenskrar myndlistar til nýmæla í starfseminni, leik- félagið Annað Svið til frumsamda verksins Mamma eftir Maríu Ell- ingsen og Charlotte Böving, Panic Productions til nútímalegs dans- leikhúss með áherslu á samruna ólíkra listgreina og Hið íslenska bókmenntafélag til starfsemi og út- gáfumála. 400 þús. króna styrk hlutu Kór Langholtskirkju, Listvinafélag Hallgrímskirkju og Smekkleysa til starfsemi gallerísins Humar eða frægð. 300 þús. kr. styrk hlutu Kamm- erkórinn Carmina, Sinfón- íuhljómsveit áhugamanna, Sinfón- íuhljómsveit unga fólksins, Sönghópurinn Hljómeyki, Söng- sveitin Fílharmónía, Blásarasveit Reykjavíkur, Draumasmiðjan, Leikfélagið Hugleikur, Rauði þráð- urinn, Gregersen ehf, Listasafn ASÍ, Hinsegin bíódagar í Reykja- vík og Bókaútgáfan Hólar. 200 þús. kr. styrk hlutu 15:15 Tónleikasyrpan í Borgarleikhúsinu, Aminamúsík, Camerarctica, Dean Richard Ferrell, Félag íslenskra tónlistarmanna, Snorri Sigfús Birg- isson, Vox Academica, johann/ filippia productions, Kvenfélagið Garpur, Sari Maarit Cedergren, Tangófélagið, Friðarhús SHA, Húsfélag alþýðu og IBBY á Ís- landi. Kvennakórinn Léttsveit Reykja- víkur, Söngfélag Félags eldri borg- ara í Reykjavík og leikfélagið Snúður og Snælda hlutu 100 þús. kr. styrk hver. Annars er stærri hluta styrkveit- inga menningar- og ferðamálaráðs nú varið til starfssamninga til fleiri ára og til þeirra eru þegar bundnar í samninga tæpar 56 milljónir árið 2006. Þriggja ára samningar ráðs- ins verða næst auglýstir haustið 2006 vegna áranna 2007, 2008 og 2009. Morgunblaðið/Ómar Nína Margrét Grímsdóttir og Áshildur Haraldsdóttir frá KASA-hópnum, Stefán Jón Hafstein, formaður menningarmálaráðs, og Hörður Áskelsson, stjórnandi Schola cantorum, bera saman bækur sínar. KASA-hópurinn og Schola cantorum fá hæstu styrkina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.