Morgunblaðið - 16.01.2006, Page 31

Morgunblaðið - 16.01.2006, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 2006 31 DAGBÓK Ítilefni nýlegrar útgáfu Hins íslenska bók-menntafélags á Uppruna tegundanna eftirCharles Darwin (1809-1882) í þýðingu Guð-mundar Guðmundssonar, mun félagið standa fyrir 5 vikna námskeiði í janúar og febrúar um þróunarkenninguna og áhrif Darwins á mótun hennar. Leiðbeinandi verður dr. Steindór J. Erl- ingsson en hann sá fyrir nokkrum árum um út- gáfu bókarinnar Um uppruna dýrategunda og jurta, eftir Þorvald Thoroddsen, sem Bókmennta- félagið gaf út og skrifaði ítarlegan formála. Hann segir þá bók í rauninni útdrátt úr Uppruna teg- undanna. Hin fræga bók Darwins kom fyrst út 1859. „Það var stór viðburður þegar bókin var þýdd á ís- lensku í fyrsta sinn 2004, því þetta er það rit sem hefur haft mest áhrif á vestræna menningu, fyrir utan biblíuna. Það var því ekki seinna vænna að kynna það almenningi hér á landi,“ sagði Steindór í samtali við Morgunblaðið. Námskeiðið skiptist í fjóra meginþætti þar sem fjallað verður um í fyrsta lagi helstu forvera Darwins, í öðru lagi ævi, störf og kenningasmíð Darwins sjálfs; í þriðja lagi uppbyggingu bók- arinnar Uppruna tegundanna og í fjórða lagi áhrif hennar á vestræna menningu. „Þróunarkenningin á í raun rætur sínar í Upp- lýsingunni og þeim breytingum sem eiga sér stað þá; maðurinn fer að sjá sig og umhverfi sitt sem kerfi sem getur breyst og það er engin tilviljun að um aldamótin 1800 koma fram tveir menn, nánast samtímis, með svipaða þróunarkenningu.“ Annar þeirra var afi Darwins, sem setti sína kenningu að mestu fram í ljóðum, og hinn franskur nátt- úrufræðingur sem skrifaði lært rit. Þróunarkenningin fór að skjóta rótum þegar leið á öldina, t.d. í Bretlandi og Frakklandi, en Steindór segir sögu hennar best þekkta í Eng- landi því þar hafi menn einblínt mest á hana og þar tengdist hún vinstri sinnuðum stjórn- málaöflum sem vildu breytingar í þjóðfélaginu. „Með Darwin breyttist þetta. Áður var þróun- arkenningin notuð sem stjórnmálakerfi, en Darw- in setti hana í vísindalegan búning. Það var tvennt sem hann gerði; annars vegar staðfesti hann fyrir mönnum að þróun hefði átt sér stað og hins vegar kom hann fram með kenningu um það hvernig hún hefði átt sér stað. En sú tilgáta hans var reyndar ekki almennt meðtekin fyrr en áratugum síðar.“ Steindór segir að kenningu Darwins hafi al- mennt verið hafnað meðal náttúrufræðinga á ár- unum 1870-1920 – oft sé talað um það tímabil sem „myrkvun Darwinismans“ – og í Sovétríkjunum var kenningin ekki viðurkennd fyrr en með Nýja samrunanum, sem svo er kallaður, á þriðja ára- tugnum, þegar erfðafræði Mendels og kenning Darwins um náttúruvalið runnu saman í einni sæng. Áður var nefnd tenging þróunarkenningarinnar við stjórnmál, áður en Darwin kom til sögunnar, en síðar notfærðu ýmsir stjórnmálamenn sér einnig kenningu Darwins um hið náttúrulega val, reyndar bæði vinstri- og hægrimenn, sem leiddi til þess að til varð svokallaður þjóðfélagslegur Darwinismi. Samkvæmt honum átti að ríkja grimm barátta í samfélaginu. „Kenning Darwins var sem sagt notuð í pólitískum tilgangi þó hann hefði ekki hugsað sér hana þannig.“ Bókmenntir | Námskeið um þróunarkenninguna og áhrif Darwins á mótun hennar Mikil áhrif á vestræna menningu  Steindór J. Erlings- son er vísindasagn- fræðingur sem hefur B.Sc. próf í líffræði og M.Sc. próf í vís- indasagnfræði frá Há- skóla Íslands og Ph.D. próf í vísindasagnfræði frá háskólanum í Man- chester. Rannsóknir Steindórs ná yfir sögu líffræðinnar á síðari hluta 19. aldar og fyrri hluta þeirrar tutt- ugustu og hefur hann kennt sögu þróun- arkenningarinnar við Háskóla Íslands. Eig- inkona hans er Sigríður Klara Böðvarsdóttir sameindalíffræðingur og eiga þau tvö börn. Stórkostlegt áramótaskaup! LOKSINS, loksins, loksins kom áramótaskaup sem var fyndið! Ég er enn að fá hlát- ursköst yfir þeim fjölmörgu atriðum sem voru í boði í þessu skaupi. Allir mínir vinir og allir sem ég hef talað við síðan á gamlárskvöld hlógu dátt þetta kvöld og í minni fjölskyldu hefur það ekki gerst síðan skaupið ’84 var sýnt. Takk, stelpur, fyrir óvenjulega dásamlegt efni!! Hárgreiðslukonurnar sem voru að tala um Eurovision- lagið voru óborganlegar (hefði getað verið íslenska þjóðin að tala um áramótaskaupið!), grátklökka konan með jóla- innkaupin í Bónus, Eiríkur í Kastljósi, gamla fólkið á vinnumarkaðnum, Latibar, mislægu gatnamótin, Bache- lorinn, Ophra með Jónínu Ben. o.fl. Og loksins kom al- mennilegt „slap stick“grín með hjónunum í Kringlunni – þetta hef ég aldrei séð í skaupi áður og ég bókstaflega kafn- aði úr hlátri í hvert skipti sem þau birtust! Það er búið að ræða mikið um söngatriðin – óumdeilanleg snilld! Ég hef aldrei hitt eins marga Íslendinga sem hafa verið á einu máli um frá- bært áramótagrín! Ég rakst á blaðsnepil í ruslafötu í sjoppu niðri í bæ og sá að sorprit eitt (sem ég nefni ekki á nafn) ætlar að hefna harma og níðast svolítið á að- standendum skaupsins. Þeir örfáu aðilar sem ekki sáu ljósið í gríninu og misskildu allt hafa þegar verið látnir skrifa í snepilinn. Einn blaðamað- urinn sagði á þessu snifsi sem gægð- ist upp úr ruslafötunni að hann væri hneykslaður á því að Eyvöru hefði verið lýst sem fyllibyttu og dópista (!) og segir það meira um ástand blaða- mannsins meðan hann horfði á skaup- ið! Óendanleg vitleysa getur oltið upp úr fólki. Man viðkomandi ekki að „þema“ söngatriðanna var drengur (bróðir einnar úr dómnefndinni) sem var alltaf að reyna að troða sér í skaupið? Hann birtist alltaf sem nýr og nýr söngvari. Það þarf illa drukk- inn áhorfanda til að sjá eitthvað ann- að út úr þessum söng-eftirhermum – eða illa innréttaðan blaðamann! Ég vil að lokum biðja sjónvarpið um að gefa út áramótaskaupin (alla- vega þetta og ’84 skaupið) svo ég geti keypt það efni og gefið öllum vinum mínum og hlegið mér til heilsubótar næstu árin! Svo vil ég fá þessar konur aftur til að búa til næsta áramóta- skaup! Kærar þakkir Anna miðbæjarkona. IPod týndist IPOD photo 60 GB í svörtu leð- urhulstri tapaðist á leiðinni úr neðra Breiðholti að Miðbergi fimmtudaginn 12. jan. sl. Skilvís finnandi vinsamleg- ast hringi í síma 895 9457 eða 695 3299. Fundarlaunum heitið. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Leikfimin hefst í dag kl. 9, allir með. Árskógar 4 | Bað kl. 8-16. Handavinna kl. 9-16.30. Smíði/ útskurður kl. 9-16.30. Söngstund kl. 10.30. Félagsvist kl. 13.30. Myndlist kl. 16. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handavinna, bútasaumur, sam- verustund, fótaaðgerð. Dalbraut 18 - 20 | Félagsstarfið er öllum opið. Fastir liðir eins og venjulega. Skráning á postulíns- námskeið stendur yfir. Þorrablót- ið verður 3. febrúar. Not- endaráðsfundur kl. 10 17. jan. Síminn hjá okkur er 588-9533 Handavinna stofa Dalbrautar 21- 27 er opin alla virka daga milli kl. 8 og 16. FEBÁ, Álftanesi | Opið hús kl. 13-16. Vilborg leiðbeinir við hand- verk eftir óskum þátttakenda og sér um kaffiveitingar. Akstur ann- ast Auður og Lindi, sími 565 0952. Félag eldri borgara í Kópavogi | Félagsvist verður spiluð í kvöld kl. 20.30 í Gullsmára. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids í dag kl. 13. Kaffitár með ívafi kl. 13.30. Línudanskennsla kl. 18. Samkvæmisdans framh. kl. 19 og byrjendur kl. 20. Félagsheimilið Gjábakki | Kl. 9-12 handavinna. Kl. 9.30 boccía. Kl. 9.30 gler- og postulínsmálun. Kl. 13.15 lomber. Kl. 17 kóræfing. Kl. 20.30 skapandi skrif. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Eldri borgarar spila brids (tví- menning) alla mánu- og fimmtu- daga í félagsmiðstöðinni. Skrán- ing kl. 12.45 á hádegi. Spil hefst kl. 13. Þátttökugjald kr. 200. Kaffi og meðlæti fáanlegt í spilahléi. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Kvennaleikfimi kl. 9:15, 10:05 og 11:00 í Kirkjuhvoli. Opið í Garða- bergi kl. 12.30-16.30. Miðasala á Þorrablót Kiwanis, Sinawik og FAG er kl. 13-15 í Garðabergi. Verð kr. 2.000. Glerskurður kl. 13 í Kirkjuhvoli. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9- 16.30 vinnustofur opnar m.a. al- menn handavinna. Kl. 10 postu- línsnámskeið umsj. Sigurbjörg Sigurjónsd. Frá hádegi spilasalur opinn. Kl. 14.30 kóræfing. Veit- ingar í hádegi og kaffitíma í Kaffi Berg. Strætó S4 og 12 stansa við Gerðuberg. Allar uppl. á staðnum og í síma 575 7720. www.gerdu- berg.is. Hraunbær 105 | Kl. 9 Perlusaum- ur, almenn handavinna, kaffi, spjall, dagblöðin. Kl. 10 bæna- stund. Kl. 12 hádegismatur. Kl. 15 kaffi. Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnu- stofa kl. 9-16 hjá Sigrúnu, silki- og glermálun, kortagerð. Jóga kl. 9- 11. Frjáls spilamennska kl. 13-16. Böðun fyrir hádegi. Fótaaðgerðir 588 2320. Hæðargarður 31 | Enn er tæki- færi til að skrá sig í framsagn- arhóp sem hittist á þriðjudögum og miðvikudögum milli kl. 10-12. Einnig er ljóða- og hagyrð- ingahópur ekki fullskipaður. Láttu draumana rætast og vertu með í vetur. Kynntu þér dagskrána, kíktu við og fáðu upplýsingar um félagsstarfið. Síminn er 568 3132. Hæðargarður 31 | Bókmennta- klúbbur kl. 20 18. jan. Korpúlfar Grafarvogi | Sund- leikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9.30 á morgun. Laugardalshópurinn Blik, Laug- ardalshöll | Leikfimi fyrir eldri borgara í Laugardalshöll kl. 12. Norðurbrún 1, | Kl. 9 smíði, kl. 11.30 upplestur, kl. 13-16.30 opin vinnustofa. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9-12.30, bókband og búta- saumur kl. 9-13, hárgreiðsla og fótaaðgerðarstofur kl. 9, morg- unstund kl. 9.30, boccia kl. 10-11, handmennt almenn kl. 13-16.30, glerbræðsla og frjáls spila- mennska kl. 13. Kirkjustarf Árbæjarkirkja | Bæna og helgi- stund kl. 10 í félagsmiðstöðinni Hraunbæ 105. Umsjón sr. Þór Hauksson og Kristina Kalló Szklenár. Hjallakirkja | Æskulýðsfélag fyrir 8. bekk í Hjallakirkju kl. 20-21. Hveragerðiskirkja | Alfa- námskeið hefst í Hveragerð- iskirkju 23. janúar nk. kl. 19-22. Kynningarfundur verður 16. jan. kl. 20. Alfa er stutt, hagnýtt námskeið um spurningar lífsins og kristna trú. Námskeiðgjald er kr. 6000, innifalið öll gögn, fræðsla og veitingar. Helgarferð er hluti af námskeiðinu og kostar kr. 4000. Upplýsingar og innritun í síma 483-4255 eða 862-4253 eða á: jon.ragnarsson@kirkjan.is KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUK, Holtavegi 28, þriðjudaginn 17. jan. kl. 20. Lofgjörðar og bænasamvera. Umsjón Þórdís Ágústsdóttir, Rúna Þráinsdóttir og fleiri konur. Kaffi. Allar konur eru velkomnar. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos 1. e4 g6 2. d4 Bg7 3. Rc3 c6 4. f4 d5 5. e5 Db6 6. Ra4 Dc7 7. Be2 Rh6 8. g4 f6 9. h3 Rf7 10. Rf3 g5 11. Dd3 gxf4 12. Bxf4 fxe5 13. Rxe5 Rxe5 14. Bxe5 Bxe5 15. dxe5 Dxe5 16. 0-0 Ra6 17. Hae1 Rb4 18. Db3 Staðan kom upp á alþjóðlegu móti sem lauk fyrir nokkru í Merida í Mexíkó. Pólski stórmeistarinn Mikhail Krasenkov (2.655) hafði svart gegn kúbverska kollega sínum Frank La Paz (2.452). 18. ... Rxc2! 19. Dxc2 Dg3+ 20. Kh1 Dxh3+ 21. Kg1 Dg3+ 22. Kh1 Dh4+ 23. Kg1 Hg8! sókn svarts verður nú óstöðvandi eftir að g- peð hvíts fellur. 24. Bf3 Bxg4 25. Bg2 Bh3 26. He2 0-0-0 27. Hff2 Hd6 28. Rc3 Bxg2 29. Hxg2 Hxg2+ og hvítur gafst upp þar sem eftir 30. Hxg2 De1+ verður hann mát í næsta leik og einnig yrði stutt í mátið eftir 30. Kxg2 Hg6+. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Svartur á leik. Trompsexan. Norður ♠10852 ♥1087 ♦ÁK6 ♣KDG Vestur Austur ♠DG3 ♠K764 ♥D63 ♥Á9 ♦874 ♦́D9532 ♣10632 ♣74 Suður ♠Á9 ♥KG542 ♦G10 ♣Á985 Suður spilar fjögur hjörtu. Það blasir ekki við í byrjun, en hjartasexa vesturs er stórt spil í vörninni. Lítum á líklega þróun mála: Út kemur spaðadrottning, sem suður drepur og spilar tígulgosa. Þegar gosinn veiðir ekki drottn- inguna er eðlilegt að stinga upp kóng og fara í trompið – sjöa úr borði, nía frá austri, gosi og drottn- ing. Vestur tekur slag á spaðagosa, spilar enn spaða og suður trompar. Sagnhafi spilar trompi og austur á slaginn á hjartaás í þessari stöðu: Norður ♠10 ♥10 ♦Á6 ♣KDG Vestur Austur ♠-- ♠7 ♥6 ♥-- ♦87 ♦D953 ♣10632 ♣74 Suður ♠-- ♥K5 ♦10 ♣Á985 Austur spilar spaða og nú fer hjarta- sexan að blómstra. Ekki má suður trompa með fimmu, en það gengur heldur ekki að stinga frá með kóng. Vestur hendir þá tígli og kemur í veg fyrir að sagnhafi geti stolið slag á hjartafimmu með stungu. Og nið- urstaðan verður þá sú að vestur fær fjórða slag varnarinnar á lauftíuna í lokin. Það er djúpt á þessu, en fallegt er það. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is Í DAG, mánudaginn 16. janúar, kl. 12.30 verður haldinn fyrirlestur í stofu 024 í LHÍ á Laugarnesvegi 91. Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar og Bryndís Ragnarsdóttir myndlistarmenn halda erindi sem nefnist „signal in the heavens“ [merki á himnum]; heimur merk- ingarkerfis. Fjallað verður um for- sendur og framkvæmd sýninga- raða sem hafa eigið skipulag að umfjöllunarefni og vakin verður athygli á hinni eilífu gjá milli hug- myndar og framkvæmdar. Um er að ræða sýningar sem haldnar voru í Reykjavík, New York og Berlin Fyrirlestur í opna Listaháskólanum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.