Morgunblaðið - 16.01.2006, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 2006 29
Fundir/Mannfagnaðir
Janúarráðstefna
haldin í Kiwanis salnum, Engjateig 11
19. janúar
10:00-11:00 Árni Harðarson, lögfræðingur
og yfirmaður skatta- og lög-
fræðisviðs Deloitte - Nýlegar
breytingar á skattalögum. Bréf frá
RSK o.fl.
11:00-12:00 Bragi Leifur Hauksson tækni-
deild RSK.
12:00-13:00 Matur.
13:00-15:00 Eiríkur R. Eiríksson frá
Íslandsbanka hf. - Hvers konar
lán henta núverandi markaðs-
aðstæðum?
15:00-16:00 Kynning á Pastel viðskiptahug-
búnaði.
20. janúar
10:00-12:00 Dagbjartur Pálsson frá DK - Ný-
jungar í DK framtalsforritinu og raf-
rænar sendingar ársreikninga o.fl.
12:00-13:00 Matur.
13:00-14:30 Ólafur Þór Jóhannesson endur-
skoðandi Pricewaterhouse-
Coopers hf. - Sérstakt endurmat
eigna, eiginfjárreikningar o.fl.
14:45-15:45 Stefán Svavarsson, endurskoð-
andi - Tekjuskattsskuldbindingar
o.fl.
15:45-16:15 Kynning frá ANZA á netafritun-
arbúnaði.
Verð er krónur 8.000 á dag fyrir félagsmenn
og starfsmenn félagsmanna. Félagsmenn og
starfsmenn sem sækja báða dagana greiða kr.
15.000. Verð fyrir utanfélagsmenn er kr. 14.000
á dag en 25.000 ef þeir sækja báða dagana. Inni-
falið í verði er matur og kaffi á meðan ráðstefnu
stendur. Skráning fer fram hjá Magnúsi Waage
á magnus@vidskiptastofan.is eða í síma 565
2189 og er síðasti skráningardagur 17. janúar.
Stjórn Félags bókhaldsstofa.
Aðalfundur
ÍSTEX hf. verður haldinn miðvikudaginn
25. janúar 2006 kl. 17:00 í húsnæði
félagsins í Mosfellsbæ.
Dagskrá:
1. Almenn aðalfundarstörf samkvæmt 15. grein
samþykkta félagsins.
2. Heimild aðalfundar til handa félagsstjórn
til kaupa á eigin hlutabréfum.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Ársreikningur félagsins mun liggja frammi á
skrifstofu félagsins í Mosfellsbæ, viku fyrir
aðalfund, hluthöfum til sýnis.
Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent
á skrifstofu félagsins, Völuteigi 6 í Mosfellsbæ,
á fundardag.
Mosfellsbæ, 11. janúar 2006.
Stjórn ÍSTEX hf.
Tilkynningar
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 411 3000 • MYNDSENDIR 411 3090
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Auglýsing um nýtt
deiliskipulag í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og bygg-
ingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum,
er hér með auglýst tillaga að nýju deili-
skipulagi í Reykjavík.
Einholt – Þverholt, reitur 1.244.1/3
Tillaga að deiliskipulagi reits sem afmarkast
af Einholti, Stórholti, Þverholti og Háteigs-
vegi.
Tillagan gerir ráð fyrir m.a. að niðurrif húsa sé
heimiluð á reitnum og leyfð mun þéttari
byggð, landnotkun verður blönduð byggð,
verslun og skrifstofur á neðri hæðum og á efri
hæðum um 240 íbúðir að hámarki með
byggingarmagni allt að 6 hæðum auk kjallara
og er efsta hæð inndregin á öllum húsunum
auk bílakjallara undir húsum eða á bakvið og
þá með sameiginlegum görðum ofaná. Einnig
verða námsmannaíbúðir á reitnum, að Þver-
holti 11, 13, 15 og 15a, og er þar gert ráð fyrir
bílgeymslum á bak við húsin og görðum þar
ofan á.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála
skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur-
borgar í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl.
8:20 – 16:15, frá 16. janúar til og með 27.
febrúar 2006. Einnig má sjá tillöguna á
heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru
þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta
hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum
og athugasemdum við tillöguna skal skila
skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til
skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipu-
lagsfulltrúa) eigi síðar en 1. febrúar 2006.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan
tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 16. janúar 2006
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Félagslíf
MÍMIR 6006011619 I
HEKLA 6006011619 IV/V
GIMLI 6006011619 III
I.O.O.F.10? 1861168 E.I.
Atvinnuauglýsingar
Raðauglýsingar 569 1100
„Au pair“ í Sviss
Sjálfstæð, reglusöm og barngóð manneskja
óskast til að gæta tveggja barna, 3 og 8 ára.
Stutt í Alpana. Umsóknir sendist á box@mbl.is
merktar: „AP — 18112“.
Atvinnuauglýsingar
sími 569 1100
SOROPTIMISTAKLÚBBUR
Reykjavíkur færði fyrir jólin Rauða
krossinum styrk til jólahalds í
Konukoti. Soroptimistasamtökin á
Íslandi telja nú 16 klúbba og um
500 konur starfa á vegum samtak-
anna að líknar- og framfaramálum
um allt land. Soroptimistaklúbbur
Reykjavíkur er elsti klúbburinn á
Íslandi og var stofnaður 1959. Auk
þessa styrks hefur klúbburinn ár-
lega styrkt 20 stúlkur í Malawi til
framhaldsnáms og á síðasta ári var
veittur styrkur til heimilis fyrir
vangefna í Lima, Perú fyrir milli-
göngu konsúls Íslands í Lima.
Frá hægri eru Margrét Rögnvaldsdóttir, formaður Soroptimistaklúbbs
Reykjavíkur, Brynhildur Bárðardóttir, forstöðumaður Reykjavíkurdeildar
Rauða krossins, og Sigrún Klara Hannesdóttir, varaformaður klúbbsins.
Soroptimistaklúbbur
Reykjavíkur styrkir Konukot
FRÉTTIR
Vatnsmýrin | Umhverfisráð Reykja-
víkur hefur fengið í hendur nýja
skýrslu Ólafs Nielsen og Jóhanns
Óla Guðmundssonar fuglafræðinga
um fuglalíf á Tjörninni í Reykjavík,
en þar er skýrt frá fækkun í mörgum
fuglategundum við Tjörnina og
minnkandi fjölbreytileika.
Umhverfisráð gaf í kjölfarið frá
sér samþykkt þar sem fram kemur
að ráðið áréttar að fuglalíf í og við
tjörnina „er mikilvægur hluti hins
fjölbreytilega lífríkis í borginni og
vöktun þess og rannsóknir á því eru
þýðingarmiklar fyrir viðgang þess.“
Ennfremur segir í samþykktinni að
upplýsingarnar sem fram komi í
skýrslunni gefi tilefni til frekari
rannsókna á lífríki Tjarnarinnar og
ástæðum fækkunar flestra fuglateg-
unda. Þá hefur ráðið falið sviðsstjóra
Framkvæmdasviðs að leggja hið
fyrsta fyrir ráðið áætlun um umhirðu
verndarsvæðisins í Vatnsmýri, m.a.
með hliðsjón af ábendingum skýrslu-
höfunda. Í samþykktinni kemur enn-
fremur fram að ráðið telur mikilvægt
að fá fram frekari upplýsingar fram-
kvæmdaaðila við færslu Hringbraut-
ar um það hvenær vænta megi þess
að uppfylltir hafi verið skilmálar
Skipulagsstofnunar sem fram komu í
mati á umhverfisáhrifum.
Sjálfstæðismenn í Umhverfisráði
lögðu fram bókun á fundinum þar
sem þeir segja skýrsluna sýna að
þessum griðastað fugla í miðri höf-
uðborginni hafi ekki verið sinnt sem
skyldi, jafnvel teflt í tvísýnu. Eigi
það bæði við um flutning Hring-
brautar og umhirðu við fugla og ann-
að lífríki undanfarin ár.
Umhverfisráð ályktar
um fuglalífið á Tjörninni
Flutt á Snyrti-
stofuna Jónu
LINDA Björk Júlíusdóttir, löggiltur
fótaaðgerða- og snyrtifræðingur, er
flutt á Snyrtistofuna Jónu, Tryggva-
götu 28. Snyrtistofan tilheyrir Rad-
isson SAS 1919 hótelinu. Býður hún
alla viðskiptavini velkomna.
Skora á bæjarfulltrúa að sam-
þykkja ekki Eyktarsamninginn
MEÐAL Hvergerðinga og annarra
áhugamanna er hafin undir-
skriftasöfnun á netinu þar sem
bæjarfulltrúar Samfylkingar og
Framsóknar í Hveragerði eru
hvattir til að skoða vandlega hug
sinn varðandi samning þann sem
fyrirhugað er að gera við verktaka-
fyrirtækið Eykt.
Á heimasíðunni http://
www.flex.is/hveragerdi/ segir
meðal annars „Við skorum á bæj-
arfulltrúa að samþykkja ekki að
einu fyrirtæki verði, án útboðs, af-
hent megnið af því byggingalandi
sem bærinn á. Við skorum á bæj-
arfulltrúa að kanna hvert raun-
verulegt verðgildi þessara 80 hekt-
ara er. Við skorum á bæjarfulltrúa
að sjá til þess að samningurinn
verði ekki samþykktur í bæjar-
stjórn Hveragerðisbæjar.“ FRÉTTIR
mbl.is