Morgunblaðið - 16.01.2006, Síða 40
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
DÆLUR
FYRIR SJÁVARÚTVEGINN
Sími 568 6625
Jóhanna
Thorsteinson
– þinn liðsmaður
2. sætiðwww.johanna.is
Framboð til prófkjörs
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi
21.janúar 2006
STOFNKOSTNAÐUR Landsvirkjunar vegna
aukinnar orkuöflunar á Suðurlandi myndi aukast
um nálægt sex milljarða króna ef Norðlingaöldu-
veita yrði slegin af. Þetta segir Friðrik Sophusson,
forstjóri Landsvirkjunar. „Miðað við þá kosti sem
eru í boði fyrir fyrirtækið á Suðurlandi myndi
þetta auka útgjöld fyrirtækisins upp á tæpa sex
milljarða króna,“ segir hann.
Undirbúningur hefur kostað 630 milljónir
Þessar tölur eru byggðar á útreikningum sem
Landsvirkjun hefur látið gera. Hún hefur m.ö.o.
látið meta hve mikið það myndi kosta hana að afla
720 gígavattstunda á ári með öðrum hætti á Suð-
urlandi, en með Norðlingaölduveitu. Í þeim út-
reikningum var, skv. upplýsingum frá Landsvirkj-
un, horft til þeirra virkjunarkosta sem
Landsvirkjun hefur heimildir fyrir eða telur að
hún fái heimildir fyrir. Þessir virkjunarkostir eru
Tungnaá og Neðri-Þjórsá, sem eru Búðarháls-,
Hvamms-, Holta- og Urriðafossvirkjun. Stofn-
kostnaður við öflun 720 gígavattstunda á ári með
þessum kostum er um 5,3 milljörðum meiri en með
Norðlingaölduveitu, skv. útreikningum Lands-
virkjunar. Auk þess er bent á að fyrirtækið þyrfti
væntanlega að afskrifa um 630 milljónir króna í
áfallinn undirbúningskostnað við Norðlingaöldu-
veitu. Samtals myndi kostnaður Landsvirkjunar
því aukast um tæplega sex milljarða, yrði horfið
frá áformum um Norðlingaölduveitu.
Hefur jákvæð miðlunaráhrif
Í gögnum frá Landsvirkjun um þessa útreikn-
inga er aukinheldur tekið fram að Norðlingaöldu-
veita hafi jákvæð miðlunaráhrif á virkjanir í
Neðri-Þjórsá, þar sem vatn frá veitunni fari í
gegnum Þórisvatnsmiðlun. Þau áhrif hafi ekki
verið könnuð sérstaklega og séu því ekki talin
stórvægileg. „Að þeim meðtöldum má þó ætla að
kostnaðarauki Landsvirkjunar, ef hætt yrði við
Norðlingaölduveitu, nemi samtals 6 til 6,5 millj-
örðum.“
Áhrif þess fyrir Landsvirkjun að hætta við Norðlingaölduveitu
Kostnaður myndi aukast
um nær sex milljarða
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
TVÖ aðildarfélög
Bandalags há-
skólamanna,
Kjarafélag við-
skiptafræðinga
og hagfræðinga
og Útgarður (fé-
lag fólks með
ýmsa háskóla-
menntun), felldu
á félagsfundi í
gær nýgerða
kjarasamninga við Reykjavíkur-
borg. Félagsfundur Stéttarfélags
lögfræðinga samþykkti samninginn.
„Þetta eru fáir félagsmenn í báð-
um tilvikum enda hafa í gegnum tíð-
ina flestir verið í starfsmannafélagi
Reykjavíkurborgar. En svo hefur
verið að fjölga í báðum félögum og
kannski kaldhæðni örlaganna að
það hefur m.a. gerst þar sem fólk
hefur verið óánægt með starfsmat.
Margir hafa haldið því fram að
starfsmatið henti háskólamenntuð-
um síður en ófaglærðum. Þegar við
hófum samningavinnu í haust, leit-
uðum við til okkar félagsmanna um
áherslur og afgerandi niðurstaða
varð að fólk vildi ekki byggja samn-
ingsgerðina á starfsmati.
Óánægja með starfsmat
Halldóra segir samningsdrögin
hafa verið hliðstæð ríkissamningum.
„En síðan hafa verið gerðir samn-
ingar við önnur félög í Reykjavík
þar sem fólk hefur fengið mjög
miklar hækkanir og það var einfald-
lega mat þeirra sem komu á fé-
lagsfund, að við hlytum að geta
fengið meira vegna þess að önnur
samtök hefðu fengið meira út úr
samningum við borgina. Mér finnst
það þó ekki rökrétt, því eins og
Steinunn Valdís borgarstjóri hefur
ítrekað eiga hækkanirnar ekki að
ganga gegnum allan launastigann
heldur er verið að hækka mest þá
sem hafa lægstu launin. Það á ekki
við um okkar hóp svo þetta er svolít-
ið skrýtin aðstaða. En í næstu viku
höldum við félagsfundi og fáum þá
vonandi fleiri en mættu síðast. Ef
fólk heldur núna að það komi betur
út í starfsmati gerum við auðvitað
það sem menn vilja.“
Felldu samninga við borgina
Félagsmenn í BHM horfa til ný-
gerðra kjarasamninga í Reykjavík
Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur
aps@hi.is
Halldóra
Friðjónsdóttir
ÞORRI landsmanna á ekki annarra
kosta völ kost en að leita eftir þjón-
ustu bílaþvottastöðva yfir vetr-
artímann þegar venjuleg bíla-
þvottaplön eru lokuð. Það er því
yfirleitt nóg að gera á bílaþvotta-
stöðvum á þessum árstíma. Það
bætist svo við að tjara af götunum
festist hratt við bílana þegar marg-
ir aka um á negldum dekkjum.
Myndin er tekin á bílaþvottastöð
við Sóltún í Reykjavík.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mikið að gera á bílaþvottastöðvum
RÚMLEGA tíu þúsund manns lögðu
leið sína á skíðasvæðið í Bláfjöllum
um helgina að sögn Grétars Þór-
issonar, forstöðumanns skíðasvæð-
anna á höfuðborgarsvæðinu, en
svæðið var opnað í fyrsta sinn í vet-
ur á laugardaginn.
„Það var mikið líf í fjallinu um
helgina og dagurinn í dag [í gær] er
einn af stærstu dögunum í Bláfjöll-
um frá upphafi en þá komu rúm-
lega sex þúsund manns. Það má í
raun segja að það hafi verið uppselt
enda voru ekki til staðar bílastæði
fyrir alla sem hingað komu.“
Grétar segir að þrátt fyrir byrj-
unarörðugleika á laugardaginn
þegar nýja stólalyftan bilaði og eitt
alvarlegt slys í gær hafi verið lítið
um óhöpp. | 4
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Tíu þúsund
í Bláfjöllum
TVÆR konur féllu niður um vök á
Rauðavatni um fjörutíu metra frá
landi rétt fyrir kl. 13 í gærdag. Kon-
urnar voru á ferð með gönguhóp
þegar óhappið varð en ísinn brotnaði
undan fótum þeirra.
Mikill viðbúnaður var við vatnið
og tveir sjúkrabílar sendir á vett-
vang auk neyðarbíls, kafarabíls og
dælubíls. Var konunum fljótt komið
til bjargar og þær fluttar til aðhlynn-
ingar á slysadeild Landspítala – há-
skólasjúkrahúss með væg einkenni
ofkælingar. Þeim varð þó ekki meint
af volkinu og voru útskrifaðar eftir
að búið var að koma í þær hita.
Slökkviliðið bendir á að ísinn á
Rauðavatni sé mjög ótraustur og
óráðlegt að fara yfir hann. Að gefnu
tilefni má einnig benda á að komi
upp vá skal ávallt hringja eftir að-
stoð eins fljótt og auðið er.
Féllu niður
um vök á
Rauðavatni
SKORAÐ er á samgönguyfirvöld,
þingmenn og ráðherra að beita sér
fyrir því með öllum ráðum að tryggja
varanlega lausn í samgöngumálum á
norðanverðum Vestfjörðum frá
Súðavík til Bolungarvíkur svo líta
megi á svæðið sem heildstætt at-
vinnusvæði. Þetta kom fram í álykt-
un baráttufundar um bættar sam-
göngur á laugardag í Bolungarvík.
Í ályktun var vísað til samþykkta
sveitarstjórna á norðanverðum Vest-
fjörðum þar sem segir að tryggja
þurfi öruggar samgöngur annars-
vegar á milli Ísafjarðar og Bolung-
arvíkur og hinsvegar milli Ísafjarðar
og Súðavíkur með jarðgöngum.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra komst ekki á fundinn þar sem
flugvél hans gat ekki lent á Ísafirði
vegna veðurs.
Tryggi örugg-
ar samgöngur
á Vestfjörðum
Krafa | 20
♦♦♦
♦♦♦