Morgunblaðið - 16.01.2006, Blaðsíða 32
32 MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 útlit, 4 amstur,
7 í átt til baka, 8 óskar
eftir, 9 veggur, 11 hluta,
13 lofs, 14 huldumaður,
15 spotta, 17 hrópar, 20
tímabils, 22 jöfnum hönd-
um, 23 hljóðfærum, 24
skyldmennið, 25 rás.
Lóðrétt | 1 stutt ræða, 2
Danir, 3 regla, 4 skúrar,
5 afkimi, 6 vesalings, 10
jarðarför, 12 ginning, 13
lík, 15 fjöl, 16 verkfærið,
18 hænan, 19 hæsi, 20
svifdýrið, 21 gauf.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 þarfaþing, 8 lagar, 9 íhuga, 10 gef, 11 sötra, 13
aftan, 15 starf, 18 skálm, 21 lát, 22 fitla, 23 iðinn, 24
þankagang.
Lóðrétt: 2 aðgát, 3 farga, 4 þrífa, 5 naumt, 6 slys, 7 barn,
12 rýr, 14 fák, 15 sefa, 16 aftra, 17 flakk, 18 sting, 19 ár-
inn, 20 máni.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Reglurnar halda áfram að breytast á
ljóshraða, en hrúturinn hefur reyndar
aldrei farið eftir reglum þegar út í það
er farið. Karma hrútsins batnar um-
talsvert á næstunni. Fólk treystir á þig.
Þú kemur til hjálpar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Feimni gæti orðið nautinu að falli með
einhverjum hætti í dag, nema það geri
sérstakar ráðstafanir. Það er betra að
vera asnalegur í fjölmenni, bara til þess
að sanna að þú hafir ekki áhyggjur af
því sem aðrir halda.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Vandað fólk í hópnum í kringum þig
færir þér gæfu. Vertu með fólki sem þú
getur spjallað við um alla heima og
geima. Ekki síst fólki sem veit að inni-
haldsríkt líf snýst um meira en pen-
inga.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Aðferðir krabbans duga honum
kannski, en til eru fleiri leiðir. Heim-
urinn er stór og allt gengur betur þeg-
ar þú sættir þig við margbreytileika
hans. Samband við naut fær þig til þess
að slaka á.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Allir þjást af einhvers konar tauga-
veiklun en þeir sem ljónið hittir í dag
eru verr staddir en það. Ef þú stendur
ekki með minni máttar, er allt eins víst
að hann verði undir. Gríptu til þinnar
víðfrægu samúðar og bjargaðu mál-
unum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Einsettu þér að ná takmarki sem tvö-
faldar ánægju þína. Þannig slærðu
tvær flugur í einu höggi. (Reyndar væri
betra ef engar flugur týndu lífi ef spáin
gengur eftir.)
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vogin er ekki sátt við að ganga inn í
áætlanir annarra – líklega af því að það
hentar henni ekki. Breyttu vinnulaginu
svo þú náir sem mestum árangri á
þeim tíma sem þú ætlar þér.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn er virkilega hugsandi
núna. Nýttu tækifærið og sláðu saman
líkum verkefnum til þess að tvöfalda
árangurinn. Leikir koma við sögu í
kvöld, ef þeir þarfnast gáfna, vinnur
sporðdrekinn.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn þarf að mæta samkeppni
og notar tækifærið til þess að auka
staðfestu sína og skuldbindingu. PS.
Hjálpaðu blóminu sem er að deyja
hægum og kvalafullum dauðdaga þarna
í horninu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Einbeittu þér að því sem er mikilvægt
svo þú eyðir ekki allri orkunni í það
sem virðist brýnt. Margt af því sem
sýnist áríðandi leysist upp ef maður
lætur sem maður taki ekki eftir því.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Samskiptaörðugleikar halda áfram að
valda vatnsberanum gremju í dag. En
hann verður sá sem tekur fyrsta skref-
ið og kemst að samkomulagi sem léttir
öllum lífið. Mundu hverju þú lofaðir
krökkunum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ýmsir kraftar takast á um athygli
fisksins. Hin gamalkunna aðferð að for-
gangsraða gerir sérhvert vandamál
meðfærilegra. Fiskurinn er stöðugleik-
inn sem þarf til þess að halda öllu
gangandi.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Tunglið er í ljóni og lætur
eins og konungur ljónanna
– trygglynt, grimmt og upp-
blásið af stolti. Spáðu í hversu mikil orka
getur farið í að viðhalda stoltinu. Ekki
reyna að sanna þig á tilteknu sviði.
Gerðu þér að góðu að vita hver þú ert og
vinna út frá því.
Myndlist
Artótek Grófarhúsi | Valgerður Hauks-
dóttir myndlistarmaður til 19. febrúar. Sjá:
www.artotek.is.
Café Karólína | Aðalsteinn Svanur sýnir
bleksprautuprentaðar ljósmyndir á segl-
dúk til 3. febr. www.simnet.is/adals-
teinn.svanur.
Gallerí + Akureyri | Ingileif og Áslaug
Thorlacius til 22. jan. Opið um helgar kl.
14–17.
Gallerí Sævars Karls | Byggir brú milli
náttúru og borgar – Helgi Már Kristinsson
sýnir abstrakt málverk. Til 26. jan.
Gallerí Sævars Karls | Myndlistarmað-
urinn Helgi Már Kristinsson með einka-
sýningu.
Hafnarborg | Kári Sveinsson frá Fær-
eyjum og Pétur Bjarnason myndhöggvari.
Til 30. jan.
Hallgrímskirkja | Kristín Gunnlaugsdóttir
og Margrét Jónsdóttir til febrúarloka.
Hrafnista Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir
sýnir í Menningarsal til 7. febrúar.
Iða | Sölusýning á málverkum Þóru Guð-
rúnar Benediktsdóttur til loka janúar
2006.
Karólína Restaurant | Óli G. með sýn-
inguna Týnda fiðrildið til loka apríl 2006.
Kling og Bang gallerí | Ég sýni ekkert en í
nýju samhengi eftir Erling T.V. Klingen-
berg og Hreyfingar – Movements eftir
Sirru Sigrúnu Sigurðardóttur. Til 22. jan-
úar. Opið fim.–sun. kl. 14–18.
Listaháskóli Íslands | Fyrirlestur í LHÍ,
Laugarnesvegi 91, kl. 12.30. Geirþrúður
Finnbogadóttir Hjörvar og Bryndís Ragn-
arsdóttir myndlistarmenn flytja. Fyrirlest-
urinn nefnist: Signal in the Heavens.
Heimur merkingarinnar. Fjallað m.a. um
gjána milli hugmyndar og framkvæmdar.
Listasafn Einars Jónssonar | Fastasýn-
ing.
Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist II
– Um rými og frásögn – verk 13 íslenskra
samtímalistamanna. Til 12. febr.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Bernd Koberling til 22. janúar. Maðurinn
og efnið, yfirlitssýning.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Erró
til 23. apríl
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Jóhannes Sveinsson Kjarval. 120 ár frá
fæðingu málarans. Til 19. mars.
Nýlistasafnið | Kees Visser, Þór Vigfús-
son og Ívar Valgarðsson. Til 28. jan.
Saltfisksetur Íslands | Margrét Bára með
málverkasýningu í Listsýningarsal til 27.
jan. Opið alla daga frá 11–18.
Yggdrasil | Tolli til 25. jan.
Þjóðmenningarhúsið | Á veitingastofunni
Matur og menning í Þjóðmenningarhúsinu
eru sýnd málverk eftir Hjört Hjartarson.
Hjörtur kallar sýninguna Myndir frá liðnu
sumri.
Þjóðminjasafn Íslands | Huldukonur í ís-
lenskri myndlist, í Bogasal til 28. maí.
Ljósmyndir Marco Paoluzzo í Myndasal
og ljósmyndir Péturs Thomsen í Mynda-
sal. Til 20. febrúar.
Söfn
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning
Borgarskjalasafns, „Býarmenningin Tórs-
havn 1856–2005“, er í Grófarsal,
Tryggvagötu 15, hún fjallar um þróun og
uppbyggingu byggðar í Þórshöfn í Fær-
eyjum. Sýningin kemur frá Lands-
kjalasafni Færeyja og Bæjarsafni Tórs-
havnar. Á sýningunni eru skjöl, ljósmyndir,
skipulagskort og tölfræði.
Duushús | Sýning Poppminjasafnsins í
Duushúsum. Sagt er frá tímabilinu 1969
til 1979 í máli og myndum. Rifjuð upp tísk-
an og tíðarandinn. Opið daglega kl. 13.00–
18.30 til 1. apríl.
Hönnunarsafn Íslands | Feðginin Erla Sól-
veig Óskarsdóttir iðnhönnuður og Óskar
L. Ágústsson húsgagnasmíðameistari
sýna verk sín. Safnið er opið kl. 14–18, lok-
að mánudaga. Til 20. jan.
Þjóðmenningarhúsið | Í tilefni þess að 50
ár eru liðin frá Nóbelsverðlaunaveiting-
unni til Halldórs Laxness hefur Gljúfra-
steinn sett upp sýningu í bókasal Þjóð-
menningarhússins. Sjá má sjálfan
Nóbelsverðlaunapeninginn, kjólinn sem
Auður Laxness klæddist við afhending-
arathöfnina, borðbúnað frá Nóbelssafn-
inu í Svíþjóð o.fl.
Þjóðmenningarhúsið | Sýnishorn af ár-
angri fornleifarannsókna sem njóta
stuðnings Kristnihátíðarsjóðs liggja
frammi í anddyri Þjóðmenningarhússins.
Rannsóknirnar fara fram á Skriðuklaustri,
Hólum, Þingvöllum, Keldudal, Reykholti,
Gásum, Kirkjubæjarklaustri og Skálholti.
Auk þess eru kumlastæði um land allt
rannsökuð.
Þjóðminjasafn Íslands | Boðið upp á fjöl-
breytta fræðslu og þjónustu fyrir safn-
gesti. Nýstárlegar og vandaðar sýningar
auk safnbúðar og kaffihúss. Opið alla
daga nema mánudaga kl. 11–17.
Fréttir og tilkynningar
Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn verður
við Iðnskólann í Hafnarfirði. Allir velkomn-
ir.
Fjölskylduhjálp Íslands | Tökum á móti
matvælum, fatnaði og leikföngum alla
miðvikudaga frá kl. 13 til 17. Úthlutun mat-
væla fer fram alla miðvikudaga frá kl. 15
til 17 að Eskihlíð 2–4 við Miklatorg. Þeir
sem vilja styðja starfið fjárhagslega vin-
samlegast leggi inn á reikning 101–26–
66090, kt. 660903–2590.
Frístundir og námskeið
Endurmenntun Háskóla Íslands | Vina-
félag Íslensku óperunnar og Endur-
menntun HÍ standa fyrir námskeiði í
tengslum við sýningar Íslensku óperunnar
á Öskubusku eftir Rossini sem verður
frumsýnd 5. feb. Skráningarfrestur á
námskeiðið er til 20. jan. Skráning fer
fram hjá Endurmenntun í síma 525 4444
og á endurmenntun@hi.is.
Börn
Háteigskirkja | Fjörugur krakkaklúbbur í
Háteigskirkju alla mánudaga milli klukkan
þrjú og fjögur. Farið í leiki, sungið, hlustað
á sögur, föndrað og það gert sem krökk-
um finnst skemmtilegt hverju sinni.
Háteigskirkja | Skemmtilegt krakkastarf
þar sem krakkar úr Háteigs- og Hlíða-
skóla koma saman til að eiga góða stund.
Farið í fjöruga leiki, hlustað á sögur, horft
á myndir, spjallað og það gert sem okkur
finnst spennandi hverju sinni.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is