Morgunblaðið - 16.01.2006, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 2006 33
Stóra svið
SALKA VALKA
Su 22/1 kl. 20 Fi 26/1 kl. 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR!
WOYZECK
Lau 21/1 kl. 20 Su 29/1 kl. 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR!
KALLI Á ÞAKINU
Lau 21/1 kl. 14 Su 22/1 kl. 14
SÍÐUSTU SÝNINGAR!
CARMEN
Fi 19/1 kl. 20 Gul kort
Fö 20/1 kl. 20 Rauð kort
Fö 27/1 kl. 20 Græn Kort
Lau 28/1 kl. 20 Blá kort
Fö 3/2 kl. 20 Fö 10/2 kl. 20
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
FRUMSÝNT Í FEBRÚAR. MIÐASALA HAFIN
Nýja svið/Litla svið
MANNTAFL
Su 22/1 kl. 20 SÍÐUSTU SÝNINGAR!
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Fi 16/2 kl. 20 Fö 17/2 kl. 20
Lau 25/2 kl. 20 Su 26/2 kl. 20
BELGÍSKA KONGÓ
Fö 20/1 kl. 20 UPPS. Lau 21/1 kl. 20
Lau 28/1 kl. 20 UPPS. Mi 1/2 kl 20 UPPS.
Lau 4/2 kl. 20 Su 5/2 kl. 20
GLÆPUR GEGN DISKÓINU
Fi 19/1 kl. 20 Fi 26/1 kl. 20
Fö 27/1 kl. 20 Fi 2/2 kl. 20
Naglinn
Fö 20/1 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT
Lau 21 /1 kl. 20 Su 22/1 kl. 20 UPPSELT
Fö 27/1 kl. 20 Lau 28/1 kl. 20
Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is
Fullkomið brúðkaup - heldur áfram!
Fös. 20. jan. kl. 20 Örfá sæti laus
Lau. 21. jan. kl. 19 Örfá sæti laus
Fös. 27. jan. kl. 20 Nokkur sæti laus
Lau. 28. jan. kl. 19 Örfá sæti laus
Fös. 3. feb. kl. 20 Nokkur sæti laus
Lau. 4. feb. kl. 19 Laus sæti
10/2, 11/2, 18/2.
Miðasala opin
allan sólarhringinn
á netinu.
Allir
norður!
Miðasalan opin virka daga kl. 13-17 og frá kl. 15 á laugardögum.
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga.
Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn.
ÖSKUBUSKA - La Cenerentola eftir ROSSINI
Frumsýning sun.5. feb. kl. 20
2. sýn. fös. 10. feb. kl. 20 – 3. sýn. sun. 12. feb. kl. 20 – 4. sýn. sun. 19. feb. kl. 20
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
Námskeið umÖskubusku og Rossini
Skráningarfrestur: 20. janúar
Skráning í síma: 525 4444 - endurmenntun@hi.is
FÖS. 20. JAN. kl. 20
LAU. 21. JAN. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI
LAU. 28. JAN. kl. 20
FÖS. 3. FEB. kl. 20
LAU. 4. FEB. kl. 20
MIND CAMP
eftir Jón Atla Jónasson
FIM. 19. JAN.
SUN. 22. JAN.
FÖS. 27. JAN.
SUN. 29. JAN.
Námsmenn og vörðufélagar frá miðann
á 1000 kr. í boði Landsbankans
TAKMARKAÐUR SÝNINGARFJÖLDI
EF
eftir Valgeir Skagfjörð/
Einar Má Guðmundsson
MÁN. 16. JAN. KL. 9 OG 11 UPPSELT
ÞRI. 17. JAN. KL. 9 OG 11 UPPSELT
ÞRI. 24. JAN. KL. 9 OG 11 UPPSELT
MIÐ. 25. JAN. KL. 9 OG 11 UPPSELT
DRUKKIN söngkona vakti hlátra-
sköll áheyrenda á tónleikum í Saln-
um í Kópavogi á laugardaginn.
Þetta var Sigrún Hjálmtýsdóttir,
Diddú, og auðvitað var hún ekki
hífuð í alvörunni. En hún lék það
skemmtilega og Schwipslied eftir
Johann Strauss var svo fyndið í
túlkun hennar að ég sjálfur veltist
um af hlátri.
Um var að ræða Nýárstónleika
Salarins í Tíbrárröðinni, en ásamt
Diddú kom fram lítil kammersveit.
Þar var valinn maður í hverju rúmi;
fiðluleikararnir Sigrún Eðvalds-
dóttir og Pálína Árnadóttir, Bryn-
dís Halla Gylfadóttir sellóleikari,
Sigurður Ingvi Snorrason og fleiri;
allt liðsmenn Sinfóníuhljómsveitar
Íslands.
Eins og vaninn er á nýárstónleik-
um var dagskráin helguð Vín-
arhtónlist og var hún eftir Strauss,
Kálmán, Lehár og fleiri. Skemmst
er frá því að segja að hún var af-
burðavel flutt. Hljómsveitin var
með sitt á hreinu; samspilið var
öruggt og hver einasti hljóðfæra-
leikari spilaði af vandvirkni, en líka
tilheyrandi léttleika. Persónulega
er ég ekki mjög hrifinn af Vín-
artónlist, en á tónleikunum var hún
bara svo fagmannlega leikin að það
var ekki annað mögulegt en að hrí-
fast með. Stundum er sagt að ekki
sé hægt að búa til silkipoka úr svín-
seyra, en hér var svínseyrað orðið
að hinum fegursta dýrgrip! Aug-
ljóst er að slíkt er aðeins á færi
hæfustu listamanna.
Diddú var líka frábær; hún söng
fallega og með ríkulegum til-
burðum, og lék auk þess á sannfær-
andi hátt ólík hlutverk. Atriði þar
sem hún gekk syngjandi um salinn
og daðraði við nokkra tónleikagesti
var svo kostulegt að lengi verður í
minnum haft.
Sigrún Eðvaldsdóttir brá sér í
einleikarahlutverkið í Zigeunerwei-
sen eftir Sarasate og var spila-
mennska hennar snilldarleg. Þykk-
ur, safaríkur tónninn var
áreynslulaus og hröð nótnahlaup
voru nákvæm og glæsileg. Rétta
suðræna andrúmsloftið var í túlk-
uninni og var hún svo spennu-
þrungin að áheyrendur æptu af
hrifningu.
Í lokin setti tónlistarfólkið upp
hatta og grímur og þar vakti sér-
staka athygli mína kattargríman
sem Bryndís Halla var með. Hún
var sprenghlægileg og hvet ég
sellóleikarann til að koma oftar
fram með hana.
Sellóleikari með kattargrímu
TÓNLIST
Salurinn í Kópavogi
Í flutningi: Sigrúnar Eðvaldsdóttur, Pálínu
Árnadóttur, Bryndísar Höllu Gylfadóttur,
Hávarðs Tryggvasonar, Hallfríðar Ólafs-
dóttur, Sigurðar Ingva Snorrasonar, Önnu
Guðnýjar Guðmundsdóttur, Péturs Grét-
arssonar og Sigrúnar Hjálmtýsdóttur.
Laugardagur 14. janúar.
Söng- og kammertónleikar
Vínartónlist og fleira
Jónas Sen
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, lék
hífaða konu „svo skemmtilega og
Scwipslied eftir Johann Strauss var
svo fyndið í túlkun hennar að ég
sjálfur veltist um af hlátri,“ segir
gagnrýnandi í umsögn sinni.
TÓNLISTARFÉLAGIÐ á Ak-
ureyri er í sókn og hefur gönguna á
nýju ári af krafti og gleði. Sjöunda
janúar sl. bauð það til nýársveislu
og dansleiks í Ketilhúsinu með vín-
arískum hætti og troðfullu húsi.
Eins og þá var Einar veit-
ingamaður á Karólínu mættur til
leiks með Tónlistarfélaginu og
framreiddi rétt sem hann tengdi nú
barokkinu, enda tónlist á dagskrá af
þeirri grein.
Áhugavert er að þessi nýlunda,
þ.e. að freista okkar með tónlist og
mat endrum og sinnum á föstudög-
um, mælist vel fyrir og er prýðilega
sótt.
Það var leitt að sembal Tónlistar-
skólans á Akureyri er bilaður og því
lék Guðný Erla á flygil í verkunum,
þar sem sembal átti betur heima. Í
fyrstu tveimur verk-
unum var píanóið of
sterkt og í raun
slæmt að hafa flyg-
ilinn opinn.
Samleikur tríósins
og Helenu Bjarna-
dóttur var yfirleitt
ágætur, en styrk-
leikabreytingar hefðu
stundum mátt vera
meiri, sérstaklega á
milli hluta verka sem
hljómuðu með hljóð-
færunum einum og
svo hljóðfæri í sam-
leik með söngvara.
Helena er fjölhæfur
listamaður. Hún er bæði píanóleik-
ari og söngvari.
Hún skilaði mikilvægu hlutverki
píanóleikarans með ágætum á fyrr-
nefndum nýársdansleik. Hennar
styrkur sem söngvari liggur í góðri
tilfinningu fyrir túlkun stílbrigða
tónlistar og þar virðist barokk-
tónlist með sínum slaufum og dúllu-
tónum henta vel.
Raddlega fer hún vel með í mild-
ari söng, en sterkur söngur og háir
tónar verða hennar veikleiki.
Áhrifamestu aríurnar í hennar
flutningi voru: „Mit
sarten und vergnügt-
en Trieben“ úr kant-
ötu BWV 36b eftir
Bach og „Air pour une
Sylphide“ úr óperu
eftir Rameau.
Í Rameau náðu
flytjendur að segja fal-
lega frá ljúfu ástaræv-
intýri.
Einnig var samspil
allra fjögurra mjög
grípandi í aríu Händ-
els, „Nell dolce delĺo-
blio“ og ekkóstaðirnir
einkar sannfærandi.
Una Björg er góður
flautuleikari en skorti stundum
ákefð og þróttmeiri tón.
Ülle Hahndorf fór vel með selló-
röddina, mátti þó á stundum leika
veikar.
Í heild var þetta hádegi heillandi
og ég vil hvetja aðstandendur tón-
listar og matarlistar að halda áfram
á þessari braut því nógu eru þemun
mörg.
Undirtektir þakklátra áheyrenda
eru í sama dúr.
Barokkað í Ketilhúsinu
TÓNLIST
Ketilshúsið
Flytjendur: Guðný Erla Guðmundsdóttir á
píanó, Helena Bjarnadóttir, sópran, Una
Björg Hjartardóttir á flautu, Ülle Ha-
hndorf á selló.
Efnisskrá: Aríur úr kantötum eftir Aless-
andro Scarlatti, J.S. Bach og Händel,
ásamt aríu úr óperu eftir Rameau.
Tónleikar Tónlistarfélags Akureyrar
Johann Sebastian Bach
Jón Hlöðver Áskelsson
HÉR sjást fjórar myndir sem grímuklæddir og vopnaðir menn rændu af
safni í serbneska bænum Novi Sad fyrir viku. Myndirnar eru metnar á
nokkrar milljónir evra. Sú efri vinstra megin er eftir ókunnan listamann,
og er af höfði Krists, efri myndin til hægri er eftir Rubens og nefnist Dauði
Seneca; neðri myndin til hægri er eftir Rembrandt, og hefur titilinn Brjóst-
mynd af gömlum manni með loðhúfu, en neðri myndin vinstra megin er eft-
ir Pier Francesco Mola og nefnd Landslagsmynd með fiskimönnum.
Reuter
Dýrgripum stolið